Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1541/2022

Nr. 1541/2022 14. desember 2022

GJALDSKRÁ
fyrir kattahald í Akraneskaupstað.

1. gr.

Eigendur katta á Akranesi skulu greiða bæjarsjóði skráningargjald samkvæmt gjaldskrá þessari, sem er ætlað að standa undir kostnaði við framkvæmd samþykktar um kattahald á Akranesi nr. 781/2010.

 

2. gr.

Við umsókn um skráningu kattar skal innheimta gjald sem hér segir:

a) Skráning kr. 4.900
b) Af skráðum köttum skal innheimta árlegt eftirlitsgjald sem hér segir:    
  Fyrir hvern kött kr. 7.050

Ekki skal innheimta eftirlitsgjald sama ár og köttur er skráður.

Fyrir hverja handsömun skráðs kattar, sem er á flækingi og veldur ónæði skal eigandi hans greiða kr. 7.050 til að fá köttinn afhentan aftur.

Að auki skal greiða þann kostnað sem leggst á vegna dvalar eða geymslu viðkomandi kattar. Óskráða ketti má ekki afhenda fyrr en að lokinni skráningu og greiðslu skráningargjalds og annars áfallins kostnaðar.

Ef eigandi gefur sig ekki fram innan sjö sólarhringa og greiðir handsömunargjaldið og annan áfallinn kostnað er heimilt að aflífa köttinn, sbr. 8. gr. samþykktar um kattahald á Akranesi.

 

3. gr.

Gjalddagi skv. b-lið 2. gr. er 1. febrúar og eindagi 1. mars. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga.

Um innheimtu gjalda fer samkvæmt ákvæðum laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998, með síðari breytingum. Gjöld samkvæmt gjaldskránni má innheimta með fjárnámi.

Við afskráningu kattar ber að endurgreiða árlegt gjald í réttu hlutfalli við þá mánuði sem eftir eru af árinu.

 

4. gr.

Gjaldskrá þessi er samþykkt af bæjarstjórn Akraness með vísan til 10. gr. samþykktar um katta­hald á Akranesi og staðfestist hér með samkvæmt 59. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og meng­unarvarnir, til að öðlast gildi þegar við birtingu.

Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá fyrir kattahald í Akraneskaupstað nr. 1660/2021.

Gjaldskráin var samþykkt af bæjarstjórn Akraneskaupstaðar 13. desember 2022.

Gjaldskráin öðlast þegar gildi.

 

Akranesi, 14. desember 2022.

 

Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 29. desember 2022