Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 20/2023

Nr. 20/2023 22. desember 2023

AUGLÝSING
um innleiðingu á breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/2235 að því er varðar fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum, fyrirmyndir að opinberum vottorðum, fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum/opinberum vottorðum og eigin staðfestingu vegna komu inn í Sambandið eða umflutnings gegnum Sambandið á sendingum af tilteknum flokkum dýra og vara og opinbera vottun að því er varðar slík vottorð.

1. gr.

Eftirfarandi reglugerð öðlast gildi hér á landi með reglugerð nr. 1713/2023 um (7.) reglugerð nr. 454/2022 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2235 frá 16. desember 2020 um reglur um beitingu reglugerða Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429 og (ESB) 2017/625 að því er varðar fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum/opinberum vottorðum vegna komu inn í Sambandið og tilflutninga innan Sambandsins á sendingum af tilteknum flokkum dýra og vara og opinbera vottun að því er varðar slík vottorð og um niðurfellingu á reglugerð (EB) nr. 599/2004, framkvæmdarreglugerðum (ESB) nr. 636/2014 og (ESB) 2019/628, tilskipun 98/28/EB og ákvörðunum 2000/572/EB, 2003/572/EB og 2007/240/EB, sem birt er í B-deild Stjórnar­tíðinda:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2744 frá 20. nóvember 2023 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/2235 að því er varðar fyrirmyndir að dýra­heilbrigðisvottorðum, fyrirmyndir að opinberum vottorðum, fyrirmyndir að dýraheilbrigðis­vottorðum/opinberum vottorðum og eigin staðfestingu vegna komu inn í Sambandið eða umflutn­ings gegnum Sambandið á sendingum af tilteknum flokkum dýra og vara og opinbera vottun að því er varðar slík vottorð. Reglugerðin er birt á ensku í fylgiskjali með auglýsingu þessari.

 

2. gr.

Auglýsing þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli, lögum nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.

Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.

 

Matvælaráðuneytinu, 22. desember 2023.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Emilía Madeleine Heenen.

 

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


C deild - Útgáfud.: 19. janúar 2024