Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 718/2019

Nr. 718/2019 8. ágúst 2019

AUGLÝSING
um samþykkt breytingar á deiliskipulagi í Mosfellsbæ.

Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur samþykkt breytingu á deiliskipulagi sem hér segir:

Asparlundur 11.
Breytingin felst í að í stað 200 m² íbúðarhúss (1 hæð og ris) verður heimilt að reisa allt að 330 m² parhús á einni hæð. Byggingarreitur verður dreginn inn vestanmegin um 2 m og stækkaður til norðurs um 2 m. Nýtingarhlutfall fer úr 0,19 í 0,32.

Ofangreind breyting hefur hlotið meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi.

F.h. Mosfellsbæjar, 8. ágúst 2019,

Ólafur Melsted skipulagsfulltrúi.


B deild - Útgáfud.: 9. ágúst 2019