Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1525/2021

Nr. 1525/2021 6. desember 2021

GJALDSKRÁ
fyrir hundahald í Dalvíkurbyggð.

1. gr.

Við skráningu hunda skal greiða skráningargjald kr. 3.244.

 

2. gr.

Árlega skal greiða eftirlitsgjald vegna hunda kr. 9.980. Gjaldið á að standa undir kostnaði vegna ormahreinsunar og eftirlits. Ef framvísað er staðfestingu á að ormahreinsun hafi verið framkvæmd lækkar eftirlitsgjaldið um 50%.

 

3. gr.

Af hundum sem handsamaðir eru og fluttir í gæludýrageymslu Dalvíkurbyggðar samkvæmt 14. gr. samþykktar um hundahald í Dalvíkurbyggð skal eigandi greiða handsömunar-, fóður- og vist­unar­gjald áður en honum er afhentur hundurinn á ný. Ef hundur er ekki örmerktur samkvæmt 9. gr. sömu samþykktar ber einnig að greiða þann kostnað gegn beiðni til dýralækna sem framkvæma slíkt.

 

4. gr.

Við afhendingu handsamaðs hunds ber að innheimta kr. 6.236 vegna handsömunar og gjald fyrir fóður og vistun samkvæmt kostnaði. Gjald fyrir örmerkingu hunda fer eftir gjaldskrá viðkom­andi dýralæknis hverju sinni.

 

5. gr.

Gjaldskrá þessi, sem sett er með heimild í 59. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og meng­unarvarnir, sbr. kafla XVI, auk reglugerðar nr. 941/2002 um hollustuhætti og samþykkt um hunda­hald í Dalvíkurbyggð nr. 1234/2020, öðlast gildi við birtingu.

 

6. gr.

Gjaldskráin uppfærðist haustið 2021 og hækkaði um 4% samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar.

Samþykkt í landbúnaðarráði Dalvíkurbyggðar 23. september 2021 og í sveitarstjórn Dalvíkur­byggðar 23. nóvember 2021.

Gjaldskrá þessi öðlast gildi 1. janúar 2022 og fellur þá gjaldskrá sama efnis nr. 1403/2020 úr gildi.

 

Dalvíkurbyggð, 6. desember 2021.

 

Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 27. desember 2021