Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 423/2025

Nr. 423/2025 4. apríl 2025

REGLUGERÐ
um (1.) breytingu á reglugerð nr. 124/2024 um gildistöku framseldrar reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1644 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625 að því er varðar sértækar kröfur um framkvæmd opinbers eftirlits varðandi notkun á lyfjafræðilega virkum efnum sem eru leyfð sem dýralyf eða sem fóðuraukefni ásamt bönnuðum eða óleyfilegum lyfjafræðilega virkum efnum og leifum af þeim.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka samningsins, bókun 1 við samn­inginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 10/2025 frá 7. febrúar 2025, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2562 frá 3. júní 2024 um breyt­ingu á framseldri reglugerð (ESB) 2022/1644 að því er varðar tilteknar viðmiðanir við val á sýnum. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 17 frá 20. mars 2025, bls. 468.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995, 29. gr. laga um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993, 19. gr. laga um innflutning dýra, nr. 54/1990, 17. gr. laga um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, nr. 66/1998, og 74. gr. laga um dýralyf, nr. 14/2022.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Atvinnuvegaráðuneytinu, 4. apríl 2025.

 

Hanna Katrín Friðriksson.

Svava Pétursdóttir.


B deild - Útgáfud.: 15. apríl 2025