Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 271/2017

Nr. 271/2017 29. mars 2017

AUGLÝSING
frá ríkisskattstjóra um skil á upplýsingum vegna tekjuársins 2016, sbr. reglugerð nr. 1240/2015 vegna tilkynningaskyldra erlendra reikninga.

Ríkisskattstjóri hefur ákveðið að tilkynningaskyldar fjármálastofnanir, sbr. 1. og 2. tölul. 2. gr. reglugerðar nr. 1240/2015, um framkvæmd áreiðanleikakannana vegna upplýsingaöflunar á sviði skattamála, skuli skila upplýsingum um erlenda reikningshafa, þó ekki bandaríska, til ríkis­skattstjóra vegna ársins 2016 eigi síðar en 31. maí 2017.

  1. Tilkynninga- og upplýsingaskylda tekur til reikninga erlendra aðila, (innlánsreikninga, vörslu­reikninga, vátryggingasamninga að tilteknu peningavirði og lífeyrissamninga).
    Skila skal m.a. eftirfarandi upplýsingum um ofangreinda reikninga í eigu einstaklinga og lög­aðila ef áreiðanleikakönnun skv. reglugerðinni leiðir í ljós að reikningshafi sé erlendur aðili:
    a) Nafn, heimilisfang og erlenda skattkennitölu sérhvers tilgreinds erlends reikningshafa (ein­staklinga og lögaðila) sem á eða fer með tilkynningaskyldan reikning.  Ef reikn­ings­hafi er lögaðili sem ekki telst vera erlendur en áreiðanleikakönnun skv. reglu­gerð­inni leiðir í ljós að lögaðilinn hefur einn eða fleiri stjórnandi aðila, sem teljast vera erlendir aðilar, skal skila upplýsingum um nafn, heimilisfang og erlenda skatt­kennitölu sérhvers þess erlenda aðila sem telst vera stjórnandi aðili, sbr. 40. tölul. 2. gr. reglugerðar nr. 1240/2015.
    b) Reikningsnúmer eða ígildi þess.
    c) Reikningsstöðu í árslok 2016. Hafi reikningi verið lokað á árinu 2016 skal upplýsa um síðustu stöðu fyrir lokun reiknings.
       
  2. Til viðbótar við framangreindar upplýsingar skal einnig skila eftirfarandi upplýsingum:
    a) Sé um innlánsreikninga að ræða skal skila upplýsingum um heildarfjárhæð greiddra eða tekjufærðra vaxta á árinu 2016.
    b) Sé um vörslureikning að ræða skal skila upplýsingum um heildarfjárhæð greiddra vaxta, arðs og annarra tekna, þ.m.t. sölu- og gengishagnað, sem myndast hefur vegna ávöxtunar þeirra eigna sem viðkomandi vörslureikningur hefur að geyma og hafa verið færðar sem tekjur inn á reikninginn (eða með tilliti til reikningsins) á árinu 2016.
       
  3. Sé reikningshafi óvirkur lögaðili sem ekki er fjármálastofnun, sbr. 42. tölul. 2. gr. reglu­gerðar nr. 1240/2015, skal upplýsa um nöfn, heimilisföng og erlendar skattkennitölur þeirra eigenda lögaðilans sem teljast erlendir aðilar.

  4. Tilkynningaskyldar fjármálastofnanir sem hafa enga reikninga í eigu eða umráðum erlendra aðila skulu staðfesta að svo sé með því að skila núllskýrslum til ríkisskattstjóra í samræmi við skilalýsingu.

Ef skilað er röngum eða ófullnægjandi upplýsingum til ríkisskattstjóra eða ef þær eru á annan hátt ekki samkvæmt skilalýsingu, skal tilkynningaskylda fjármálastofnunin eftir atvikum greiða þann kostnað sem af því kann að hljótast.

Upplýsingunum skal skilað rafrænt samkvæmt lýsingu á vef ríkisskattstjóra á slóðinni: https://www.rsk.is/fagadilar/hugbunadarhus/crsfatca/.

Allar fyrirspurnir um ofangreind gagnaskil má senda á netfangið: [email protected].

Auglýsing þessi er birt skv. 92., 93. og 94. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, sbr. 12. gr. reglu­gerðar nr. 1240/2015, og öðlast þegar gildi.

Reykjavík, 29. mars 2017.

F.h. ríkisskattstjóra,

Ingvar J. Rögnvaldsson.

Guðrún J. Jónsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 31. mars 2017