Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1074/2019

Nr. 1074/2019 3. desember 2019

REGLUGERÐ
um bann við veiðum á sæbjúgum á veiðisvæði út af Austurlandi, suðursvæði.

1. gr.

Frá 4. desember 2019 eru allar veiðar á sæbjúgum óheimilar á veiðisvæði út af Austurlandi, suðursvæði, sem afmarkast af eftirfarandi hnitum:

  1. 65°00,00 N – 13°00,00 V
  2. 65°00,00 N – 15°00,00 V
  3. 65°30,00 N – 15°00,00 V
  4. 65°30,00 N – 13°00,00 V

2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti sakamála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, til þess að öðlast þegar gildi og gildir til 31. ágúst 2020.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 3. desember 2019.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Jóhann Guðmundsson.


B deild - Útgáfud.: 3. desember 2019