Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 896/2017

Nr. 896/2017 9. október 2017

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 989/2016, um skipsbúnað.

1. gr.

1. gr. reglugerðarinnar orðast svo, ásamt fyrirsögn:

Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi eftirtaldar gerðir Evrópusambandsins:

  1. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/90/ESB frá 23. júlí 2014, um búnað um borð í skipum og niðurfellingu á tilskipun ráðsins 96/98/EB (tilskipunin), skv. ákvörðun sam­eigin­legu EES-nefndarinnar nr. 163/2016 frá 26. ágúst 2016. Tilskipunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 52, 22. september 2014, bls. 647-686.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/306 frá 6 febrúar 2017 um tilgreiningu hönnunar-, smíða- og nothæfiskrafna sem og prófunarstaðla fyrir búnað um borð í skipum, skv. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 138/2017 frá 7. júlí 2017. Tilskipunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 48, 3. ágúst 2017, bls. 347-493.

2. gr.

Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 4. mgr. 1. gr. laga nr. 47/2003, um eftirlit með skipum, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 9. október 2017.

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Björn Freyr Björnsson.


B deild - Útgáfud.: 24. október 2017