Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1280/2023

Nr. 1280/2023 15. nóvember 2023

GJALDSKRÁ
fyrir meðhöndlun úrgangs í Reykjavíkurborg.

1. gr.

Innheimta skal gjald fyrir meðhöndlun úrgangs í Reykjavíkurborg svo sem nánar greinir í gjald­skrá þessari.

 

2. gr.

Gjald fyrir blandaðan heimilisúrgang:

Gjald­flokkur nr. Tegund íláts og hirða Gjald kr./ílát á ári
A.1 120 l tunna, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl   43.000
A.2 120 l tunna, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl   53.000
A.3 240 l tunna, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl   69.200
A.4 240 l tunna, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl   79.200
A.5 360 l tunna, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl 103.800
A.6 360 l tunna, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl 113.800
A.7 660 l ker, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl 190.300
A.8 660 l ker, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl 217.800
     
    kr./losun
A.9 3 m³ gámur 30.900
A.10 4 m³ gámur 37.500
A.11 5 m³ gámur 44.200

 

Gjald fyrir flokkaðan heimilisúrgang, pappírsefni:

Gjald­flokkur nr. Tegund íláts og hirða Gjald kr./ílát á ári
B.1 240 l tunna, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl 10.100
B.2 240 l tunna, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl 13.300
B.3 360 l tunna, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl 15.150
B.4 360 l tunna, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl 25.150
B.5 660 l ker, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl 27.775
B.6 660 l ker, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl 36.575
     
    kr./losun
B.7 3 m³ gámur   8.800
B.8 4 m³ gámur   9.600
B.9 5 m³ gámur 10.400

 

Gjald fyrir flokkaðan heimilisúrgang, plastefni:

Gjald­flokkur nr. Tegund íláts og hirða Gjald kr./ílát á ári
C.1 240 l tunna, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl 10.900
C.2 240 l tunna, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl 14.100
C.3 360 l tunna, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl 16.350
C.4 360 l tunna, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl 26.350
C.5 660 l ker, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl 29.975
C.6 660 l ker, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl 38.875
     
    kr./losun
C.7 3 m³ gámur 6.700
C.8 4 m³ gámur 6.700
C.9 5 m³ gámur 6.700

 

Gjald fyrir flokkaðan heimilisúrgang, matarleifar:

Gjald­flokkur nr. Tegund íláts og hirða Gjald kr./ílát á ári
D.1 140 l tunna, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl 18.200
D.2 140 l tunna, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl 28.300
     
    kr./losun
D.3 3 m³ gámur 11.100

 

Gjald fyrir tvískiptar tunnur:

Gjald­flokkur nr. Tegund íláts og hirða Gjald kr./ílát á ári
E.1 240 l tvískipt tunna fyrir blandaðan heimilisúrgang (60%) og matarleifar (40%) sótt minna en 15 metra frá hirðubíl 52.500
E.2 240 l tvískipt tunna fyrir blandaðan heimilisúrgang (60%) og matarleifar (40%) sótt meira en 15 metra frá hirðubíl 62.500
E.3 240 l tvískipt tunna fyrir pappírsefni (60%) og plast (40%) sótt minna en 15 metra frá hirðubíl 10.500
E.4 240 l tvískipt tunna fyrir pappírsefni (60%) og plast (40%) sótt meira en 15 metra frá hirðubíl 13.700

 

Gjaldi fyrir tunnur og ker er ætlað að standa undir kostnaði við ílát, hirðu og förgun eða endur­vinnslu úrgangs. Gjaldi fyrir gáma er ætlað að standa undir kostnaði við hirðu og förgun eða endur­vinnslu.

 

Aðrir gjaldaliðir.

Merktir pokar fyrir tilfallandi, umfram blandaðan úrgang: 2.606 kr./stk.

Gjald fyrir aukalosun: 9.750 kr./ferð auk 3.349 kr./ílát sem losað er.

Gjald fyrir aukalosun djúpgáma: 9.750 kr./ferð, auk losunargjalds djúpgáma hér að framan.

Gjald vegna reksturs grenndar- og endurvinnslustöðva: 17.000 kr./íbúð. Gjaldi vegna grenndar- og endurvinnslustöðva er ætlað að standa undir kostnaðarhlutdeild Reykjavíkurborgar í rekstri grenndar- og endurvinnslustöðva SORPU bs.

Umsýslugjald vegna breyttrar þjónustu, akstur og skráning íláta, er 4.000 kr. fyrir hvert sinn sem óskað er breytinga.

 

3. gr.

Gjalddagi gjalda skv. 2. gr. er útgáfudagur reiknings og eindagi 30 dögum síðar. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga, séu gjöld ekki greidd á eindaga.

 

4. gr.

Gjöld samkvæmt gjaldskránni má innheimta með fjárnámi. Innheimtudeild Reykjavíkurborgar annast innheimtu gjalda samkvæmt þessari gjaldskrá.

Gjaldskrá þessi er samin og samþykkt af borgarráði Reykjavíkurborgar með heimild í 5. mgr. 59. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, og 2. mgr. 23. gr. laga nr. 55/2003 um með­höndlun úrgangs, og öðlast gildi 1. janúar 2024. Um leið fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 1305/2022.

 

Borgarstjórinn í Reykjavík, 15. nóvember 2023.

 

Dagur B. Eggertsson.


B deild - Útgáfud.: 29. nóvember 2023