Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 978/2015

Nr. 978/2015 16. október 2015

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 237/2014 um tæknikröfur og stjórnsýslureglur í tengslum við starfrækslu loftfara.

1. gr.

Við 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar bætast eftirfarandi nýir töluliðir:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/640 frá 23. apríl 2015 um viðbótarskilyrði fyrir lofthæfi í tiltekinni starfrækslu og sem breytir reglugerð (ESB) nr. 965/2012, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 165 frá 11. júní 2015. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 55 frá 17. september 2015, bls. 351.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/140 frá 29. janúar 2015 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 965/2012, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 189 frá 10. júlí 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 55 frá 17. september 2015, bls. 382.

2. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 28. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Innanríkisráðuneytinu, 16. október 2015.

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Gunnar Örn Indriðason.


B deild - Útgáfud.: 30. október 2015