Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 800/2015

Nr. 800/2015 3. júlí 2015

REGLUGERÐ
um þvingunaraðgerðir varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó.

1. gr.

Almenn ákvæði.

Reglugerð þessi er sett til þess að framfylgja, eftir því sem við á:

  a) ályktunum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, sem eru settar á grundvelli 41. gr. VII. kafla stofnskrár Sameinuðu þjóðanna,
  b) ákvörðunum framkvæmdanefnda þess um þvingunaraðgerðir og/eða
  c) ákvæðum um þvingunaraðgerðir sem íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að framfylgja á grundvelli yfirlýsingar ríkisstjórna aðildarríkja Evrópusambandsins og Fríverslunarsamtaka Evrópu um pólitísk skoðanaskipti, sem er hluti samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög nr. 2/1993.

Í þeim gerðum sem vitnað er til í 2. gr., og öðrum ákvæðum reglugerðar þessarar, kemur fram um hvaða ályktanir öryggisráðsins og framkvæmdanefnda þess eða ályktanir Evrópusambandsins er að ræða, hverjar þær þvingunaraðgerðir eru sem koma eiga til framkvæmda og gegn hverjum þær beinast, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.

2. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi gerðir Evrópusambandsins um þvingunaraðgerðir skulu öðlast gildi hér á landi með þeirri aðlögun sem getið er um í 3. gr.:

1. Ákvörðun ráðsins 2010/788/SSUÖ frá 20. desember 2010 um þvingunaraðgerðir gegn Lýð­stjórnar­lýðveldinu Kongó og niðurfellingu sameiginlegrar afstöðu 2008/369/SSUÖ, fylgiskjal 1.
  1.1 Ákvörðun ráðsins 2012/811/SSUÖ frá 20. desember 2012 um breytingu á ákvörðun 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, fylgiskjal 2.
  1.2 Ákvörðun ráðsins 2014/147/SSUÖ frá 17. mars 2014 um breytingu á ákvörðun 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, fylgiskjal 3.
  1.3 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2015/620 frá 20. apríl 2015 um breytingu á ákvörðun 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, fylgiskjal 4.
2. Reglugerð ráðsins (EB) nr. 1183/2005 frá 18. júlí 2005 um að leggja á tilteknar, sérstakar þving­unaraðgerðir sem beint er gegn aðilum sem brjóta vopnasölubannið varðandi Lýðstjórnar­lýðveldið Kongó, fylgiskjal 5.
  2.1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 1251/2012 frá 20. desember 2012 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 1183/2005 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er gegn aðilum sem brjóta vopnasölubannið varðandi Lýð­stjórnarlýðveldið Kongó, fylgiskjal 6.
  2.2. Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 521/2013 frá 6. júní 2013 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1183/2005 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er að aðilum sem brjóta vopnasölubannið varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó, fylgiskjal 7.
  2.3. Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 271/2014 frá 17. mars 2014 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1183/2005 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er gegn aðilum sem brjóta vopnasölubannið varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó, fylgiskjal 8.
  2.4 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2015/614 frá 20. apríl 2015 um framkvæmd 4. mgr. 9. gr. reglugerðar (EB) nr. 1183/2005 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er gegn aðilum sem brjóta vopnasölubannið varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó, fylgiskjal 9.
  2.5 Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 2015/613 frá 20. apríl 2015 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1183/2005 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er gegn aðilum sem brjóta vopnasölubannið varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó og niðurfellingu á reglugerð (EB) nr. 889/2005, fylgiskjal 10.

Viðaukar við framangreindar gerðir eru birtir á frummáli, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.

Framangreindar gerðir binda einstaklinga, lögaðila, rekstrareiningar og stofnanir án frekari lögfestingar, eftir því sem við getur átt, þ.m.t. ákvæði um viðskiptabann, landgöngubann og frystingu fjármuna.

3. gr.

Aðlögun.

Gerðir skv. 2. gr. skulu aðlagaðar með eftirfarandi hætti:

  a) ákvæði varðandi ríkisborgara, einstaklinga, fyrirtæki, stjórnvöld, opinberar stofnanir, tungumál, yfirráðasvæði eða aðildarríki Evrópusambandsins („EB“, „ESB“, „Bandalagsins“ eða „sameiginlega markaðarins“) eiga við um íslenska ríkisborgara, einstaklinga, fyrirtæki, stjórnvöld, opinberar stofnanir, tungumál, yfirráðasvæði eða Ísland, eftir því sem við á,
  b) ákvæði um tilkynningar eða skýrslugerðir til aðildarríkja Evrópusambandsins eða stofnana þess gilda ekki. Hið sama á við um ákvæði um gildistöku eða hvenær gerðir skuli koma til framkvæmda,
  c) tilvísanir í gerðir, sem eru hluti samningsins um Evrópska efnahagssvæðið (EES-samn­ingsins), eiga við um þau ákvæði íslensks réttar sem innleiða þær gerðir, eftir því sem við á,
  d) tilvísanir í gerðir, sem eru ekki hluti EES-samningsins, eiga við um hliðstæð ákvæði íslensks réttar, eftir því sem við á, þ.m.t. ákvæði tollalaga nr. 88/2005,
  e) tilvísanir í eldri ákvæði um þvingunaraðgerðir Evrópusambandsins eiga við um eldri íslensk ákvæði, eftir því sem við á,
  f) vefsetur með upplýsingum um lögbær stjórnvöld á Íslandi er: www.utn.is/thvingunaradgerdir.

4. gr.

Tilkynning.

Birting lista yfir aðila, sem nefndir eru í gerðum skv. 2. gr., skal skoðast sem tilkynning til þeirra um að þær þvingunaraðgerðir sem kveðið er á um í gerðunum beinist gegn þeim og er þeim bent á að þeir geti sótt um vissar undanþágur til utanríkisráðuneytisins eða óskað eftir afskráningu af listum, telji þeir sig ranglega skráða.

5. gr.

Undanþágur frá þvingunaraðgerð.

Ráðherra getur veitt undanþágur frá þvingunaraðgerðum, sem gripið hefur verið til, af mannúðarástæðum eða öðrum ástæðum. Hann getur m.a. heimilað að efndir séu samningar eða að fullnægt sé öðrum réttindum og skyldum, sem fara í bága við reglugerð þessa en stofnuðust fyrir gildistöku hennar.

6. gr.

Viðurlög.

Hver sá sem brýtur gegn þvingunaraðgerðum skv. lögum nr. 93/2008 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða skal sæta viðurlögum skv. 10. gr. laganna, nema þyngri viðurlög liggi við samkvæmt öðrum lögum.

7. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð um alþjóðlegar þvingunaraðgerðir varðandi alþýðulýðveldið Kongó (Austur-Kongó) nr. 155/2009 og síðari breytingar, sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 544/2011 um breyting á reglugerðum nr. 154/2009, 140/2009, 155/2009, 148/2009, 147/2009, 299/2010 og 300/2010 um alþjóðlegar þvingunaraðgerðir.

Utanríkisráðuneytinu, 3. júlí 2015.

Gunnar Bragi Sveinsson.

Stefán Haukur Jóhannesson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 9. september 2015