Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 126/2021

Nr. 126/2021 28. nóvember 2021

FORSETAÚRSKURÐUR
um skiptingu starfa ráðherra.

Forseti Íslands
gjörir kunnugt:

 

Samkvæmt tillögu forsætisráðherra og með skírskotun til 15. gr. stjórnarskrárinnar, laga um Stjórnarráð Íslands og forsetaúrskurðar um skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti er störfum þannig skipt með ráðherrum:

 

1. gr.

Forsætisráðherra.

Katrín Jakobsdóttir fer með stjórnarmálefni sem heyra undir forsætis­ráðuneytið skv. 1. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættis­heitið forsætisráðherra.

 

2. gr.

Ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðherra.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir fer með stjórnarmálefni sem heyra undir atvinnuvega- og nýsköp­unar­ráðuneytið skv. 3.–6. tölul., b–m-liðum 10. tölul. og 11. tölul. 2. gr. og mennta- og menningarmálaráðuneytið skv. 5. og 7. tölul. 7. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnar­málefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið ferðamála-, viðskipta- og menn­ingarmála­ráðherra.

 

3. gr.

Félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir félags­mála­ráðuneyti skv. 4. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnar­ráði Íslands og ber embættisheitið félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra.

 

4. gr.

Fjármála- og efnahagsráðherra.

Bjarni Benediktsson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir fjármála- og efnahags­ráðu­neytið skv. 5. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnar­ráði Íslands og ber embættisheitið fjármála- og efnahagsráðherra.

 

5. gr.

Heilbrigðisráðherra.

Willum Þór Þórsson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir heilbrigðisráðuneytið skv. 6. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið heilbrigðisráðherra.

 

6. gr.

Innanríkisráðherra.

Jón Gunnarsson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir dómsmálaráðuneytið skv. 3. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið innanríkisráðherra.

 

7. gr.

Innviðaráðherra.

Sigurður Ingi Jóhannsson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir samgöngu- og sveitar­stjórnarráðuneytið skv. 1.–8. tölul. 8. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið innviðaráðherra.

 

8. gr.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Svandís Svavarsdóttir fer með stjórnarmálefni sem heyra undir atvinnuvega- og nýsköp­unar­ráðuneytið skv. 1. og 7.–9. tölul. 2. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnar­málefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið sjávarútvegs- og land­búnaðarráðherra.

 

9. gr.

Mennta- og barnamálaráðherra.

Ásmundur Einar Daðason fer með stjórnarmálefni sem heyra undir mennta- og menn­ingar­málaráðuneytið skv. 1., 2. og 11.–17. tölul. 7. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnar­mál­efna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið mennta- og barnamála­ráðherra.

 

10. gr.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

Guðlaugur Þór Þórðarson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir mennta- og menn­ingar­málaráðuneytið skv. 6. tölul. 7. gr. og umhverfis- og auðlindaráðuneytið skv. 9. gr. forseta­úrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

 

11. gr.

Utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fer með stjórnarmálefni sem heyra undir utan­ríkisráðuneytið skv. 10. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra.

 

12. gr.

Vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir fer með stjórnarmálefni sem heyra undir atvinnuvega- og nýsköp­unar­ráðuneytið skv. 2. tölul. og a-, n- og o-liðum 10. tölul. 2. gr., mennta- og menn­ingar­mála­ráðuneytið skv. 3., 4., 8.–10. og 18. tölul. 7. gr. og samgöngu- og sveitar­stjórnar­ráðuneytið skv. 9. tölul. 8. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunar­ráðherra.

 

13. gr.

Úrskurður þessi öðlast þegar gildi. Með úrskurði þessum fellur úr gildi úrskurður nr. 120/2018, um skiptingu starfa ráðherra, með síðari breytingum.

 

Gjört á Bessastöðum, 28. nóvember 2021.

 

Guðni Th. Jóhannesson.

(L. S.)

Katrín Jakobsdóttir.


A deild - Útgáfud.: 28. nóvember 2021