Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 354/2025

Nr. 354/2025 28. mars 2025

GJALDSKRÁ
fyrir verkefni og þjónustu Náttúruverndarstofnunar.

I. KAFLI

Almennt.

1. gr.

Gjald fyrir útselda vinnu sérfræðings.

Náttúruverndarstofnun innheimtir gjald samkvæmt gjaldskrá þessari sem nemur kr. 20.800 á hverja klukkustund fyrir sérfræðing fyrir verkefni og þjónustu sem stofnuninni eru falin í lögum og reglugerðum og sem heimilt er að taka gjald fyrir.

 

2. gr.

Ferðakostnaður.

Náttúruverndarstofnun innheimtir ferða- og uppihaldskostnað í samræmi við útlagðan kostnað stofnunarinnar vegna ferða, þó aldrei meira en sem nemur viðmiðum, sbr. gildandi auglýsingu ferðakostnaðarnefndar fjármála- og efnahagsráðuneytisins.

 

3. gr.

Innheimta.

Eindagi gjalda skv. gjaldskrá þessari er 30 dögum eftir útgáfu reiknings. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga hafi gjöld ekki verið greidd á eindaga. Heimilt er að innheimta kostnað sem hlýst af inn­heimtu gjalda séu þau ekki greidd á eindaga.

 

4. gr.

Gildissvið.

Gjaldskrá þessi gildir ekki um gestagjöld innan Vatnajökulsþjóðgarðs, sem Náttúruverndar­stofnun innheimtir, fyrir veitta þjónustu og aðgang að svæðinu. Um þau gjöld gildir reglugerð nr. 325/2025.

 

II. KAFLI

Leyfisveitingar o.fl.

5. gr.

Leyfi til leiðsagnar með hreindýraveiðum.

Náttúruverndarstofnun innheimtir gjald fyrir leyfi til leiðsagnar með hreindýraveiðum sam­kvæmt 10. mgr. 14. gr. laga um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, nr. 64/1994 og endurnýjun slíks leyfis skv. 13. mgr. sömu greinar.

Gjaldið skal vera:

  1. 41.600 kr. fyrir upphaflegt leyfi, eða sem nemur 2 klst. vinnu hjá Náttúruverndarstofnun, sbr. 1. gr.;
  2. 20.800 kr. fyrir endurnýjun leyfis, eða sem nemur 1 klst. vinnu hjá Náttúruverndarstofnun, sbr. 1. gr.

 

6. gr.

Akstur utan vega.

Náttúruverndarstofnun innheimtir gjald vegna vinnslu og afgreiðslu umsóknar um leyfi til aksturs utan vega í tengslum við kvikmyndagerð, viðhald skála og neyðarskýla, sbr. 2. mgr. 31. gr. laga nr. 60/2013 um náttúruvernd, nema um sé að ræða framkvæmd sem stuðlar að almannaheill og öryggi almennings. Reikningur skal gefinn út við móttöku umsóknar.

Gjaldið skal vera 62.400 kr., eða sem nemur þriggja klst. vinnu hjá Náttúruverndarstofnun, sbr. 1. gr.

Hafi vinnsla og útgáfa leyfis í för með sér fleiri vinnustundir fyrir Náttúruverndarstofnun en sem nemur gjaldi skv. 2. mgr. er heimilt að innheimta tímagjald fyrir slíka umframvinnu skv. 1. gr. Þegar ljóst er að vinnsla umsóknar um leyfi hefur í för með sér umframvinnu skal umsækjanda gerð grein fyrir umfangi þeirrar vinnu. Reikningur vegna frekari vinnu skal gefinn út þegar ákvörðun Náttúruverndarstofnunar liggur fyrir.

 

7. gr.

Leyfi til framkvæmda þar sem hætta er á að spillt verði friðlýstum náttúruminjum.

Náttúruverndarstofnun innheimtir gjald vegna vinnslu og afgreiðslu umsóknar um leyfi til fram­kvæmda og vegna starfsemi þar sem hætta er á að spillt verði friðlýstum náttúruminjum, sbr. aug­lýsingar og reglugerðir um friðlýst svæði, sbr. 2. mgr. 40. gr. í lögum nr. 60/2013 um náttúru­vernd. Reikningur skal gefinn út við móttöku umsóknar.

Gjaldið skal vera:

  1. 62.400 kr., eða sem nemur þriggja klst. vinnu hjá Náttúruverndarstofnun, sbr. 1. gr., fyrir umsókn vegna starfsemi, viðburða, rannsókna og athafna;
  2. 83.200 kr., eða sem nemur fjögurra klst. vinnu hjá Náttúruverndarstofnun, sbr. 1. gr., fyrir umsókn vegna framkvæmda, kvikmyndagerðar og/eða myndatöku;
  3. 41.600 kr., eða sem nemur tveggja klst. vinnu hjá Náttúruverndarstofnun, sbr. 1. gr., fyrir umsókn vegna ómannaðra loftfara einstaklinga til einkanota á allt að tveimur friðlýstum svæðum.

Hafi vinnsla og útgáfa leyfis í för með sér fleiri vinnustundir fyrir Náttúruverndarstofnun en sem nemur gjaldi skv. 2. mgr. er heimilt að innheimta tímagjald fyrir slíka umframvinnu skv. 1. gr. Þegar ljóst er að útgáfa leyfis hefur í för með sér umframvinnu skal umsækjanda gerð grein fyrir umfangi þeirrar vinnu. Reikningur vegna frekari vinnu skal gefinn út þegar ákvörðun um útgáfu leyfis liggur fyrir.

Náttúruverndarstofnun er heimilt að innheimta aukalega gjald sem nemur 41.600 kr., eða sem nemur tveggja klst. vinnu hjá Náttúruverndarstofnun, sbr. 1. gr., vegna umsókna sem berast innan fimm virkra daga frá fyrirhuguðu verkefni vegna framkvæmda, athafna og viðburða innan friðlýstra svæða og vegna aksturs utan vega vegna kvikmyndagerðar.

Ef Náttúruverndarstofnun veitir leyfi til aksturs utan vega skv. 28. gr. samhliða leyfi til fram­kvæmda innheimtir stofnunin einungis gjald fyrir leyfi til framkvæmda.

 

8. gr.

Undanþága frá ákvæðum friðlýsingar.

Náttúruverndarstofnun innheimtir gjald vegna vinnslu og afgreiðslu undanþágu frá ákvæðum frið­lýsingar, sbr. 3. mgr. 38. gr., sbr. 41. gr. í lögum nr. 60/2013. Reikningur skal gefinn út við mót­­töku umsóknar.

Gjaldið skal vera 83.200 kr. eða sem nemur fjögurra klst. vinnu hjá Náttúruverndarstofnun, sbr. 1. gr., fyrir umsókn vegna undanþágu.

Hafi vinnsla og útgáfa leyfis í för með sér fleiri vinnustundir fyrir Náttúruverndarstofnun en sem nemur gjaldi skv. 2. mgr. er heimilt að innheimta tímagjald fyrir slíka umframvinnu skv. 1. gr. Þegar ljóst er að útgáfa leyfis hefur í för með sér umframvinnu skal umsækjanda gerð grein fyrir umfangi þeirrar vinnu. Reikningur vegna frekari vinnu skal gefinn út þegar ákvörðun um veitingu undanþágu liggur fyrir.

 

9. gr.

Leyfi til innflutnings og/eða dreifingar á framandi lífverum.

Náttúruverndarstofnun innheimtir gjald vegna vinnslu og afgreiðslu umsóknar um leyfi til að flytja inn og dreifa lifandi framandi lífverum, sbr. 1. mgr. 63. gr. laga nr. 60/2013 um náttúruvernd.

Gjaldið skal vera 104.000 kr., eða sem nemur fimm klst. vinnu hjá Náttúruverndarstofnun, sbr. 1. gr. Hafi vinnsla og útgáfa leyfis í för með sér meiri kostnað fyrir Náttúruverndarstofnun en sem nemur gjaldi skv. 2. mgr. er heimilt að innheimta tímagjald fyrir slíka umframvinnu skv. 1. gr. Þegar ljóst er að útgáfa leyfis hefur í för með sér umframvinnu skal umsækjanda gerð grein fyrir umfangi þeirrar vinnu. Reikningur vegna frekari vinnu skal gefinn út þegar ákvörðun um útgáfu leyfis liggur fyrir.

 

III. KAFLI

Hæfnispróf og námskeið.

10. gr.

Hæfnispróf og veiðinámskeið fyrir veiðimenn.

Náttúruverndarstofnun heldur hæfnispróf fyrir veiðimenn og veiðinámskeið til undirbúnings hæfnis­prófa á fyrir fram auglýstum tíma skv. 11. gr. laga, nr. 64/1994, um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum. Stofnunin innheimtir gjald vegna hæfnisprófa og nám­skeiða, sbr. 4. mgr. 11. gr. laganna, í samræmi við eftirfarandi:

Gjaldið skal vera:

  1. 12.200 kr. prófgjald fyrir hæfnispróf á auglýstum próftíma;
  2. 15.200 kr. prófgjald fyrir hæfnispróf utan auglýstra próftíma að ósk viðkomandi einstak­lings (einkapróf);
  3. 23.000 kr. fyrir veiðinámskeið til undirbúnings hæfnisprófi og hæfnispróf.

 

11. gr.

Námskeið og próf í kjölfar námskeiða í leiðsögn með hreindýraveiðum.

Náttúruverndarstofnun heldur námskeið í leiðsögn með hreindýraveiðum í samræmi við 11. mgr. 14. gr. laga nr. 64/1994, um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum. Náttúru­verndarstofnun innheimtir gjald vegna námskeiða og prófa í kjölfar námskeiða í leiðsögn með hreindýraveiðum sem og vegna námskeiðs vegna endurnýjunar leyfa í samræmi við 13. mgr. 14. gr. laga nr. 64/1994, um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum.

Gjaldið skal vera:

  1. 320.000 kr. fyrir námskeið og próf í kjölfar námskeiðs;
  2. 16.000 kr. fyrir námskeið vegna endurnýjunar leyfis. Greiða skal gjaldið áður en námskeið er setið.

 

12. gr.

Verkleg skotpróf fyrir hreindýraveiðimenn og leiðsögumenn.

Náttúruverndarstofnun heldur verkleg skotpróf fyrir hreindýraveiðimenn og leiðsögumenn sam­kvæmt 12. mgr., sbr. 9. og 10 mgr. 14. gr. laga, nr. 64/1994, um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum. Náttúruverndarstofnun innheimtir gjald vegna verklegs skot­prófs í samræmi við 11. mgr. 14. gr. laga nr. 64/1994, um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum.

Gjaldið skal vera 4.500 kr.

 

13. gr.

Hæfnispróf og námskeið í landvörslu.

Náttúruverndarstofnun heldur hæfnispróf og námskeið í landvörslu í samræmi við 3. mgr. 80. gr. laga nr. 60/2013, um náttúruvernd. Náttúruverndarstofnun innheimtir gjald vegna hæfnisprófa og námskeiða til landvörslu, sbr. 3. mgr. 80. gr. laga nr. 60/2013, um náttúruvernd.

Gjaldið skal vera 155.000 kr.

Greiða skal gjald vegna hæfnisprófa eða námskeiða áður en námskeið er setið.

 

IV. KAFLI

Leyfisveitingar vegna CITES.

14. gr.

Innflutningsleyfi, útflutningsleyfi og endurútflutningsleyfi vegna CITES.

Náttúruverndarstofnun innheimtir gjald til að standa undir kostnaði vegna vinnu við umsóknir um leyfi til innflutnings, útflutnings og endurútflutnings á eintökum þeirra tegunda sem taldar eru upp í I. til III. viðauka samningsins, sbr. 4. gr. reglugerðar, nr. 993/2004, um framkvæmd samnings um alþjóðaverslun með tegundir villtra dýra og plantna sem eru í útrýmingarhættu.

Gjaldið skal vera 20.800 kr., eða sem nemur 1 klst. vinnu hjá Náttúruverndarstofnun, sbr. 1. gr.

Sé útgáfa leyfis umfangsmikil og hafi í för með sér meiri kostnað fyrir Náttúruverndarstofnun en fjallað er um í 1. mgr. er heimilt að innheimta tímagjald fyrir slíka umframvinnu skv. 1. gr. Þegar ljóst er að útgáfa leyfis hefur í för með sér umframvinnu skal umsækjanda gerð grein fyrir umfangi þeirrar vinnu. Reikningur vegna frekari vinnu skal gefinn út þegar ákvörðun um útgáfu leyfis liggur fyrir.

 

15. gr.

Vottorð um aðflutning úr sjó vegna CITES.

Náttúruverndarstofnun innheimtir gjald til að standa undir kostnaði við útgáfu vottorða um aðflutning úr sjó fyrir tiltekinn fjölda eintaka eða magn tegunda sem taldar eru upp í I. til III. viðauka samningsins, sbr. 4. gr. reglugerðar nr. 993/2004, um framkvæmd samnings um alþjóða­verslun með tegundir villtra dýra og plantna sem eru í útrýmingarhættu.

Gjaldið skal vera 20.800 kr., eða sem nemur 1 klst. vinnu hjá Náttúruverndarstofnun, sbr. 1. gr.

Sé útgáfa vottorðs umfangsmikil og hafi í för með sér meiri kostnað fyrir Náttúruverndarstofnun en fjallað er um í 1. mgr. er heimilt að innheimta tímagjald fyrir slíka umframvinnu skv. 1. gr. gjaldskrárinnar. Þegar ljóst er að útgáfa vottorðs hefur í för með sér umframvinnu skal umsækjanda gerð grein fyrir umfangi þeirrar vinnu. Reikningur vegna frekari vinnu skal gefinn út þegar ákvörðun um útgáfu vottorðs liggur fyrir.

 

V. KAFLI

Önnur verkefni.

16. gr.

Ljósrit eða afrit af skjölum.

Fyrir ljósrit eða afrit af skjölum samkvæmt beiðni á grundvelli upplýsingalaga nr. 140/2012 og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 gilda gjaldskrár sem forsætisráðherra setur.

 

17. gr.

Aðgangseyrir.

Náttúruverndarstofnun er heimilt að taka sérstakt gjald fyrir opnun gestastofu utan hefðbundins afgreiðslutíma.

Beiðandi greiðir tímagjald skv. 1. gr. gjaldskrárinnar.

Náttúruverndarstofnun er heimilt að semja við önnur söfn eða ferðaþjónustuaðila um sameigin­lega sölu aðgangs að nokkrum söfnum eða viðburðum.

 

18. gr.

Þjónustugjöld.

Náttúruverndarstofnun er heimilt að taka þjónustugjald á friðlýstum svæðum eða náttúru­verndar­svæðum í umsjón stofnunarinnar í samræmi við 2. mgr. 92. gr. laga nr. 60/2013, um náttúru­vernd.

Þjónustugjald er innheimt á bílastæðum vegna kostnaðar sem fellur til á svæðinu svo sem vegna landvörslu, salerna, umhirðu sorps og viðhalds innviða.

Fyrir hvert ökutæki sem er lagt í gjaldskyldu bílastæði innan friðlýstra svæða eða á náttúru­verndar­svæðum í umsjón stofnunarinnar, að undanskildu gjaldskyldu bílastæði í Landmanna­laugum, ber að greiða:

  1. Fólksbifreið með allt að 5 sætum, kr. 750.
  2. Fólksbifreið með 6 til 9 sætum, kr. 1.000.
  3. Rútur með 10 til 19 sætum, kr. 2.000.
  4. Rútur með 20 til 32 sætum, kr. 4.000.
  5. Rútur með 33 eða fleiri sætum, kr. 7.500.
  6. Bifhjól, kr. 300.

Fyrir hvert ökutæki sem er lagt í gjaldskyldu bílastæði í Landmannalaugum ber að greiða:

  1. Fólksbifreið með allt að 5 sætum, kr. 1.200.
  2. Fólksbifreið með 6 til 9 sætum, kr. 2.000.
  3. Rútur með 10 til 19 sætum, kr. 4.500.
  4. Rútur með 20 til 32 sætum, kr. 8.000.
  5. Rútur með 33 eða fleiri sætum, kr. 14.000.
  6. Bifhjól, kr. 600.

Gjald á gjaldskyldum bílastæðum í umsjón Náttúruverndarstofnunar gildir mest í sólarhring (frá kl. 00.00 – 24.00) frá því að lagt er í gjaldskylt stæði.

Þar sem ekki er innheimt gjald á bílastæði er Náttúruverndarstofnun heimilt að taka sérstakt gjald fyrir aðgang að salernum á friðlýstum svæðum sem og á öðrum náttúruverndarsvæðum í umsjón stofnunarinnar. Gjaldið er kr. 250 á einstakling.

 

19. gr.

Bæklingar.

Í tengslum við rekstur náttúruverndarsvæða er Náttúruverndarstofnun heimilt að selja fræðslu­bæklinga. Verð fyrir hvern bækling er 1.000 kr. Heimilt er að veita allt að 20% afslátt af verði bæklinganna ef fleiri en 100 bæklingar eru seldir í einu.

 

VI. KAFLI

Gildistaka og lagastoð.

20. gr.

Lagastoð.

Gjaldskrá þessi er sett samkvæmt heimild í eftirfarandi ákvæðum laga:

  1. 4. mgr. 11. gr. og 11. mgr. 14. gr. laga um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, nr. 64/1994,
  2. 92. gr. laga um náttúruvernd, nr. 60/2013,
  3. 2. mgr. 5. gr. laga um framkvæmd samnings um alþjóðaverslun með tegundir villtra dýra og plantna sem eru í útrýmingarhættu, nr. 85/2000.

Gjaldskráin öðlast gildi 1. apríl 2025. Frá sama tíma falla úr gildi 27.-30. gr. og 43.-47. gr. gjald­skrár fyrir verkefni og þjónustu Umhverfisstofnunar, nr. 1410/2023.

 

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 28. mars 2025.

 

F. h. r.

Björn Helgi Barkarson.

Lárus Gauti Georgsson.


B deild - Útgáfud.: 31. mars 2025