1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í II. kafla I. viðauka og XII. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. og II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 51/2025 frá 14. mars 2025, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1451 frá 24. maí 2024 um breytingu á II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008 að því er varðar matvælaaukefnin vínsýru (L(+)-) (E 334), natríumtartrat (E 335), kalíumtartrat (E 336), natríumkalíumtartrat (E 337) og kalsíumtartrat (E 354). Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 28 frá 30. apríl 2025, bls. 561.
2. gr.
Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar hafa eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995.
3. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a – 30. gr. e og 31. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a. laga um matvæli, nr. 93/1995.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 5. maí 2025.
Hanna Katrín Friðriksson.
|