Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1191/2013

Nr. 1191/2013 12. desember 2013
GJALDSKRÁ
Norðurorku hf. fyrir hitaveitu.

1. gr.

Norðurorka hf. selur afnot af heitu vatni úr veitukerfi sínu samkvæmt gjaldskrá þessari og reglugerð Norðurorku fyrir heitt vatn. Gjaldskráin gildir á öllu orkuveitusvæði Norður­orku. Á gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari leggjast virðisaukaskattur og önnur gjöld samkvæmt gildandi lögum og reglum á hverjum tíma.

2. gr.

Norðurorka takmarkar allajafna ekki aðgang húsveitu að vatni umfram það er heimæð og veitukerfi gera. Þó er veitunni heimilt að setja upp búnað hjá notanda, sem tryggir aðra notendur gegn óeðlilegum þrýstibreytingum og er starfsmönnum veitunnar einum heimilt að breyta stillingu hans.

3. gr.

Fyrir afnot af heita vatninu skal greiða eftirfarandi gjöld (allar veitur á veitusvæði Norður­orku hf. nema Ólafsfjörður og Reykjaveita):

A. Vatnsgjald.

Samkvæmt vatnsmæli fyrir hvern rúmmetra vatns.

Grunnverð kr. 100.

Þar til vatnsmælir hefur verið settur upp eða ef vatnsmælir, húsveita eða annar búnaður bila þannig að mæling bregst, áætlar veitan vatnsnotkun með hliðsjón af hitaþörf hússins. Hafi áhleyping eða tenging ekki átt sér stað einu ári eftir að heimlögn er tilbúin til tengingar hefst innheimta samkvæmt gjaldskrá.

B. Fastagjald.

Norðurorka ákveður mælisstærð fyrir hverja húsveitu. Greiða skal fast gjald sem fer eftir stærð vatnsmælis sem hér segir:

Fast gjald fyrir hvern mæli:

 

Mælir

Grunnverð kr./dag

 

15 mm

54,02

 

 

20 mm

115,78

 

 

25 mm

223,84

 

 

32 mm

432,24

 

 

40 mm

879,93

 

 

50 mm

1.698,11

 

C. Heimæðagjald. Aðalheimæðar (allar veitur nema Reykjaveita):

 

Þvermál inntaks

Grunnverð kr.

 

20 mm heimæð

407.198

 

 

25 mm heimæð

513.588

 

 

32 mm heimæð

674.951

 

 

40 mm heimæð

923.911

 

 

50 mm heimæð

1.316.017

 

 

65 mm heimæð

1.947.750

 

 

80 mm heimæð

2.986.483

 

Tengigrindargjald er innifalið í heimæðagjaldi en sé óskað eftir auka tengigrind kostar hún kr. 52.555.

Ef heimlagnagjald, þar með talið lengdargjald, stendur ekki undir kostnaði s.s. í frágengnu hverfi er heimæðagjald fyrir nýja eða stækkaða heimæð greitt samkvæmt kostnaðaráætlun eða raunkostnaði samkvæmt nánara samkomulagi við umsækjanda.

Lengdargjald:

  1. Lengdargjald í dreifbýli er 4.603 kr./metra. Lengdargjald er greitt frá stofnlögn að tengistað heimæðar að frádregnum 20 metrum.
  2. Lengdargjald í þéttbýli er 8.184 kr./metra. Lengdargjald skal greitt fyrir hvern metra umfram 20 metra innan lóðarmarka.

Í sumarbústaði, frístundahús, vinnuskúra og þess háttar skal settur skápur á útvegg fyrir inntak heimlagnar samkvæmt nánari leiðbeiningum og skilmálum sem koma fram í heimlagnabæklingi.

Hafi áhleyping eða tenging ekki átt sér stað einu ári eftir að heimlögn er tilbúin til teng­ingar hefst innheimta samkvæmt gjaldskrá.

Grunnverð fyrir sumarhús, frístundahús og sambærileg hús er fast gjald og lág­marks­gjald sem samsvara gjaldi fyrir 300 m³ af heitu vatni.

D. Bráðabirgðaheimæðar:

 

Hitaveita

Grunnverð kr.

 

Lengdargjald kr./m

 

20 mm

44.524

 

5.962

 

25 mm

44.524

 

5.962

 

32 mm

44.524

 

5.962

Lengdargjald skal greitt fyrir hvern metra í heimæð til bráðabirgðatengingar.

Bráðabirgðaheimæðar skulu aflagðar innan 24 mánaða frá tengingu þeirra.

4. gr.

Ólafsfjörður.

Fast gjald, tengigrind og heimæðagjald er innheimt samkvæmt almennri verðskrá Norður­orku.

Heitt vatn er selt eftir mínútulítrum og vatnsmælum.

Vatnsgjald á mánuði fyrir hvern mínútulítra í hámarksstillingu hemils kr. 1.381,08.

Vatnsgjald fyrir hvern rúmmetra vatns kr. 61,20.

5. gr.

Reykjaveita.

Fast gjald og gjald fyrir tengigrind er innheimt samkvæmt almennri verðskrá Norðurorku.

Heitt vatn er selt eftir vatnsmælum sem mæla jafnt rúmmetrafjölda sem og hita á vatn­inu á inntaksstað (framrásarhita) og þar með er hægt að ákvarða kílóvatts­stunda­gildi (kWh) þess vatns sem hver viðskiptavinur fær til afnota. Við ákvörðun kílóvatts­stunda (kWh) er bakrásarhiti ákvarðaður með fast gildi sem er 25°C fyrir mæla setta upp 2011 og fyrr, en 30°C fyrir mæla setta upp 2012 og síðar.

Vatnsgjald fyrir hvern rúmmetra vatns er kr. 147,08 sé gjaldið samkvæmt rúm­metra­mælingu.

Vatnsgjald fyrir hverja kílóvattsstund (kWh) er kr. 3,47 sé gjaldið samkvæmt kíló­vatts­stundamælingu fyrir mæla með fast gildi bakrásar 25°C, en kr. 4,00 fyrir mæla með fast gildi bakrásar 30°C. Norðurorka hf. ákvarðar hvort gjald fyrir afnot af vatninu er samkvæmt rúmmetramælingu eða kílóvattsstundamælingu. Er við það miðað að megin­reglan sé sú að greitt sé samkvæmt kílóvattsstundamælingu í Reykjaveitu.

Heimæðagjald.

Grenivík:

 

Þvermál inntaks

Grunnverð kr.

 

20 mm heimæð

536.112

 

25 mm heimæð

681.180

 

32 mm heimæð

901.197

 

40 mm heimæð

1.240.655

 

50 mm heimæð

1.775.109

 

65 mm heimæð

2.636.384

Dreifbýli:

 

Þvermál inntaks

Grunnverð kr.

 

20 mm heimæð

690.559

 

25 mm heimæð

881.926

 

32 mm heimæð

1.172.254

 

40 mm heimæð

1.620.132

Tengigrindargjald er innifalið í heimæðagjaldi en sé óskað eftir auka tengigrind kostar hún kr. 52.555.

6. gr.

Innheimtugjald er samkvæmt gjaldskrá viðkomandi innheimtufyrirtækis samkvæmt samn­ingi þar að lútandi.

 

 

kr.  

 

Lokunargjald

2.694

 

Mælaálestrargjald

1.886

 

Seðilgjald

189

 

Afgreiðslugjald á vinnutíma

4.207

 

Afgreiðslu- og opnunargjald utan vinnutíma

18.225

7. gr.

Gjaldskrá þessi, sem samþykkt er af stjórn Norðurorku, er sett samkvæmt orkulögum nr. 58 frá 29. apríl 1967 og lögum nr. 159, 20. desember 2002 um stofnun hlutafélags um Norðurorku, staðfestist hér með til að öðlast gildi frá og með 1. janúar 2014 og birtist til eftirbreytni öllum sem hlut eiga að máli. Jafnframt er úr gildi felld eldri gjaldskrá Norður­orku hf. nr. 1167 frá 14. desember 2012.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 12. desember 2013.

F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra,

Kristján Skarphéðinsson.

Hreinn Hrafnkelsson.

B deild - Útgáfud.: 30. desember 2013