Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 416/2021

Nr. 416/2021 15. apríl 2021

AUGLÝSING
frá ríkisskattstjóra um skil á upplýsingum vegna tekjuársins 2020, sbr. reglugerð nr. 1240/2015, með síðari breytingum.

Tilkynningaskyldar fjármálastofnanir, sbr. 1. og 2. tölul. 2. gr. reglugerðar nr. 1240/2015, um framkvæmd áreiðanleikakannana vegna upplýsingaöflunar á sviði skattamála, skulu skila upplýs­ingum um erlenda reikningshafa, þó ekki bandaríska, til Skattsins vegna ársins 2020 eigi síðar en 31. maí 2021.

  1. Tilkynninga- og upplýsingaskylda tekur til reikninga erlendra aðila, (innlánsreikninga, vörslu­reikninga, vátryggingasamninga að tilteknu peningavirði og lífeyrissamninga).
    Þegar áreiðanleikakönnun skv. reglugerðinni leiðir í ljós að reikningshafi sé erlendur aðili, þ.e. einstaklingur eða lögaðili, skal skila m.a. eftirfarandi upplýsingum:
    a) Nafni, heimilisfangi og erlendri skattkennitölu sérhvers tilgreinds erlends reikningshafa (ein­staklinga og lögaðila) sem á eða fer með tilkynningaskyldan reikning. Ef reiknings­hafi er lögaðili sem ekki telst vera erlendur en áreiðanleikakönnun skv. reglugerð­inni leiðir í ljós að lögaðilinn hefur einn eða fleiri stjórnandi aðila, sem teljast vera erlendir aðilar, skal skila upplýsingum um nafn, heimilisfang og erlenda skattkennitölu sérhvers þess erlenda aðila sem telst vera stjórnandi aðili, sbr. 40. tölul. 2. gr. reglu­gerðar nr. 1240/2015.
    b) Reikningsnúmeri eða ígildi þess.
    c) Reikningsstöðu í árslok 2020. Hafi reikningi verið lokað á árinu 2020 skal staða reikn­ings vera núll.
  2. Til viðbótar við framangreindar upplýsingar skal einnig skila eftirfarandi upplýsingum:
    a) Sé um innlánsreikninga að ræða skal skila upplýsingum um heildarfjárhæð greiddra eða tekjufærðra vaxta á árinu 2020.
    b) Sé um vörslureikning að ræða skal skila upplýsingum um heildarfjárhæð greiddra vaxta, arðs og annarra tekna, þ.m.t. sölu- og gengishagnað, sem myndast hefur vegna ávöxtunar þeirra eigna sem viðkomandi vörslureikningur hefur að geyma og hafa verið færðar sem tekjur inn á reikninginn (eða með tilliti til reikningsins) á árinu 2020.
  3. Sé reikningshafi óvirkur lögaðili sem ekki er fjármálastofnun, sbr. 42. tölul. 2. gr. reglu­gerðar nr. 1240/2015, skal upplýsa um nöfn, heimilisföng og erlendar skattkennitölur þeirra eigenda lögaðilans sem teljast erlendir aðilar.
  4. Hafi fjármálastofnanir, sem falla undir tilkynningaskyldu, enga reikninga í eigu eða umráðum erlendra aðila skulu þær engu að síður staðfesta, í samræmi við skilalýsingu, að svo sé með því að skila núllskýrslum til Skattsins.

 

Ef skilað er röngum eða ófullnægjandi upplýsingum til Skattsins eða ef þær eru á annan hátt ekki samkvæmt skilalýsingu, skal tilkynningaskylda fjármálastofnunin eftir atvikum greiða þann kostnað sem af því kann að hljótast.

Upplýsingunum skal skilað rafrænt samkvæmt lýsingu á vef Skattsins á slóðinni:

https://www.rsk.is/fagadilar/hugbunadarhus/crs/.

Allar fyrirspurnir um ofangreind gagnaskil má senda á netfangið: [email protected].

 

Auglýsing þessi er birt skv. 92., 93. og 94. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, sbr. 12. gr. reglu­gerðar nr. 1240/2015, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

 

Reykjavík, 15. apríl 2021.

 

Snorri Olsen ríkisskattstjóri.


B deild - Útgáfud.: 19. apríl 2021