Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1220/2020

Nr. 1220/2020 1. desember 2020

AUGLÝSING
um veiðigjald 2021.

Veiðigjald á landaðan afla frá og með 1. janúar til 31. desember 2021 nemur í krónum á hvert kílógramm óslægðs afla þeim fjárhæðum sem hér segir:

  Grálúða 23,67 
  Djúpkarfi 18,32 
  Gulllax  6,92
  Hlýri 12,08 
  Karfi/gullkarfi 11,83 
  Keila  5,12
  Kolmunni  0,99
  Langa  8,63
  Langlúra 10,74 
  Makríll  3,17
  Síld  2,68
  Skarkoli 24,97 
  Skötuselur  3,82
  Sólkoli/þykkvalúra 33,59 
  Steinbítur 13,66 
  Ufsi 10,06 
  Ýsa 16,45 
  Þorskur 16,63 

 

Veiðigjald fyrir hvern hval er sem hér segir: i) langreyður 56.872 kr., ii) hrefna 9.100 kr. Veiðigjald á sjávargróður er sem hér segir: 569 kr. á hvert landað tonn klóþangs, hrossaþara og stórþara (blautvigt).

Auglýsing þessi, sem sett er að fenginni tillögu embættis ríkisskattstjóra skv. 4. gr. laga um veiðigjald nr. 145/2018, sbr. einnig 8. gr. sömu laga, öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 1. desember 2020.

 

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Arnór Snæbjörnsson.


B deild - Útgáfud.: 8. desember 2020