Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 906/2023

Nr. 906/2023 21. ágúst 2023

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Gínea-Bissaú, nr. 567/2014, ásamt síðari breytingum.

1. gr.

Almenn ákvæði.

2. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Í þeim gerðum sem vitnað er til í 2. gr., og öðrum ákvæðum reglugerðar þessarar, kemur fram um hvaða ályktun er að ræða, hverjar þær þving­unar­aðgerðir sem koma eiga til framkvæmda eru og gegn hverjum þær beinast, sbr. 2. mgr. 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023.

 

2. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar:

  1.5 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/1335 frá 28. júlí 2022 um breytingu á ákvörðun 2012/285/SSUÖ um þvingunaraðgerðir sem er beint gegn tilteknum einstaklingum, rekstrar­einingum og stofnunum sem ógna friði, öryggi eða stöðugleika í Lýðveldinu Gínea-Bissaú, sbr. fylgiskjal 1.5.
  1.6 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/1598 frá 28. júlí 2023 um breytingu á ákvörðun 2012/285/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Gínea-Bissaú, sbr. fylgiskjal 1.6.
  2.5 Reglugerð ráðsins (ESB) 2022/1329 frá 28. júlí 2022 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 377/2012 um þvingunaraðgerðir sem er beint gegn tilteknum einstaklingum, rekstrar­einingum og stofnunum sem ógna friði, öryggi eða stöðugleika í Lýðveldinu Gínea-Bissaú, sbr. fylgiskjal 2.5.
  2.6 Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/1593 frá 28. júlí 2023 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 377/2012 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Gínea-Bissaú, fylgiskjal 2.6.

2. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þving­unaraðgerða, sem vísað er til í framangreindum gerðum, eru birtir á vefsetri öryggisráðs Sam­einuðu þjóðanna eða Stjórnartíðinda Evrópusambandsins, eftir því sem við á. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á vefsetri öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna eða Stjórnar­tíðinda Evrópusambandsins, sbr. 3. mgr. 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þving­unar­aðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023.

 

3. gr.

Viðurlög.

6. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Hver sá sem brýtur gegn þvingunaraðgerðum skv. lögum nr. 68/2023 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna skal sæta viðurlögum skv. 37. gr. laganna, nema þyngri viðurlög liggi við samkvæmt öðrum lögum.

 

4. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunar­aðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023, öðlast þegar gildi.

 

Utanríkisráðuneytinu, 21. ágúst 2023.

 

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.

Martin Eyjólfsson.

 

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 5. september 2023