Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 519/2020

Nr. 519/2020 20. maí 2020

REGLUGERÐ
um (37.) breytingu á reglugerð nr. 672/2008 um hámarksgildi varnarefnaleifa í matvælum og fóðri.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í II. kafla, I. viðauka og XII. kafla, II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. og II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndar­innar nr. 52/2020, frá 30. apríl 2020, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1559 frá 16. september 2019 um breytingu á II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 hvað varðar hámarksgildi leifa af sýflúfenamíð, fenbúkónasól, flúkvinkónasól og tembótríón í eða á ákveðnum vörum. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 31, frá 14. maí 2020, bls. 39.

 

2. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

 

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a – 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

 

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 20. maí 2020.

 

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 29. maí 2020