Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1174/2016

Nr. 1174/2016 21. desember 2016

GJALDSKRÁ
fyrir kattahald í Akraneskaupstað.

1. gr.

Eigendur katta á Akranesi skulu greiða bæjarsjóði skráningargjald samkvæmt gjaldskrá þessari, sem er ætlað að standa undir kostnaði við framkvæmd samþykktar um kattahald á Akranesi nr. 480/2011.

2. gr.

Við umsókn um skráningu kattar skal innheimta gjald sem hér segir:

a) Skráning kr. 4.030
b) Af skráðum köttum skal innheimta árlegt eftirlitsgjald sem hér segir:  
  Fyrir hvern kött kr. 5.755
  Ekki skal innheimta eftirlitsgjald sama ár og köttur er skráður.  

Fyrir hverja handsömun skráðs kattar, sem er á flækingi og veldur ónæði skal eigandi hans greiða kr. 5.755 til að fá köttinn afhentan aftur.

Að auki skal greiða þann kostnað sem leggst á vegna dvalar eða geymslu viðkomandi kattar. Óskráða ketti má ekki afhenda fyrr en að lokinni skráningu og greiðslu skráningargjalds og annars áfallins kostnaðar.

Ef eigandi gefur sig ekki fram innan sjö sólarhringa og greiðir handsömunargjaldið og annan áfallinn kostnað er heimilt að aflífa köttinn, sbr. 8. gr. samþykktar um kattahald á Akranesi.

3. gr.

Gjalddagi skv. 2. gr. b) er 1. mars og eindagi 1. apríl. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga.

Um innheimtu gjalda fer samkvæmt ákvæðum laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998, með síðari breytingum. Gjöld samkvæmt gjaldskránni má innheimta með fjárnámi.

Við afskráningu kattar ber að endurgreiða árlegt gjald í réttu hlutfalli við þá mánuði sem eftir lifa af árinu.

4. gr.

Gjaldskrá þessi er samþykkt af bæjarstjórn Akraneskaupstaðar með vísan til 10. gr. samþykktar um kattahald á Akranesi og staðfestist hér með samkvæmt 25. gr. laga nr. 7/1998 um holl­ustu­hætti og mengunarvarnir, til að öðlast gildi þegar við birtingu.

Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá fyrir kattahald í Akraneskaupstað nr. 1294/2015.

Með gjaldskrá þessari hafa gjöld verið hækkuð um 3,2% í samræmi við almennar gjaldskrár­hækkanir bæjarfélagsins fyrir árið 2017, samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar Akranes­kaupstaðar frá 13. desember 2016.

Gjaldskráin öðlast þegar gildi.

Akranesi, 21. desember 2016.

Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 27. desember 2016