1. gr.
Hvarvetna þar sem heitið „Lottó 5/40“ kemur fyrir í reglugerðinni kemur: Lottó 5/42.
2. gr.
Hvarvetna þar sem „1-40“ kemur fyrir í reglugerðinni kemur: 1-42.
3. gr.
Í stað „kr. 130“ í 1. málsl. 1. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar kemur: kr. 150.
4. gr.
Í stað orðanna „með 40 kúlum“ í 4. málsl. 2. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar kemur: með 42 kúlum.
5. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 9. gr. reglugerðarinnar:
- Í stað „57%“ í 1. og 2. málsl. a-liðar kemur: 54,5%.
- Í stað 14,5% í c-lið kemur: 13,0%.
- Við bætist nýr stafliður sem verður d-liður og orðast svo:
5,0% skiptast jafnt á milli þeirra sem hafa 3 aðaltölur réttar og auk þess rétta bónustölu.
- d-liður, sem verður e-liður, orðast svo:
17,0% skiptast jafnt á milli þeirra sem hafa 3 aðaltölur réttar.
- e-liður, sem verður f-liður, orðast svo:
8,0% skiptast jafnt á milli þeirra sem hafa 2 aðaltölur réttar og auk þess rétta bónustölu.
6. gr.
1. tölul. 13. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
1. Lottó 5/42:
Fimm réttar aðaltölur |
1:850.668 |
Fjórar réttar aðaltölur og bónustala |
1:170.134 |
Fjórar réttar aðaltölur |
1:4.598 |
Þrjár réttar aðaltölur og bónustala |
1:2.363 |
Þrjár réttar aðaltölur |
1:128 |
Tvær réttar aðaltölur og bónustala |
1:135 |
7. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í lögum um talnagetraunir nr. 26/1986, öðlast gildi 26. júní 2022.
Dómsmálaráðuneytinu, 27. maí 2022.
Jón Gunnarsson.
|