Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1107/2009

Nr. 1107/2009 22. desember 2009
GJALDSKRÁ
fyrir leyfisgjald vegna hunda- og kattahalds, ásamt gjaldi vegna föngunar og vörslu óskilahunda og óskilakatta í Sveitarfélaginu Hornafirði.

1. gr.

Hunda- og kattaeigendur sem búsettir eru innan þéttbýlis sem skilgreint er í samþykktum um hunda- og kattahald á Hornafirði, skulu greiða leyfisgjald skv. lið c, gr. 4, gr. 7 og gr. 9 í samþykkt nr. 574/2007 um kattahald og lið c, gr. 3, gr. 6 og gr. 7 í samþykkt nr. 573/2007 um hundahald á Hornafirði, sem staðfestar voru af umhverfisráðuneytinu þann 11. júní 2007.

2. gr.

Af hundum skal innheimta hundaleyfisgjald skv. 3. gr. að upphæð 7.000 kr. á hvern hund við skráningu og árlega eftir skráningu 5.000 kr. Af köttum skal innheimta katta­leyfis­gjald skv. 4 gr. að upphæð kr. 7.000 á hvern kött við skráningu og árlega eftir skráningu 5.000 kr.

Innifalinn í leyfisgjaldinu er eingöngu sá kostnaður sem bæjarfélagið verður fyrir vegna um­fjöllunar, umsýslu, auglýsinga, skráningar og ormahreinsunar. Innifalið í skráningu er ör­merki og ásetning örmerkis. Allan annan kostnað sem til fellur vegna hunda eða katta skal leyfishafi greiða.

Um vexti af vangreiddum gjöldum samkvæmt gjaldskrá þessari gilda almennar reglur. Um innheimtu gjalda fer samkvæmt ákvæðum laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998. Gjöld samkvæmt gjaldskránni má innheimta með fjárnámi.

3. gr.

Eigendur hunda og katta eru ábyrgir fyrir öllum kostnaði sem hlýst af brotum gegn sam­þykktum um hunda- og kattahald á Hornafirði, þ.m.t. óheimilli lausagöngu, hand­sömun, vörslu og skilum dýranna eða aflífun.

Við afhendingu handsamaðs hunds eða kattar skal leyfishafi greiða:

  1. 10.000 kr. við fyrsta brot.
  2. 15.000 kr. við annað brot.
  3. 20.000 kr. við þriðja brot og fyrir hvert brot eftir það. Að auki kr. 1.000 fyrir hvern byrjaðan sólarhring sem hundur eða köttur hefur verið í vörslu.

Miðast greiðsla vegna föngunar við fjölda skipta sem hundur eða köttur er fangaður undan­gengna 12 mánuði. Ef til aflífunar hunds eða kattar kemur, skal eigandi dýrs að auki greiða útlagðan aflífunarkostnað.

4. gr.

Ofangreind gjaldskrá var samþykkt af bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar 9. ágúst 2007 á grund­velli 25. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir með síðari breyt­ingum og á samþykktum nr. 573/2007 um hundahald í Sveitarfélaginu Hornafirði og nr. 574/2007 um kattahald fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð og öðlast gildi við birtingu. Við staðfestingu gjaldskrár þessarar falla úr gildi eldri gjaldskrár vegna hunda- og katta­halds hjá bæjarfélaginu.

Hornafirði, 22. desember 2009.

Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri.

B deild - Útgáfud.: 11. janúar 2010