Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 830/2019

Nr. 830/2019 3. september 2019

REGLUGERÐ
um (1.) breytingu á reglugerð nr. 1000/2005 um kortlagningu hávaða og aðgerðaáætlanir.

1. gr.

Í stað II. viðauka við reglugerðina kemur nýr II. viðauki, sem er birtur á ensku í C-deild Stjórnar­tíðinda, sem fylgiskjal við auglýsingu nr. 1/2019, með heimild í 2. mgr. 4. gr., sbr. 2. mgr. 3. gr. laga nr. 15/2005 um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað.

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á tilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/996 frá 19. maí 2015 um að koma á sameiginlegum matsaðferðum fyrir hávaða samkvæmt tilskipun Evrópu­þingsins og ráðsins 2002/49/EB, sem vísað er til í tölulið 32ga VI. kafla XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndar­innar nr. 207/2017, þann 27. október 2017.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 5. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 3. september 2019.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Sigríður Auður Arnardóttir.


B deild - Útgáfud.: 20. september 2019