1. gr.
7. gr. reglnanna orðast svo:
Náms- og matsnefndir.
Innan heilbrigðisvísindasviðs skulu náms- og matsnefndir starfa innan hverrar deildar. Námsnefnd gerir tillögur til deildarfundar um breytingar á náms- og kennsluskrá. Námsnefndir skulu vera skipaðar deildarformanni og minnst tveimur fulltrúum fastráðinna kennara sem valdir eru til tveggja ára í senn af viðkomandi deildarfundi og einum fulltrúa nemenda, sem valinn er af félagasamtökum þeirra til eins árs í senn. Námsnefnd velur sér formann til eins árs í senn og skiptir með sér verkum. Matsnefndir skulu gera tillögur um mat á fyrra námi og fyrirhuguðu skiptinámi nemenda viðkomandi deildar. Matsnefndir skulu minnst vera skipaðar þremur fulltrúum fastráðinna kennara sem valdir eru til tveggja ára í senn af viðkomandi deildarfundi og einum fulltrúa nemenda, sem valinn er af félagasamtökum þeirra til eins árs í senn.
2. gr.
Reglur þessar, sem samþykktar voru í háskólaráði, eru settar á grundvelli laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.
Háskólanum á Akureyri, 28. október 2021.
Eyjólfur Guðmundsson rektor.
|