Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1447/2020

Nr. 1447/2020 14. desember 2020

AUGLÝSING
um breytingu á gjaldskrá Hitaveitu Öxarfjarðarhéraðs hf., nr. 254/2003.

1. gr.

Samkvæmt orkulögum nr. 58/1967, með síðari breytingum, hefur ráðuneytið staðfest eftirfar­andi breytingar á gjaldskrá Hitaveitu Öxarfjarðarhéraðs hf., nr. 254/2003, er öðlist gildi við birtingu í Stjórnartíðindum:

 

2. gr.

4. gr. gjaldskrárinnar breytist og orðist svo:

Hver lítri á mínútu kostar kr. 51.532 á ári, án fastagjalds og virðisaukaskatts.

Notendur sem kaupa 4 l/mín, eða minna greiða einnig fastagjald kr. 23.142 á ári auk virðis­auka­skatts.

 

3. gr.

5. gr. gjaldskrárinnar breytist og orðist svo:

Fyrirtæki sem samið hafa um kaup á heitu vatni samkvæmt rennslismæli greiða kr. 167,29 fyrir rúmmetra vatns auk virðisaukaskatts, en greiða þá að lágmarki samkvæmt samningi um fastan lítrafjölda.

 

4. gr.

6. gr. gjaldskrárinnar breytist og orðist svo:

Stofngjöld fyrir Hitaveitu Öxarfjarðarhéraðs eru sem hér segir:

a) fyrir lögbýli kr. 2.520.134  
b) fyrir íbúðarhús kr. 667.074  
c) fyrir sumarhús kr. 470.210  
d) fyrir aðra aðila kr. 167.213  á mínútulítra

Lágmarksinntak er 2,5 l/mín.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 14. desember 2020.

F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,

Kristján Skarphéðinsson.

Hreinn Hrafnkelsson.


B deild - Útgáfud.: 30. desember 2020