Skipulagsstofnun staðfesti 12. maí 2023 aðalskipulag Reykhólahrepps 2022-2034 sem samþykkt var í sveitarstjórn 8. febrúar 2023. Við gildistöku aðalskipulagsins fellur úr gildi aðalskipulag Reykhólahrepps 2006-2018 ásamt síðari breytingum. Samhliða tekur gildi skrá yfir vegi í náttúru Íslands, sem samþykkt var á sama fundi sveitarstjórnar.
Málsmeðferð var samkvæmt 30.-32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsstofnun, 12. maí 2023.
Ólafur Árnason.
|