Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 632/2023

Nr. 632/2023 5. júní 2023

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Moldóvu, nr. 291/2015, ásamt síðari breytingum.

1. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:

  1.5 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/2085 frá 27. október 2022 um breytingu á ákvörðun 2010/573/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn stjórninni á Transnistríusvæðinu í Lýðveld­inu Moldóvu, sbr. fylgiskjal 1.5.
  2. Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/891 frá 28. apríl 2023 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða sem grafa undan stöðugleika í Lýðveldinu Moldóvu, sbr. fylgiskjal 2.
  2.1 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/1047 frá 30. maí 2023 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2023/891 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða sem grafa undan stöðugleika í Lýðveldinu Moldóvu, sbr. fylgiskjal 2.1.
 

3.

Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/888 frá 28. apríl 2023 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða sem grafa undan stöðugleika í Lýðveldinu Moldóvu, sbr. fylgiskjal 3.

  3.1 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2023/1045 frá 30. maí 2023 um framkvæmd reglu­gerðar (ESB) 2023/888 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða sem grafa undan stöðugleika í Lýðveldinu Moldóvu, sbr. fylgiskjal 3.1.

 

2. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þving­unaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

 

Utanríkisráðuneytinu, 5. júní 2023.

 

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.

Martin Eyjólfsson.

 

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 20. júní 2023