1. gr.
Bönnuð er netaveiði göngusilungs í sjó árið 2017 frá 16. júní til og með 10. ágúst og árið 2018 frá 10. júní til og með 10. ágúst með strandlengju í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu frá Suðurflös á Akranesi í suðri að friðunarsvæði Hítarár í norðri.
2. gr.
Brot á ákvæðum þessara reglna varðar sektum samkvæmt lögum nr. 61/2006 um lax- og silungsveiði með síðari breytingum. Með mál út af brotum skal fara að hætti sakamála.
3. gr.
Reglur þessar eru settar samkvæmt heimild í 5. mgr. 15. gr. laga nr. 61/2006 um lax- og silungsveiði með síðari breytingum og öðlast þegar gildi. Koma þær í stað reglna nr. 400/2015 um sama efni.
4. gr.
Til viðbótar þeim takmörkunum, sem hér eru settar, skal vakin athygli á því að allar netaveiðar á silungi í sjó eru óheimilar frá kl. 22.00 á föstudagskvöldi til kl. 10.00 á þriðjudagsmorgni á löglegum veiðitíma yfir sumarið samkvæmt 2. mgr. 18. gr. ofangreindra laga.
Fiskistofu, 16. júní 2017.
Guðni Magnús Eiríksson, sviðsstjóri lax- og silungsveiðisviðs.
Björn Jónsson lögfræðingur.
|