Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1408/2021

Nr. 1408/2021 7. desember 2021

REGLUGERÐ
um desemberuppbætur til maka- og umönnunarbótaþega árið 2021.

1. gr.

Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um desemberuppbætur til þeirra sem fá greiddar maka- eða umönnunar­bætur á árinu 2021.

Tryggingastofnun ríkisins annast framkvæmd reglugerðarinnar.

 

2. gr.

Desemberuppbót.

Einstaklingur sem hefur fengið greiddar maka- eða umönnunarbætur skv. 5. gr. laga um félags­lega aðstoð, nr. 99/2007, á árinu 2021 skal fá greidda desemberuppbót að fjárhæð 50.267 kr. enda hafi greiðsluþegi fengið mánaðarlegar greiðslur allt árið 2021.

Greiðsluþegi sem hefur fengið greiddar maka- eða umönnunarbætur skemur en tólf mánuði á árinu 2021 á rétt á hlutfallslegri desemberuppbót skv. 1. mgr. í samræmi við þann tíma sem hann hefur fengið greiðslur á árinu. Miða skal við 1/12 fyrir hvern mánuð.

 

3. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 70. gr., sbr. 69. gr., laga nr. 100/2007, um almanna­tryggingar, með síðari breytingum, og 2. mgr. 14. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

 

Félagsmálaráðuneytinu, 7. desember 2021.

 

Guðmundur Ingi Guðbrandsson
félags- og vinnumarkaðsráðherra.

Gunnhildur Gunnarsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 9. desember 2021