1. gr.
Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar er heimilt að leggja á árlegt sorphirðugjald (urðunar- og sorphreinsigjald).
2. gr.
Sorphirðugjaldið er lagt á hverja íbúð í lögsagnarumdæmi Dalvíkurbyggðar og er það innheimt með fasteignagjöldum eða á annan hátt eftir því sem við verður komið og þá með sömu gjalddögum og fasteignagjöld. Auk þess er lagt hálft íbúðargjald á frístundahús sem innheimt er með sama hætti.
Búrekstraraðilum er gefinn kostur á að greiða sérstaklega fyrir ílát undir búrekstrarúrgang, flutning hans og förgun samkvæmt gjaldskrá þessari. Þá er lagt á búfjáreigendur sérstakt gjald til að standa straum af kostnaði við förgun dýraleifa og tekur gjaldið mið af því að það standi undir kostnaði við förgunina.
3. gr.
Sorphirðugjaldið og fyrirkomulag móttöku á endurvinnslustöð á Dalvík er sem hér greinir:
a) |
Íbúðir, sorphirðugjald, kr. 46.162. |
b) |
Frístundahús, sorphirðugjald, kr. 23.081. |
c) |
Í upphafi árs er úthlutað einu klippikorti á íbúð (16 klipp) og á sumarhús (8 klipp) sem afhent eru í þjónustuveri Ráðhússins á Dalvík. Notendur þurfa að framvísa klippikortinu til að komast inn á endurvinnslustöðina á Dalvík. Leigjendur verða að nálgast kortin hjá leigusala eða að kaupa sér kort. |
d) |
Klippt verður fyrir gjaldskyldan úrgang á meðan tekið verður á móti ógjaldskyldum úrgangi án greiðslu. Skylt er að hafa klippikortið meðferðis þegar farið er á endurvinnslustöðina hvort sem um gjaldskyldan eða ógjaldskyldan úrgang er að ræða. |
e) |
Hvert klipp er fyrir 0,25 m³ af úrgangi sem samsvarar 240 l heimilistunnu. Ef kort klárast þá verður hægt að kaupa aukakort á kr. 12.632. |
f) |
Rekstraraðilar geta keypt klippikort í þjónustuveri á kr. 30.738 með 16 klipp fyrir 0,25 m³ af úrgangi alls 4 m³. |
g) |
Ekki er tekið gjald fyrir móttöku á flokkuðum úrgangi sem ber úrvinnslugjald frá íbúðum og sumarhúsum, svo sem pappaumbúðum, plastumbúðum, hjólbörðum, ýmsum spilliefnum og úreltum ökutækjum. |
4. gr.
Úrvinnslugjald vegna úrgangs frá búrekstri og dýraleifa er eftirfarandi:
- 240 lítra tunna fyrir almennan úrgang, losuð tvisvar í mánuði, 36.935 kr./ári.
- 360 lítra tunna fyrir almennan úrgang losuð tvisvar í mánuði, 49.248 kr./ári.
- 240 lítra endurvinnslutunna losuð einu sinni í mánuði, 18.290 kr./ári.
- Gjald fyrir eyðingu dýraleifa er lagt á heildarfjölda hverrar búfjártegundar samkvæmt búfjáreftirlitsskýrslu og er eftirfarandi:
Nautgripir |
1.127 kr./grip |
Sauðfé og geitfé |
207 kr./grip |
Hross |
442 kr./grip |
Grísir |
732 kr./grip |
5. gr.
Gjaldskrá þessi, sem samin er og samþykkt af sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar 24. nóvember 2020, er sett með stoð í 8. gr. samþykktar um sorphirðu sveitafélaga á Norðurlandi eystra nr. 541/2000, lögum nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs og ákvæði 59. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998.
Í samræmi við 8. gr. samþykktar um sorphirðu sveitarfélaga á Norðurlandi eystra nr. 541/2000 veitti Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra umsögn um gjaldskrána þann 21. desember 2020.
Gjaldskráin öðlast gildi 1. janúar 2021, en um leið fellur eldri gjaldskrá um sorphirðu í Dalvíkurbyggð nr. 1319/2019 úr gildi.
Samþykkt á fundi umhverfisráðs 2. október 2020.
Dalvíkurbyggð, 23. desember 2020.
Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri.
|