Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 976/2015

Nr. 976/2015 16. október 2015

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 340/2015 um gagnatengingaþjónustu í samevrópska loftrýminu.

1. gr.

Innleiðing.

3. gr. reglugerðarinnar breytist og orðast svo:

Með reglugerð þessari öðlast gildi eftirtaldar reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar (EB), með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins og bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 29/2009 frá 16. janúar 2009 um kröfur um gagnatengingaþjónustu fyrir samevrópska loftrýmið, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndar­innar nr. 85 frá 3. júlí 2009. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 26 frá 20. maí 2010, bls. 123.
  2. Framkvæmdareglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/310 frá 26. febrúar 2015 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 29/2009 um kröfur um gagnatengingaþjónustu fyrir sam­evrópska loftrýmið og um niðurfellingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 441/2014, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 190/2015 frá 10. júlí 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 55 frá 17. september 2015, bls. 388.

2. gr.

Frestun á framkvæmd reglugerðar nr. 340/2015.

3. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og orðast svo:

Reglugerðin kemur til framkvæmda 5. febrúar 2018.

3. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 57. gr. a, 5. mgr. 75. gr. og 76. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Innanríkisráðuneytinu, 16. október 2015.

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Gunnar Örn Indriðason.


B deild - Útgáfud.: 30. október 2015