1. gr. Gjaldskrá þessi gildir fyrir orkuveitusvæði Bláskógaveitu frá og með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda. Öll verð í gjaldskrá þessari eru án virðisaukaskatts. 2. gr. Afnotagjöld af heitavatninu eru sem segir: Daggjald/mælagjald/hemlagjald | Stærð mælis/hemils | DN 15 mm | 33,39 | kr./dag | | Stærð mælis/hemils | DN 20 mm | 34,25 | kr./dag | | Stærð mælis/hemils | DN 25 mm | 51,88 | kr./dag | | Stærð mælis/hemils | DN 32 mm | 53,80 | kr./dag | | Stærð mælis/hemils | DN 40 mm | 88,89 | kr./dag | | Stærð mælis/hemils | DN 50 mm | 133,97 | kr./dag | | Stærð mælis/hemils | DN 65 mm | 164,38 | kr./dag | | Stærð mælis/hemils | DN 80 mm | 191,78 | kr./dag |
Heitt vatn um rennslismæli, í Biskupstungum | H1A. Almenn notkun, íbúðarhús/sumarhús | 95,03 | kr./m³ | | H3A. Garðyrkja/Hitaveitan Brúin | 23,41 | kr./m³ | | V4A. Verslun, iðnaður og opinberar byggingar | 71,27 | kr./m³ |
Heitt vatn um hemil, í Biskupstungum | L1. Garðyrkja | 10,23 | kr./mínútulítra á dag | | L2. Íbúðarhús/sumarhús | 84,15 | kr./mínútulítra á dag | | L3. Verslun, iðnaður og opinberar byggingar | 35,40 | kr./mínútulítra á dag | | H1D. Hemlagjald | 72,03 | kr./mínútulítra á dag |
Heitt vatn um rennslismæli, í Laugardal | H1L. Almenn notkun, íbúðarhús/sumarhús | 95,03 | kr./m³ | | H3L. Garðyrkja | 23,41 | kr./m³ | | V4L. Verslun, iðnaður og opinberar byggingar | 71,27 | kr./m³ |
Heitt vatn um hemil, í Laugardal | H2. Íbúðarhús/sumarhús | 84,15 | kr./mínútulítra á dag | | H4. Mýrarhúsaskógur | 84,15 | kr./mínútulítra á dag |
3. gr. Tengigjöld Bláskógaveitu eru sem hér segir: | Íbúðarhús að 450 m³ | 312.598 | kr. umfram m³ 234 kr. | | Opinberar byggingar og iðnaðarhús að 450 m³ | 312.598 | kr. umfram m³ 67 kr. | | Gróðurhús og stórnotendur | 5.278 | kr. mínútulítrinn lágmark 60 m/l | | Sumarhús | 529.844 | kr. fast gjald |
4. gr. Tengigjöld samkvæmt gjaldskrá þessari eru miðuð við byggingarvísitölu. Grunnvísitala (grunnur 2010) októbermánaðar 2012, 115,2 stig. Bláskógaveitu er heimilt að breyta tengigjöldum í samræmi við breytingu á nefndri vísitölu. 5. gr. Lágmarksnotkun fyrir sumarhús er 642 rúmmetrar á ári og ávallt skal greiða fyrir þá notkun samkvæmt gjaldskrá. Fari ársnotkun sumarhúss fram yfir 642 rúmmetra á ári, þá skal greiða fyrir hvern umframrúmmetra skv. gjaldskrá ásamt lágmarksnotkunargjaldi. Fastagjald greiðist óháð notkun. 6. gr. Lágmarksstilling á hemli verður 3 l/m. 7. gr. Bláskógaveita hefur rétt til að loka fyrir afhendingu á heitu vatni til húsveitu viðskiptamanns sem vanrækt hefur að greiða hitaveitugjöld skv. gjaldskrá þessari. Allan kostnað af lokun og opnun á ný greiðir sá sem vanskilunum veldur, hverju sinni 6.497 kr. 8. gr. Gjaldskrá þessi, sem samþykkt var af veitustjórn Bláskógaveitu þann 3. desember 2012 og staðfest af sveitarstjórn Bláskógabyggðar þann 6. desember 2012, er hér með staðfest samkvæmt orkulögum nr. 58 frá 29. apríl 1967 til að öðlast gildi þegar í stað og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Jafnframt er úr gildi felld eldri gjaldskrá sama efnis nr. 140 frá 31. janúar 2012. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 28. desember 2012. F. h. r. Sveinn Þorgrímsson. Erla Sigríður Gestsdóttir. |