1. gr.
Gjald fyrir útselda vinnu sérfræðings.
Náttúrufræðistofnun Íslands innheimtir gjald samkvæmt gjaldskrá þessari fyrir rannsóknir og ráðgjöf sem falla undir 4. gr. laga nr. 60/1992 um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur samkvæmt 5. gr. laga nr. 60/1992.
Gjald fyrir hverja klukkustund skal vera eftirfarandi án vsk:
a) |
Fyrir sérfræðinga I |
kr. 13.895 |
b) |
Fyrir sérfræðinga II |
kr. 12.420 |
c) |
Fyrir sérfræðinga III |
kr. 10.945 |
2. gr.
Skordýra- og sveppagreiningar.
Náttúrufræðistofnun Íslands innheimtir gjald fyrir greiningu á skordýrum og sveppum samkvæmt 5. gr. laga nr. 60/1992.
Gjald fyrir skordýragreiningu til almennings skal vera kr. 2.640.
Gjald fyrir sveppagreiningu til almennings skal vera kr. 5.260.
3. gr.
Útgáfa rita.
Náttúrufræðistofnun Íslands innheimtir gjald fyrir útgáfu rita samkvæmt 5. gr. laga nr. 60/1992.
Gjald fyrir hvert rit skal vera eftirfarandi, án vsk:
a) |
Fyrir fjölrit Náttúrufræðistofnunar |
kr. 1.700 |
b) |
Fyrir Blika |
kr. 2.000 |
4. gr.
Lagastoð og gildistaka.
Gjaldskrá þessi er sett samkvæmt heimild í 5. gr. laga nr. 60/1992 um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur. Gjaldskráin öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi gjaldskrá nr. 514/2014 fyrir þjónustu Náttúrufræðistofnunar Íslands.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 30. mars 2016.
F. h. r.
Sigríður Auður Arnardóttir.
Stefán Guðmundsson.
|