1. gr.
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar skal, skv. 5. gr. samþykktar nr. 582/2008 um meðhöndlun úrgangs í Hvalfjarðarsveit, innheimta gjald fyrir meðhöndlun og förgun úrgangs í sveitarfélaginu.
2. gr.
Gjöldin greiðast árlega sem hér greinir:
|
Sumarhús (frístundahús) |
13.000 kr. í sorphirðugjald |
|
Íbúðarhúsnæði |
31.000 kr. í sorphirðugjald |
|
Íbúðir og sumarhús |
3.500 kr. í sorpurðunargjald |
Gjöld þessi miðast við vísitölu neysluverðs í desember 2017 og uppfærast samkvæmt breytingum í janúar ár hvert, fyrst í janúar 2019 og skulu gilda þannig næsta ár.
3. gr.
Sé óskað eftir fleiri ílátum við íbúðarhús skal greiða fyrir ílát og aukaurðun fyrsta árið, þar eftir aukaurðunargjald:
|
Lífrænt |
11.100 kr. |
|
Flokkað |
11.100 kr. |
|
Óflokkað |
11.100 kr. |
|
Ker (aðeins í dreifbýli) |
33.100 kr. |
4. gr.
Ef sorpílát skemmast eða hverfa vegna þess að það hefur ekki verið gengið nægilega vel frá tunnum t.d. undir skýli eða að festingar vantar verður innheimt samkvæmt eftirfarandi:
|
Tunna 140 l |
8.000 kr. |
|
Tunnur 240/360 l |
8.000 kr. |
|
Ker 660 l |
30.000 kr. |
5. gr.
Gámastæði verða í nágrenni deiliskipulagðra frístundasvæða með yfir 20 bústöðum skv. 6. gr. reglugerðar um meðhöndlun úrgangs nr. 737/2003.
Grenndarstöð verður einnig staðsett við Melahverfi.
6. gr.
Sorphirðugjöld eru innheimt með fasteignagjöldum. Gjaldagar fasteignagjalda verða 8 talsins á mánaðarfresti, 15. hvers mánaðar, í febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst og september. Fyrsti gjalddagi 15. febrúar.
7. gr.
Gjaldskrá þessi er samin og samþykkt af sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar með stoð í 59. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur brott gjaldskrá sama efnis nr. 1144/2016.
Samþykkt í sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar, 28. nóvember 2017.
Skúli Þórðarson sveitarstjóri.
|