Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1602/2021

Nr. 1602/2021 14. desember 2021

GJALDSKRÁ
Slökkviliðs Fjallabyggðar.

I. KAFLI

Almennt.

1. gr.

Verkefni Slökkviliðs Fjallabyggðar (SF) ákvarðast af lögum um brunavarnir nr. 75/2000 með síðari breytingum og reglugerðum settum samkvæmt þeim.

 

2. gr.

SF innheimtir ferða- og uppihaldskostnað í samræmi við reglur ferðakostnaðarnefndar fjármála- og efnahagsráðuneytisins.

 

3. gr.

Slökkviliðsstjóra er heimilt að veita afslátt af eða fella niður gjald vegna starfsemi ef verkefni telst þjóna almannahagsmunum og/eða fellur að markmiðum Slökkviliðs Fjallabyggðar. Veiting afsláttar eða niðurfelling gjalds skal í hverju tilviki rökstudd og skráð.

 

II. KAFLI

Lögbundin verkefni.

4. gr.

Sé ákvæðum 2. mgr. 29. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000 með síðari breytingum beitt skal eigandi eða umráðamaður mannvirkis eða lóðar bera kostnað samkvæmt gjaldskrá af eftirliti með því að farið hafi verið að kröfum um úrbætur samkvæmt 3. mgr. 29. gr. sömu laga. Einnig er heimilt að taka gjald fyrir öryggis- og lokaúttektir samkvæmt 2. mgr. 12. gr. sömu laga.

Fast tímagjald fyrir hverja byrjaða klukkustund útseldrar vinnu hvers starfsmanns er 11.535 kr.

 

5. gr.

Eftirlit og eftirfylgni kröfugerðar.

Fyrir eftirlit og eftirfylgni kröfugerðar skal tekið fast gjald, 11.535 kr., fyrir hverja byrjaða klukku­stund. Þegar um útkall er að ræða utan tilskilins daglegs vinnutíma starfsmanns eru innheimt 46.140 kr., auk 11.535 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma fyrir hvern starfs­mann sem sinnir verkefninu. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. laga um bruna­varnir.

 

6. gr.

Öryggisvaktir á mannvirki.

Innheimt skal fyrir alla vinnu og akstur sem fellur til vegna öryggisvakta eftir að eiganda eða forráðamanni hefur verið tilkynnt ákvörðun slökkviliðsstjóra um að öryggisvakt skuli sett á viðkom­andi húseign. Á það jafnframt við um tilfallandi vaktir vegna tímabundinna viðburða þar sem fullum eldvörnum verður ekki við komið eða á meðan unnið er að úrbótum á þeim. Innheimt er að lágmarki 46.140 kr. fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu, auk 11.535 kr. fyrir hverja byrjaða klukku­stund umfram fjóra tíma. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. og 30. gr. laga um bruna­varnir.

 

7. gr.

Lokun mannvirkis.

Innheimt skal fyrir alla vinnu og akstur sem fellur til vegna lokunar mannvirkis eftir að eiganda eða forráðamanni hefur verið tilkynnt ákvörðun slökkviliðsstjóra um að loka skuli viðkomandi mann­virki. Innheimt er 11.535 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Þegar um útkall er að ræða utan tilskilins daglegs vinnutíma starfsmanns eru inn­­heimtar 46.140 kr., auk 11.535 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. og 32. gr. laga um brunavarnir.

 

8. gr.

Dagsektir.

Innheimt skal fyrir alla vinnu og akstur sem fellur til frá og með ákvörðun slökkviliðsstjóra um dagsektir og þar til kröfum um úrbætur á eldvörnum hefur verið fullnægt. Innheimt er 11.535 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. laga um brunavarnir.

 

9. gr.

Öryggis- og lokaúttektir.

Innheimt er fyrir alla vinnu sem fellur til vegna öryggis- og lokaúttektar, að lágmarki 23.079 kr. Fyrir stærri úttektir skulu að auki innheimtar 11.535 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram tvo tíma fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 12. gr. laga um brunavarnir.

 

10. gr.

Útköll vegna brunaviðvörunarkerfa.

Sé slökkvilið kallað út vegna boða frá sjálfvirku brunaviðvörunarkerfi án þess að eldur sé laus skal innheimt fyrir kostnaði af eftirliti með því að gerðar séu nauðsynlegar ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir endurtekin falsboð.

Innheimt er fast gjald fyrir eina klukkustund, 11.535 kr., fyrir eftirlitið. Leiði það hins vegar til frekara eftirlits, vegna ítrekaðra falsboðana eða alvarlegra ágalla á brunavörnum, fellur það undir eftir­lit og eftirfylgni kröfugerðar, sbr. 6. gr. þessarar gjaldskrár og er þá innheimt samkvæmt því. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. laga um brunavarnir.

 

11. gr.

Umsagnir til opinberra stofnana, fyrirtækja og
einkaaðila vegna leyfisskyldrar starfsemi.

Af umsögnum til annarra opinberra stofnana vegna leyfisskyldrar starfsemi skal tekið fast gjald vegna þriggja klukkustunda vinnu, 40.253 kr., ef skoða þarf viðkomandi stað, en einnar klukku­stundar vinnu, 13.740 kr., ef umsögn er afgreidd án skoðunar á staðnum.

 

III. KAFLI

Önnur verkefni og þjónusta.

12. gr.

Slökkvilið Fjallabyggðar sinnir öðrum verkefnum sem eru ekki skilgreind sem verkefni slökkvi­liðsins samkvæmt lögum. Þessi verkefni falla þó að tilgangi Slökkviliðs Fjallabyggðar sem er að vinna að velferð íbúa sveitarfélagsins, séu þau ekki falin öðrum til úrlausnar í lögum né framkvæmd í samkeppni við aðra aðila. Því ber að taka gjald fyrir veitta þjónustu.

Fast tímagjald fyrir hverja byrjaða klukkustund útseldrar vinnu hvers starfsmanns er 21.114 kr. nema annað sé sérstaklega tekið fram. Hér er tekið tillit til samkeppnissjónarmiða, þjálfunar, virkjunar­tíma og þess að þjónustan er aðgengileg allan sólarhringinn, allt árið. Þess er gætt að gjaldið endur­spegli eftir bestu getu raunkostnað.

 

13. gr.

Ráðgjafarþjónusta.

Falli ráðgjafarvinna undir ákvæði stjórnsýslulaga um upplýsinga- og leiðbeiningarskyldu skal sú vinna undanþegin gjaldi. Ef ráðgjafarvinnan fellur utan ákvæðis d-liðar 1. mgr. 12. gr. laga um bruna­varnir nr. 75/2000 með síðari breytingum, um leiðbeiningar til fyrirtækja og stofnana, er varðar bruna­varnir og eldsvoða vegna viðkomandi starfsemi, er þjónustan gjaldskyld. Innheimt er 21.114 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.

 

14. gr.

Fylgd vegna sprengiefnaflutninga.

Sprengiefnafylgd er ekki áskilin í lögum um brunavarnir heldur getur lögreglustjóri sett fram kröfur um fylgd slökkviliðs við slíkan flutning. Innheimt er að lágmarki 46.409 kr. fyrir hvern starfs­mann sem sinnir verkefninu, auk 11.535 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma.

 

15. gr.

Viðbúnaður utan gildissviðs laganna.

Ef óskað er eftir því að slökkviliðið sinni verkefni sem fellur utan gildissviðs laganna skal slökkvi­liðs­stjóri innheimta fyrir tæki og vinnu samkvæmt gjaldskrá ef ekki liggja fyrir samningar um annað. Innheimta skal að lágmarki 168.909 kr., auk 21.114 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram tvær fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.

 

16. gr.

Upphreinsun.

Upphreinsun sem fellur ekki undir skilgreiningu 3. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000 á meng­unaróhappi er sinnt af slökkviliði þótt ekki sé mælt fyrir um það í lögum um brunavarnir, meðan ekki eru aðrir þar til hæfir aðilar tiltækir til að sinna verkefninu. Er það mat slökkviliðsstjóra hverju sinni hvenær sinna skal slíku tilviki.

Slökkviliðsstjóri skal innheimta samkvæmt gjaldskrá fyrir vinnu við upphreinsun, efni sem notuð eru til upphreinsunar, meðhöndlun og förgun þeirra, ef ekki liggja fyrir samningar um annað. Inn­heimta skal að lágmarki 168.909 kr., auk 21.114 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram tvær fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.

 

17. gr.

Verðmætabjörgun og vatnslekar.

Verðmætabjörgun sem ekki er tilgreind í brunavarnalögum, t.d. vegna vatnsleka, er sinnt af slökkviliði þótt ekki sé mælt fyrir um það í lögum um brunavarnir, meðan ekki eru aðrir þar til hæfir aðilar tiltækir til að sinna verkefninu. Slökkviliðsstjóri skal innheimta gjald fyrir vinnu samkvæmt gjaldskrá ef ekki liggja fyrir samningar um annað. Innheimta skal að lágmarki 168.909 kr., auk 21.114 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram tvær fyrir hvern starfsmann sem sinnir verk­efninu.

 

18. gr.

Tækjaleiga.

Tækjaleiga er ekki fyrirskrifuð í lögum um brunavarnir. Þó er eðlilegt að leigja tæki sem eru þess eðlis að ekki er hægt að leigja þau hjá öðrum aðilum eða ef aðstæður kalla á skjóta notkun sem aðrir aðilar geta ekki boðið.

Verðlagning er ákveðin þannig að hún sé ávallt í það minnsta 35% hærri en leiga á svipuðum eða sambærilegum tækjum sem aðrir geta útvegað til að tryggja samkeppnissjónarmið. Oftast er um að ræða dælu- eða körfubíla, t.d. vegna kvikmyndagerðar eða einhverrar uppákomu sem kallar á slíkan búnað. Verðlagning á tækjum er endurskoðuð árlega.

Tæki og tækjabúnaður Slökkviliðs Fjallabyggðar skulu aðeins notuð af starfsmönnum slökkvi­liðsins. Innheimt er að lágmarki 46.139 kr. fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu, auk 11.535 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma, auk tækjaleigu.

Útleiga tækja Slökkviliðs Fjallabyggðar:

Dælubíll 21.434 kr./klst.
Mannskaps- og tækjabíll 21.434 kr./klst.
Tankbíll 21.434 kr./klst.
Körfubíll 23.698 kr./klst.

 

19. gr.

Annað.

Innheimt skal gjald fyrir aðra vinnu sem ekki er tilgreind hér og ekki er mælt fyrir um í lögum. Innheimt skal fyrir alla vinnu og tæki. Getur þetta átt við um þjónustu vegna sérstakra verkefna eins og kvikmyndatöku, móttöku erlendra þjóðhöfðingja eða sendimanna, menningarviðburða, nám­skeiða o.fl. þess háttar.

 

IV. KAFLI

Innheimta.

20. gr.

Fjallabyggð annast innheimtu gjalda samkvæmt gjaldskrá þessari eða innheimtufyrirtæki sem verkefnið er falið samkvæmt samningi þar að lútandi. Um innheimtu gjalda skal fara eftir viðteknum venjum í innheimtu opinberra stofnana. Gjalddagi gjalda samkvæmt gjaldskránni er útgáfudagur reikn­ings og eindagi er 30 dögum síðar. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga.

Gjöldum sem til eru komin vegna aðgerða til að knýja fram úrbætur samkvæmt lögum, sbr. 6. gr. t.o.m. 11. gr., fylgir lögveð í viðkomandi fasteign eða lóð, sbr. 3. mgr. 12. gr., 3. og 4. mgr. 29. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000 með síðari breytingum.

 

V. KAFLI

Gildistaka og lagastoð.

21. gr.

Gjaldskrá þessi, sem sett er með heimild í lögum nr. 75/2000 með síðari breytingum og reglu­gerðum settum samkvæmt þeim, er samin og samþykkt af bæjarstjórn Fjallabyggðar, með heimild í 1. mgr. 92. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 með síðari breytingum. Gjaldskráin öðlast gildi við birt­ingu í B-deild Stjórnartíðinda.

Jafnframt fellur brott gjaldskrá sama efnis nr. 1356/2020.

Samþykkt í bæjarstjórn Fjallabyggðar 1. desember 2021.

 

Fjallabyggð, 14. desember 2021.

 

Elías Pétursson bæjarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 29. desember 2021