Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1203/2017

Nr. 1203/2017 14. desember 2017

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um flugvernd nr. 750/2016.

1. gr.

Í stað orðanna „Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar“ í k-lið 53. gr. kemur: Framkvæmdar­reglugerð framkvæmdastjórnarinnar.

2. gr.

Seinni l-liður 53. gr. reglugerðarinnar sem birtur var með reglugerð nr. 515/2017 í Stjórnar­tíðindum 9. júní 2017, verður m-liður.

3. gr.

Við 53. gr. reglugerðarinnar bætast eftirfarandi liðir:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/815 frá 12. maí 2017 um breytingu á fram­kvæmdar­reglugerð (ESB) 2015/1998 að því er varðar nánari útlistun, sam­ræm­ingu og einföldun á tilteknum flugverndarráðstöfunum, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES‑nefndar­innar um breytingu á XIII. viðauka EES-samningsins, nr. 200/2017 frá 27. október 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 74 frá 16. nóvember 2017, bls. 566-633.
  2. Ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/3030 frá 15. maí 2017 um breytingu á ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/8005 hvað varðar nánari útlistun, sam­ræmingu og einföldun á tilteknum flugverndarráðstöfunum, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES‑nefndarinnar nr. 200/2017 frá 27. október 2017.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 14. desember 2017.

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 2. janúar 2018