Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1019/2015

Nr. 1019/2015 12. nóvember 2015

AUGLÝSING
(I) um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta.

1. gr.

Með vísan til 2. og 3. gr. reglugerðar nr. 605 frá 3. júlí 2015 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2015/2016 staðfestir ráðuneytið sérstök skilyrði vegna úthlutunar aflaheimilda í eftirfarandi sveitarfélögum:

Sveitarfélagið Ölfus.

Ákvæði reglugerðar nr. 605 frá 3. júlí 2015 gilda um úthlutun byggðakvóta Þorlákshafnar með eftirfarandi viðauka/breytingum:

Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðu­neytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, á þann veg að 35% byggða­kvóta Þorlákshafnar skal skipt jafnt milli þeirra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr. reglu­gerðar­innar en 65% byggðakvótans í Þorlákshöfn skal skipt hlutfallslega á þau sömu skip, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið, á tímabilinu 1. september 2014 til 31. ágúst 2015.

Fjarðabyggð.

Ákvæði reglugerðar nr. 605 frá 3. júlí 2015 gilda um úthlutun byggðakvóta Mjóafjarðar og Stöðvarfjarðar með eftirfarandi viðauka/breytingum:

  a) Ákvæði b-liðar 1. gr. breytist og verður: Eru skráð í viðkomandi byggðarlagi 29. október 2015.
  b) Ákvæði 1. málsl. c-liðar 1. gr. breytist og verður: Eru í eigu eða leigu einstaklinga eða lög­aðila með heimilisfang í sveitarfélaginu 29. október 2015.
  c) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, á þann veg að 37% byggðakvóta í Fjarðabyggð skal skipt jafnt milli þeirra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr. reglu­gerðarinnar en 63% byggðakvótans í Fjarðabyggð skal skipt hlut­falls­lega á þau sömu skip, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorsk­ígildis­stuðla, í þorsk­ígildum talið innan viðkomandi byggðarlags á tímabilinu 1. sept­ember 2014 til 31. ágúst 2015.
  d) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa, þeim afla sem telja á til byggðakvóta, innan viðkomandi byggðarlags til vinnslu innan sveitar­félagsins á tímabilinu frá 1. september 2015 til 31. ágúst 2016.

2. gr.

Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 12. nóvember 2015.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Baldur P. Erlingsson.

Hinrik Greipsson.


B deild - Útgáfud.: 12. nóvember 2015