Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 683/2006

Nr. 683/2006 4. ágúst 2006
AUGLÝSING
um veiðigjald og þorskígildi.

1. gr.

Fiskistofa leggur á veiðigjald. Á fiskveiðiárinu 1. september 2006 til 31. ágúst 2007 skulu eigendur skipa greiða kr. 0,91 fyrir hvert þorskígildiskílógramm úthlutaðra veiðiheimilda eða landaðs afla einstakra tegunda.

2. gr.

Þorskígildisstuðlar fyrir fiskveiðiárið 1. september 2006 til 31. ágúst 2007 eru þessir:

Tegund

Stuðlar

Tegund

Stuðlar

Tegund

Stuðlar

Þorskur

1,00

Loðna

0,10

Öfugkjafta

0,35

Ýsa

0,81

Humar (slitinn)

6,42

Makríll

0,17

Ufsi

0,42

Innfjarðarækja

0,36

Geirnyt

0,11

Karfi

0,69

Úthafsrækja

0,67

Smokkfiskur

0,35

Langa

0,60

Litli karfi

0,38

Beitukóngur

0,28

Keila

0,37

Lýsa

0,44

Kúskel

0,02

Steinbítur

0,71

Blálanga

0,55

Búrfiskur

1,38

Skötuselur

1,80

Sléttilanghali

0,17

Snarphali

0,20

Grálúða

1,98

Tindaskata

0,12

Náskata

0,18

Skarkoli

1,18

Hlýri

0,74

Sandhverfa

3,58

Sólkoli

1,43

Skata

0,60

Urrari

0,36

Langlúra

0,59

Háfur

0,96

Stinglax

0,41

Sandkoli

0,48

Hákarl

0,03

Hvítskata

0,17

Skrápflúra

0,46

Hámeri

4,10

Sæbjúga

0,25

Annar flatfiskur

0,65

Gulllax

0,44

Rauðmagi

0,14

Síld

0,13

Lúða

3,36

Grásleppa

0,67

Þorskígildisstuðlar fyrir stofna sem úthlutað er úr miðað við almanaksárið 2006 eru eftirfarandi:

Tegund

Stuðlar

Norsk-íslensk síld

0,23

Norður-Íshafsþorskur

1,00

Kolmunni

0,05

Úthafskarfi

0,73

Rækja á Flæmingjagrunni

0,75

Ofangreindir stuðlar gilda við álagningu veiðigjalds, sbr. 22. gr. laga nr. 38/1990 um stjórn fiskveiða með síðari breytingum.

3. gr.

Auglýsing þessi er gefin út með stoð í lögum nr. 38, 15. maí 1990, um stjórn fiskveiða með síðari breytingum. Auglýsingin öðlast þegar gildi, kemur til framkvæmda 1. september 2006 og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegsráðuneytinu, 4. ágúst 2006.

F. h. r.
Jón B. Jónasson.

Arndís Á. Steinþórsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 8. ágúst 2006