Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 541/2017

Nr. 541/2017 2. júní 2017

REGLUR
um breytingu á reglum nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 113. gr. reglnanna:

  1. 4. málsl. 7. mgr. fellur brott.
  2. Á eftir núverandi 6. málsl. 7. mgr. bætist við nýr málsliður, svohljóðandi: Nánar er kveðið á um þetta í námsskipunarreglum einstakra námsleiða deildarinnar.
  3. Í lok 2. málsl. 8. mgr. bætast við orðin: og a.m.k. 10 eininga lokaverkefni.

2. gr.

Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar í samræmi við lög nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 2. júní 2017.

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.


B deild - Útgáfud.: 19. júní 2017