Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1127/2022

Nr. 1127/2022 23. september 2022

AUGLÝSING
um breytingu á gjaldskrá fyrir Stjórnartíðindi nr. 45/2016.

1. gr.

Við 3. tölulið 2. gr. gjaldskrárinnar bætist nýr málsliður svohljóðandi: Gjald fyrir birtingu alþjóða­samninga sem gerðir voru fyrir árslok 2019 er 1.500 kr. fyrir hverja uppsetta blaðsíðu. Auk þess greiðast 5.000 kr. fyrir hvern viðauka á pdf-formi sem er fullfrágengið fylgiskjal.

 

2. gr.

Gjaldskráin er sett skv. heimild í 3. mgr. 6. gr. laga nr. 15/2005, um Stjórnartíðindi og Lögbirt­inga­blað, og öðlast breytingin gildi þegar í stað.

 

Dómsmálaráðuneytinu, 23. september 2022.

 

Jón Gunnarsson.

Haukur Guðmundsson.


B deild - Útgáfud.: 11. október 2022