Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 591/2013

Nr. 591/2013 11. júní 2013
SAMÞYKKT
um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar.

I. KAFLI

Um skipan bæjarstjórnar, sjálfstjórn hennar og verkefni sveitarfélagsins.

1. gr.

Skipan bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar er skipuð sjö fulltrúum, sem kjörnir eru lýðræðis­legri kosningu af íbúum sveitarfélagsins samkvæmt lögum um kosningar til bæjarstjórna.

2. gr.

Sjálfstætt stjórnvald.

Sveitarfélagið Hornafjörður er sjálfstætt stjórnvald, sem er stjórnað af lýðræðislega kjörinni bæjarstjórn í umboði íbúa sveitarfélagsins.

3. gr.

Verkefni sveitarfélagsins.

Sveitarfélagið Hornafjörður annast þau verkefni sem því eru falin í lögum, sbr. og leið­beinandi auglýsingu frá ráðuneytinu.

Sveitarfélagið Hornafjörður vinnur að sameiginlegum velferðarmálum íbúanna eftir því sem fært þykir á hverjum tíma.

Sveitarfélaginu Hornafirði er heimilt að taka að sér hvert það verkefni sem varðar íbúa þess, enda sé það ekki falið öðrum að lögum.

II. KAFLI

Um bæjarstjórn.

4. gr.

Hlutverk bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn fer með stjórn sveitarfélagsins samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. síðari breytingar, annarra laga og samþykkt þessari.

Bæjarstjórn hefur ákvörðunarvald um nýtingu tekjustofna, lántökur og ráðstöfun eigna og um framkvæmd verkefna sveitarfélagsins.

5. gr.

Verkefni bæjarstjórnar.

Meðal verkefna bæjarstjórnar er:

  1. Að sjá um að lögbundnar skyldur séu ræktar og hafa eftirlit með því að fylgt sé viðeigandi reglum í störfum sveitarfélagsins.
  2. Að kjósa forseta og varaforseta bæjarstjórnar, sbr. 13. gr. sveitarstjórnarlaga, bæjarráð og aðrar nefndir, ráð og stjórnir skv. V. kafla sveitarstjórnarlaga, að ráða löggiltan endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki sem annast skal endurskoðun hjá sveitarfélaginu, sbr. VII. kafla sveitarstjórnarlaga.
  3. Að setja bæjarstjórn siðareglur, sbr. 29. gr. sveitarstjórnarlaga.
  4. Að ákveða stjórnskipan sveitarfélagsins, ráða bæjarstjóra, sbr. 54. gr. sveitar­­stjórnar­laga og aðra starfsmenn í æðstu stjórnunarstöður sveitarfélagsins, sbr. 56. gr. laganna.
  5. Að móta stefnu fyrir starfsemi sveitarfélagsins, deilda og stofnana, setja starfsemi sveitarfélagsins reglur, setja samþykktir og gjaldskrár, eftir því sem lög mæla fyrir um og þörf krefur.
  6. Að fara með fjárstjórnarvald sveitarfélagsins, sbr. 58. gr. sveitarstjórnarlaga og gera fjárhagsáætlanir, sbr. 62. gr. sömu laga.
  7. Að bera ábyrgð á fjármálum sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja, sbr. 77. gr. sveitarstjórnarlaga og VIII. kafla samþykktar þessarar og taka ákvarðanir um verulegar skuldbindingar sveitarfélagsins til lengri tíma.
  8. Að hafa eftirlit með framkvæmd samstarfsverkefna og þjónustusamninga sbr. IX. kafla sveitarstjórnarlaga.
  9. Að veita íbúum sveitarfélagsins og þeim sem njóta þjónustu þess upplýsingar um málefni sem snerta hagi þeirra og um samstarf sem sveitarfélagið hefur við önnur sveitarfélög, sbr. 103. gr. sveitarstjórnarlaga.
  10. Að bæjarstjórn staðfesti erindisbréf fyrir nefndir, ráð og stjórnir þar sem kveðið er á um hlutverk þeirra, valdsvið, starfshætti og framsal til fullnaðarákvörðunar og starfs­hætti þeirra í samræmi við lög, reglugerðir og almennar samþykktir bæjar­stjórnar.

6. gr.

Ný bæjarstjórn tekur til starfa.

Nýkjörin bæjarstjórn tekur við störfum 15 dögum eftir kjördag. Jafnlengi heldur fráfarandi bæjarstjórn umboði sínu, með þeim takmörkunum sem leiðir af lögum um kosningar til bæjarstjórna. Nýkjörin bæjarstjórn hefur einungis umboð til töku ákvarðana um málefni bæjarstjórnarinnar eða sveitarfélagsins eftir að hún tekur við störfum.

Sá fulltrúi í nýkjörinni bæjarstjórn sem á að baki lengsta setu í bæjarstjórn boðar til fyrsta fundar ekki síðar en 15 dögum eftir að hún tekur við störfum eftir kosningar. Hann stýrir fundi þar til forseti hefur verið kjörinn. Hafi tveir eða fleiri fulltrúar setið jafnlengi í bæjarstjórn fer aldursforseti þeirra með verkefni samkvæmt þessari málsgrein.

Fyrsta fund skal boða með a.m.k. fjögurra daga fyrirvara.

7. gr.

Kjör forseta og varaforseta.

Á fyrsta fundi kýs bæjarstjórn forseta bæjarstjórnar og tvo varaforseta. Kjörtímabil þeirra skal vera hið sama og bæjarstjórnar, fjögur ár. Njóti forseti eða varaforseti ekki lengur stuðnings bæjarstjórnar skal kjósa í þau embætti að nýju. Hið sama á við ef forseti eða varaforseti forfallast varanlega eða fær lausn frá starfi. Tilkynna skal kosningu forseta og varaforseta til ráðuneytis þegar að því loknu.

Sá telst rétt kjörinn forseti sem fær atkvæði meiri hluta þeirra sem sæti eiga í bæjarstjórn. Verði þeim atkvæðafjölda ekki náð skal kjósa að nýju. Við aðra umferð telst sá rétt kjörinn sem fær meiri hluta atkvæða þeirra fulltrúa sem sitja fundinn eða ef viðkomandi er sá eini sem fær atkvæði. Fáist ekki niðurstaða við aðra umferð skal kosið þriðja sinni en þá á milli þeirra tveggja sem flest atkvæði fengu við aðra umferð. Ef nauðsynlegt reynist skal varpa hlutkesti um það milli hverra tveggja verður kosið. Verður þá sá rétt kjörinn sem fleiri atkvæði fær. Verði atkvæði jöfn ræður hlutkesti.

Þegar að lokinni kosningu forseta skal kjósa fyrsta og annan varaforseta til að gegna, í þeirri röð, störfum forseta í forföllum hans. Skal kosning þeirra vera hlutfallskosning, enda sé ekki full samstaða um annað innan bæjarstjórnar.

Ef forseti fellur frá eða verður varanlega forfallaður skal kjósa forseta í hans stað til loka kjörtímabilsins.

III. KAFLI

Fundir bæjarstjórnar og fundarsköp.

8. gr.

Fundir bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar heldur reglulega fundi bæjarstjórnar að jafnaði í Listasafni Svavars Guðnasonar, á Höfn fyrsta fimmtudag í hverjum mánuði, kl. 16.00.

Aukafundi skal halda þegar forseti eða bæjarstjóri telur það nauðsynlegt eða ef þriðjungur bæjarstjórnarfulltrúa óskar þess.

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar er heimilt að fella niður reglulegan fund sinn, enda sé tillaga um slíkt samþykkt mótatkvæðalaust á næsta fundi bæjarstjórnar á undan.

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar er heimilt að fella niður reglulega fundi bæjar­stjórnar vegna sumarleyfis.

9. gr.

Boðun bæjarstjórnarfunda.

Bæjarstjóri boðar fundi. Fundarboð skal berast bæjarfulltrúa ekki síðar en tveimur sólar­hringum fyrir fund ásamt dagskrá og fylgigögnum.

Heimilt er að senda fundarboð með dagskrá á rafrænan hátt til aðal- og varamanna í bæjar­stjórn. Dagskráin, ásamt fylgigögum, skal vera aðgengileg fulltrúunum á rafrænni funda­gátt sveitarfélagsins. Heimilt er að boða fundi bæjarráðs og fastanefnda með sama hætti.

Aukafund skal boða ekki síðar en tveimur virkum dögum eftir að ósk þar um barst þeim er boða skal fund. Fundarboð vegna aukafundar skal berast bæjarfulltrúum svo fljótt sem auðið er og ekki síðar en sólarhring fyrir fund. Fundarboði skal fylgja dagskrá fundar og þau gögn sem eru nauðsynleg til að bæjarfulltrúi geti tekið upplýsta afstöðu til mála sem þar eru til­greind.

10. gr.

Dagskrá bæjarstjórnarfundar.

Bæjarstjóri semur dagskrá bæjarstjórnarfundar í samráði við forseta og skal dagskráin fylgja fundarboði.

Á dagskrá bæjarstjórnarfundar skal taka:

  1. Lögákveðnar kosningar s.s. kosningar forseta bæjarstjórnar, kosningar nefnda, ráða og stjórna á vegum bæjarstjórnar, svo og ráðningu framkvæmdastjóra og helstu stjórnenda sveitarfélagsins og endurskoðenda þess.
  2. Fundargerðir bæjarráðs, nefnda og stjórna á vegum sveitarfélagsins.
  3. Ályktanir og tillögur sem fram koma í fundargerðum, sbr. 2. tölul. hér að framan og þarfnast staðfestingar bæjarstjórnar, skal tilgreina sérstaklega í dagskrá.
  4. Önnur mál sem falla undir verksvið bæjarstjórnar og bæjarstjóri eða forseti ákveða að taka á dagskrá eða einhver bæjarfulltrúi óskar að tekin verði á dagskrá.

Bæjarfulltrúum er heimilt að leggja fram fyrirspurnir á bæjarstjórnarfundum. Fyrirspurnirnar skulu vera skriflegar og berast bæjarstjóra a.m.k. sólarhring fyrir bæjarstjórnarfund.

Bæjarfulltrúi sem óskar að fá mál tekið á dagskrá bæjarstjórnarfundar skal tilkynna það bæjarstjóra skriflega eða með rafrænum hætti í tæka tíð til þess að unnt sé að setja það á dagskrá.

11. gr.

Tilkynning til íbúa um fundi bæjarstjórnar.

Í upphafi kjörtímabils bæjarstjórnar tekur bæjarstjórn ákvörðun um hvar og hvenær bæjarstjórnarfundir eru haldnir, sbr. 8. gr. samþykktar þessarar og skal sú ákvörðun kynnt íbúum sveitarfélagsins með tryggum hætti.

Íbúum sveitarfélagsins skal kynnt með auglýsingu á vefsíðu sveitarfélagsins eða með öðrum tryggum hætti um fyrirhugaða fundi bæjarstjórnar ásamt dagskrá, innan sömu tímafresta og við á um bæjarstjórnarmenn, enda standi reglur um þagnarskyldu því ekki í vegi.

12. gr.

Opnir fundir bæjarstjórnar.

Fundir bæjarstjórnar eru opnir, en heimilt er að ákveða að einstök mál skuli rædd fyrir luktum dyrum þegar það telst nauðsynlegt vegna eðlis máls. Forseti eða bæjarstjórn getur jafnframt ákveðið að ræða fyrir luktum dyrum tillögu um lokun fundar.

Þrátt fyrir að fundi sé lokað er heimilt að ákveða að tilteknir starfsmenn sveitarfélagsins séu viðstaddir.

13. gr.

Ályktunarhæfi og atkvæðagreiðsla.

Bæjarstjórn getur enga ályktun gert nema meira en helmingur bæjarfulltrúa sé viðstaddur á fundi.

Á bæjarstjórnarfundum ræður afl atkvæða úrslitum mála. Hjáseta telst þátttaka í atkvæða­greiðslu. Ef jafnmörg atkvæði eru með málefni og á móti fellur það en við kosningar ræður hlutkesti.

14. gr.

Fjarfundabúnaður.

Um framkvæmd fjarfunda gildir auglýsing ráðherra, sbr. 2. mgr. 19. gr. sveitarstjórnarlaga.

15. gr.

Tvær umræður í bæjarstjórn.

Bæjarstjórn skal hafa tvær umræður, með a.m.k. einnar viku millibili um:

  1. Samþykktir og aðrar reglur sem samkvæmt lögum eiga að hljóta staðfestingu ráð­herra.
  2. Staðfestingu ársreiknings.
  3. Stefnumarkandi áætlanir sem gilda eiga til lengri tíma og taka til sveitarfélagsins í heild eða meiri hluta þess.
  4. Tillögu um sameiningu við annað sveitarfélag skv. 2. mgr. 120. gr. sveitar­stjórnar­laga.

Þá skal bæjarstjórn hafa tvær umræður, með a.m.k. tveggja vikna millibili, um fjárhags­áætlanir sveitarfélagsins skv. 62. gr. sveitarstjórnarlaga. Ákvæði þetta gildir þó ekki um samþykkt viðauka við fjárhagsáætlanir.

16. gr.

Fundarsköp og ritun fundargerða.

I. Fundarsköp.

  1. Fundarstjórn. Forseti bæjarstjórnar stjórnar umræðum á fundum bæjarstjórnar. Hann setur fund, kannar lögmæti hans, stjórnar umræðum og afgreiðslu mála og slítur fundi þegar dagskrá hans er tæmd. Hann sér um að fundargerðir séu færðar og að allar tillögur og ályktanir séu rétt og nákvæmlega bókaðar, svo og hverja afgreiðslu þær hljóta.
    Forseti bæjarstjórnar sér um að allt fari löglega og skipulega fram á fundum bæjar­stjórnar. Hann úrskurðar um skilning á fundarsköpum samkvæmt samþykkt þessari en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar bæjarstjórnar.
  2. Vald forseta bæjarstjórnar. Skylt er bæjarfulltrúa að lúta valdi forseta í hvívetna varðandi það að gætt sé góðrar reglu.
    Ef bæjarfulltrúi ber aðra menn brigslum eða víkur verulega frá umræðuefninu skal forseti víta hann. Ef bæjarfulltrúi er víttur tvisvar á sama fundi getur forseti lagt til við bæjarstjórn að hann verði sviptur málfrelsi það sem eftir er fundar. Skal sú tillaga afgreidd umræðulaust.
    Ef bæjarfulltrúi hlýðnast ekki úrskurði forseta eða almenn óregla kemur upp á fundi skal forseti gera hlé um stundarsakir eða ef nauðsyn krefur fresta eða slíta fundi.
    Ef áheyrandi á bæjarstjórnarfundi raskar fundarfriði getur forseti vísað honum úr fundarsal.
    Leyfi forseta þarf til að taka myndir í fundarsal bæjarstjórnar.
  3. Afgreiðsla mála. Mál skulu tekin til umræðu og afgreidd í þeirri röð sem dagskrá kveður á um nema bæjarstjórn eða forseti bæjarstjórnar ákveði að önnur röð skuli höfð. Forseti bæjarstjórnar getur ákveðið að tiltekið mál í fundargerð sem er á dagskrá verði gert að sérstökum dagskrárlið á fundinum. Heimilt er að taka mál á dagskrá þótt ekki sé þess getið í fundarboði, enda samþykki 2/3 viðstaddra bæjar­fulltrúa þau afbrigði.
  4. Málfrelsi bæjarstjóra. Bæjarstjóri skal sitja fundi bæjarstjórnar með málfrelsi og tillögurétt en hann hefur ekki atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn í bæjarstjórn.
  5. Málfrelsi. Bæjarfulltrúi hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum bæjar­stjórnar. Bæjarfulltrúi sem taka vill til máls skal óska heimildar forseta. Að jafnaði skulu menn taka til máls í þeirri röð sem þeir hafa kvatt sér hljóðs. Heimilt er að víkja frá þessu ef um er að ræða bæjarstjóra eða framsögumann svo og bæjar­fulltrúa sem gera vill stutta athugasemd, bera af sér ámæli eða veita andsvar. Ef tveir eða fleiri kveða sér samtímis hljóðs ákveður forseti bæjarstjórnar í hvaða röð þeir tala.
    Bæjarfulltrúi skal flytja mál sitt úr ræðustól nema forseti leyfi annað.
  6. Ávarp ræðumanns. Bæjarfulltrúi skal beina máli sínu til forseta bæjarstjórnar.
    Bæjarfulltrúi skal ávarpa einstaka bæjarfulltrúa með fullu nafni. Þegar til umræðu er fundargerð skal ræðumaður taka fram hvaða lið í fundargerð hann óskar að ræða.
    Ekki má lesa prentað mál nema forseti bæjarstjórnar leyfi.
  7. Hve oft má tala. Bæjarfulltrúi má tala tvisvar við hverja umræðu um fundargerðir skv. 2. tl. 2. mgr. 10. gr. Heimilt er þó bæjarfulltrúa að taka oftar til máls, til að bera af sér ámæli eða til að gera stutta athugasemd um fundarstjórn forseta. Bæjarfulltrúi má tala tvisvar við hverja umræðu um fundargerðir skv. 3. og 4. tl. 2. mgr. 10. gr. nema flutningsmaður tillögu eða framsögumaður (talsmaður flutningsmanna) sem tala má þrisvar við hverja umræðu máls. Um fyrirspurnir skv. 5. tl. 10. gr. má hver bæjarfulltrúi taka einu sinni til máls. Málshefjanda gefst kostur á stuttu andsvari og bæjarstjóra einnig við hverja ræðu bæjarfulltrúa. Bæjarstjóri hefur óbundið málfrelsi.
  8. Ræðutími. Við umræður um fundargerðir skv. 2. tl. 2. mgr. 10. gr. er ræðutími takmarkaður við fimmtán mínútur í fyrri ræðu og tíu mínútur í síðari ræðu. Við umræður um mál skv. 3. og 4. tl. 2. mgr. 10. gr. má ræðutími vera allt að 30 mínútur. Ræðutími í síðari ræðu má vera allt að 10 mínútur, hið sama gildir um þriðju ræðu framsögumanns og síðari ræður bæjarstjóra. Við umræður um mál sem tekin eru á dagskrá samkvæmt 5. tl. 10. gr. má ræða standa yfir í allt að tvær mínútur. Forseta er þó heimilt að rýmka ræðutíma sé mál það umfangsmikið eða mikilvægt að ekki sé hægt að ræða það á fullnægjandi hátt innan þeirra reglna sem mælt er fyrir. Einnig er forseta heimilt að rýmka ræðutíma bæjarfulltrúa ef sérstaklega stendur á og nauðsyn krefur. Ákvörðun forseta skal liggja fyrir áður en umræða hefst. Við síðari umræðu um fjárhagsáætlun og aðalskipulag Sveitarfélagsins Hornafjarðar skal ræðutími vera ótakmarkaður.
  9. Tillögur og afgreiðsla. Bæjarstjórnarmaður getur borið fram breytingartillögu, viðaukatillögu, frávísunartillögu eða frestunartillögu við hvert það mál sem til umræðu er á fundi. Slíkar tillögur skulu vera skriflegar. Forseti bæjarstjórnar ákveður í hvaða röð og með hvaða hætti slíkar tillögur eru teknar til afgreiðslu í samræmi við almennar reglur um fundarsköp.
    Forseti bæjarstjórnar sker úr því hvernig atkvæðagreiðslum um tillögur skuli hagað.
  10. Réttur til bókunar. Þeir sem hafa rétt til að taka þátt í umræðum í bæjarstjórn eiga rétt á að fá bókaðar í fundargerð stuttar athugasemdir um afstöðu til þeirra mála sem til umræðu eru.
  11. Atkvæðagreiðsla. Atkvæðagreiðsla á bæjarstjórnarfundi fer að jafnaði fram með handauppréttingu. Bæjarfulltrúi greiðir atkvæði úr sæti sínu. Forseti bæjarstjórnar biður þá bæjarfulltrúa sem samþykkja mál að rétta upp hönd sína. Að því búnu leitar forseti bæjarstjórnar mótatkvæða með sama hætti. Loks skýrir forseti bæjarstjórnar frá úrslitum atkvæðagreiðslunnar.
    Heimilt er að afgreiða mál með skriflegri atkvæðagreiðslu ef bæjarfulltrúi óskar og bæjarstjórn samþykkir.
  12. Kosningar. Kosningar sem fara fram í bæjarstjórn, skv. 43. gr. sveitarstjórnarlaga, skulu vera leynilegar og bundnar hlutfallskosningar, sé þess óskað. Þegar um meirihlutakosningu er að ræða, svo sem við kjör eins fulltrúa úr hópi tveggja eða fleiri, skal kosning fara fram eins og við forsetakjör. Bæjarstjórn ber að hafa í huga ákvæði 4. tölul. 1. mgr. 45. gr. sveitarstjórnarlaga varðandi kynjahlutfall.

II. Ritun fundargerða:

  1. Fundargerðir. Fundargerðir bæjarstjórnarfunda skal rita og færa í gerðabók í sam­ræmi við fundarsköp sveitarstjórnar.
    Á fundum fastanefnda, skv. samþykkt um stjórn sveitarfélagsins, annarra nefnda, stjórna og ráða á vegum sveitarfélagsins skal rita fundargerðir og skulu þær skráðar með sams konar hætti og fundargerðir sveitarstjórnar, sbr. 1. mgr.
    Starfsmenn fastanefnda eru að jafnaði fundarritarar, en ráð og nefndir geta ráðið sér sérstakan fundarritara úr starfsmannahópi sveitarfélagsins.
  2. Gerðabók. Fundargerðir sveitarstjórnar, fastanefnda, annarra nefnda, stjórna og ráða skal rita í gerðabók sem skal vera innbundin með tölusettum blaðsíðum.
  3. Efni fundargerða. Eftirfarandi atriði eiga að koma fram í fundargerðum sveitar­stjórnar, fastanefnda, annarra nefnda, stjórna og ráða á hennar vegum skv. sam­þykkt um stjórn sveitarfélagsins:

    1)

    Númer fundar og heiti nefndar (sveitarstjórnar, fræðsluráðs o.s.frv.).

    2)

    Fundardagur, upphaf fundar (tími) og fundarstaður.

    3)

    Nöfn viðstaddra sveitarstjórnarmanna, nefndarmanna, varamanna og fyrir hverja þeir sitja og eftir atvikum annarra sem fundinn sátu.

    4)

    Dagskrármál sem tekin eru fyrir á fundinum, málsnúmer, dagsetning erinda, nöfn aðila, meginefni og niðurstaða þeirra.

    5)

    Skrá skal í fundargerð víki sveitarstjórnar- eða nefndarmaður sæti vegna van­hæfis. Skrá skal í fundargerð ef starfsmaður víkur af fundi vegna vanhæfis.

    6)

    Atkvæðagreiðsla/kosning.

    7)

    Hverjir greiddu atkvæði með máli, hverjir á móti og hverjir sátu hjá.

    8)

    Skrá skal lok fundar.

    9)

    Skrá skal undirritun fundargerðar.

  4. Fundargerðir skráðar í tölvu. Bæjarstjórn er heimilt að ákveða að fundargerðir séu skráðar í tölvu/fundargerðakerfi. Sé það gert skal skrá í gerðabók bæjarstjórnar, fastanefnda og annarra nefnda, stjórna og ráða, númer fundar, hvar og hvenær fundur er haldinn og að fundargerð sé færð í tölvu/fundargerðakerfi. Þá skal færa í gerðabók fundarslit og greina blaðsíðutal fundargerðar.
  5. Nöfn þeirra sem skrá skal í fundargerð. Skrá skal nöfn viðstaddra bæjarfulltrúa eða nefndarmanna í fundargerð. Ef varamaður situr fund er rétt að skrá fyrir hvaða aðalmann hann situr fundinn. Skrá skal hvaða embættismenn sitja fundinn. Ef embættismenn eða gestir sitja fundinn eða hluta hans skal skrá athugasemd um slíkt undir viðkomandi dagskrárlið fundarins.
  6. Um skráningu dagskrármála í fundargerð og niðurstöðu þeirra. Skrá skal í fundargerð heiti dagskrármála, málsnúmer og röð þeirra á dagskrá fundarins.
    Skrá skal í fundargerðina við dagskrármálið sjálft, hvaða afgreiðslu það hafi hlotið, ályktanir og niðurstöður, s.s. hvort mál hafi verið samþykkt, því synjað, frestað, vísað til umsagnar nefndar eða starfsmanns, vísað til fullnaðarafgreiðslu nefndar eða starfsmanns eða hvort máli hafi verið vísað frá. Varði afgreiðsla dagskrármáls ekkert af þessu er málið lagt fram án efnislegrar afstöðu til þess.
    Fundargerðir nefnda sem lagðar eru fyrir sveitarstjórn skulu lagðar fyrir í heild, þ.e. með öllum þeim dagskrármálum sem þær mynda og fer um afgreiðslu þessara fundargerða með vísan til 1. og 2. mgr. þessa stafliðar. Ályktanir eða samþykktir í fundargerðum nefnda sem þarfnast staðfestingar sveitarstjórnar skal færa sérstak­lega í fundargerð. Skýrt þarf að koma fram hvaða afgreiðslu hver dagskrár­liður þessara fundar­gerða fær. Aðrir liðir fundargerðar eru lagðir fram til kynningar.
    Varðandi framkvæmd afgreiðslu dagskrármála skal skrá með hvaða hætti niðurstaða, samþykkt, synjað, frestað o.s.frv. var fengin. Hvort niðurstaðan var eftir atvikum fengin samhljóða, fjöldi atkvæða með og atkvæði á móti, hvort um hjásetu var að ræða o.s.frv., hvort krafist hafi verið skriflegrar atkvæðagreiðslu o.fl., en um þessi atriði vísast að öðru leyti til laga og samþykkta um stjórn sveitarfélagsins.
    Varðandi aðrar athafnir sem fram fara á fundum sveitarstjórnar eða nefnda, s.s. kosningar ýmiss konar, gildir að tilgreina skal þær sem sérstakt dagskrármál og númer hvað þær eru á dagskrá fundarins. Um framkvæmd slíkra kosninga vísast að öðru leyti til laga og samþykkta um stjórn sveitarfélagsins.
    Komi fram ósk um bókun frá bæjarstjórnarmanni, nefndarmanni eða öðrum þeim sem heimild hefur til að bóka skal skrá bókun undir viðkomandi dagskrármáli. Um bókanir fer að öðru leyti samkvæmt ákvæðum samþykktar um stjórn sveitar­félagsins, t.d. hvort þær þurfi að vera skriflegar. Bókanir skulu færðar til bókar áður en til afgreiðslu fundargerðar kemur.
  7. Vikið af fundi vegna vanhæfis. Skrá skal í fundargerð ef bæjarstjórnarmaður eða nefndarmaður víkur sæti vegna vanhæfis. Skrá skal hvort farið hefur fram atkvæða­greiðsla um hæfi og úrslit hennar. Skrá skal hvaða mál vanhæfið varðar og hvort og þá hvaða varamaður tekur sæti hans. Skrá skal hvenær bæjar­stjórnar­maður tekur aftur sæti og varamaður víkur af fundi.
    Skrá skal í fundargerð ef embættismaður/starfsmaður, sem hefur málfrelsi og tillögurétt, víkur af fundi vegna vanhæfis. Skrá skal hvaða mál vanhæfið varðar.
  8. Undirritun í gerðabók. Við lok fundar skal fundargerð lesin upp og viðstaddir kjörnir fulltrúar í sveitarstjórn/nefndarmenn rita eigin hendi undir hafi hún verið færð beint í gerðabók og staðfesta þar með að rétt hafi verið fært til bókar. Við endurrit fundargerða skal setja skammstöfunina m.e.h. (með eigin hendi) aftan við nafn viðkomandi.
    Sama gildir hafi fundargerð verið færð í tölvu, þá skulu kjörnir fulltrúar undirrita gerðabók sem í hefur verið fært.
    Bæjarfulltrúi/nefndarmaður sem vill gera athugasemd við eitthvert atriði í fundargerð getur undirritað hana með fyrirvara um það atriði.
  9. Um undirritun og frágang tölvufærðrar fundargerðar. Í lok fundar skal fundargerð prentuð, lesin upp og undirrituð af kjörnum fulltrúum. Þá skulu forseti/formaður nefndar og a.m.k. einn kjörinn fulltrúi setja upphafsstafi sína undir hverja blaðsíðu. Undirritaðar tölvuskráðar fundar skulu reglulega bundnar inn til varanlegrar varð­veislu.
  10. Um undirritun fundargerða símafunda. Ef haldinn hefur verið símafundur undirritar bæjarfulltrúi/nefndarmaður sem ekki var viðstaddur á fundarstað, fundargerð á næsta fundi bæjarstjórnar/nefndar.
  11. Trúnaðarmál. Mál sem tekið er fyrir á luktum fundi bæjarstjórnar skal skrá sem trúnaðarmál og færa í sérstaka fundargerðabók sveitarstjórnar. Ef um er að ræða viðkvæm persónuleg málefni og/eða mál sem falla undir ákvæði upplýsingalaga nr. 140/2012 með síðari breytingum skal bóka umfjöllun og afgreiðslu slíkra mála í sérstaka trúnaðarmálabók nefndar. Í fundargerð skal koma fram málsnúmer, vegna tilvísunar í viðkomandi mál í skjalakerfi, og heiti á dagskrárliðnum skal vera „Trúnaðarmál“. Tilvísun í færslur í trúnaðarmálabók skal koma fram í fundargerð.
  12. Um varðveislu fundargerða. Skjöl og gögn sem verða til í starfsemi sveitarfélagsins s.s. fundargerðir og önnur skráð fundargögn sveitarstjórnar og nefnda á hennar vegum tilheyra skjalasafni sveitarfélagsins og eru eign þess og fer um varðveislu þeirra skv. gildandi lögum og reglum hverju sinni.

17. gr.

Hæfi til þátttöku í meðferð og afgreiðslu einstakra mála.

Um hæfi bæjarfulltrúa, nefndarfulltrúa og starfsmanna sveitarfélagsins til þátttöku í meðferð eða afgreiðslu mála þar sem á, eða til greina kemur, að taka stjórnvaldsákvörðun skv. 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, gilda ákvæði stjórnsýslulaga sé ekki öðruvísi ákveðið í sveitarstjórnarlögum. Viðkomandi telst þó aðeins vanhæfur sé hann eða hafi verið maki aðila, skyldur eða mægður aðila í beinan legg eða öðrum til hliðar eða tengdur aðila með sama hætti vegna ættleiðingar. Þá verður starfsmaður sveitarfélagsins ekki vanhæfur vegna vanhæfis yfirmanns ef eðli máls eða uppbygging stjórnkerfis sveitarfélagsins þykir ekki gefa tilefni til slíks.

Í öðrum tilvikum en skv. 1. mgr. ber bæjarfulltrúa, nefndarfulltrúa eða starfsmanni sveitar­félagsins að víkja sæti við meðferð og afgreiðslu máls þegar það varðar hann eða nána venslamenn hans svo sérstaklega að almennt má ætla að viljaafstaða hans mótist að einhverju leyti þar af. Þessi regla tekur einnig til gerðar samninga fyrir hönd sveitarfélagsins.

Að öðru leyti vísast til 20. gr. sveitarstjórnarlaga.

18. gr.

Varamenn í bæjarstjórn.

Varamenn taka sæti í þeirri röð sem þeir eru kosnir til bæjarstjórnar eða eftir samkomulagi sem aðilar að sameiginlegum framboðslista hafa komið sér saman um, sbr. 21. gr. sveitar­stjórnar­laga. Tilkynning um slíkt samkomulag skal lögð fram í upphafi kjörtímabils og gildir hún til loka þess.

IV. KAFLI

Réttindi og skyldur bæjarfulltrúa.

19. gr.

Skyldur bæjarfulltrúa.

Bæjarfulltrúa ber skylda til að taka þátt í öllum bæjarstjórnarfundum og fundum í nefndum og ráðum sem hann hefur verið kjörinn til nema lögmæt forföll hamli.

Aðal- og varamönnum í bæjarstjórn er skylt að taka kjöri í nefnd, ráð eða stjórn á vegum sveitarfélagsins, sem og til annarra trúnaðarstarfa á vegum sveitarfélagsins. Sá sem verið hefur forseti heilt kjörtímabil eða lengur eða gegnt ákveðnu starfi innan bæjarstjórnar jafnlangan tíma eða lengur getur skorast undan kosningu til þess starfs jafnlangan tíma og hann hefur haft starfið með höndum. Ósk um undanþágu skal sett fram áður en kjör í viðkomandi nefnd eða trúnaðarstarf fer fram.

Hverjum bæjarfulltrúa er skylt að inna af hendi störf sem bæjarstjórn felur honum og varða verkefni bæjarstjórnarinnar.

Bæjarfulltrúar skulu gæta trúnaðar um það sem þeir verða áskynja í starfi sínu og leynt á að fara samkvæmt lögum eða eðli máls. Þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi.

20. gr.

Réttur bæjarfulltrúa .

Bæjarfulltrúar eru sjálfstæðir í störfum sínum. Þeir eru einungis bundnir af lögum og eigin sannfæringu um afstöðu til einstakra mála.

Bæjarfulltrúi á rétt á að tekið verði á dagskrá bæjarstjórnarfundar hvert það málefni sem sérstaklega varðar hagsmuni sveitarfélagsins eða verkefni þess.

Mál sem ekki er tilgreint á boðaðri dagskrá bæjarstjórnarfundar verður þó ekki tekið til afgreiðslu á viðkomandi fundi án samþykkis 2/3 hluta fundarmanna.

Bæjarfulltrúar hafa málfrelsi á fundum bæjarstjórnar eftir því sem nánar er ákveðið í fundarsköpum bæjarstjórnar. Þeir hafa tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum bæjarstjórnar.

Vilji bæjarfulltrúi ekki una úrskurði forseta um stjórn fundar og fundarsköp getur hann skotið úrskurðinum til bæjarstjórnar sem sker úr án umræðna.

21. gr.

Aðgangur að gögnum.

Vegna starfa sinna í bæjarstjórn á sérhver bæjarfulltrúi rétt á að kynna sér gögn og upplýsingar sem fyrir liggja í stjórnsýslu sveitarfélagsins og varða málefni sem komið geta til umfjöllunar í bæjarstjórn.

Beiðni um slíkt skal beint skriflega til skrifstofu sveitarfélagsins. Tiltaka skal í beiðninni hvaða gögnum óskað er eftir og/eða um hvaða málefni þau fjalla. Miða skal við að aðgangur sé veittur eða gögn afhent innan 5 daga frá móttöku beiðninnar.

Ef gögn eru undanþegin upplýsingarétti almennings er óheimilt að taka af þeim afrit og fara með þau af skrifstofu, sbr. 28. gr. sveitarstjórnarlaga, nema að höfðu samráði við bæjar­stjóra eða viðkomandi sviðsstjóra.

Bæjarfulltrúi skal eiga eðlilegan aðgang að skrifstofu og stofnunum sveitarfélagsins í þeim tilgangi að kynna sér starfsemi sveitarfélagsins og rekstur.

22. gr.

Siðareglur og góðir starfshættir.

Bæjarfulltrúi skal í störfum sínum fara eftir þeim siðareglum sem bæjarstjórn setur sér, sbr. 29. gr. sveitarstjórnarlaga.

23. gr.

Lausn frá störfum.

Telji bæjarfulltrúi sig ekki geta gegnt skyldum í bæjarstjórn án óhæfilegs álags, getur hann óskað eftir því við bæjarstjórn að hún:

  1. létti af honum störfum eða
  2. veiti honum lausn úr bæjarstjórn um tiltekinn fyrirfram ákveðinn tíma eða til loka kjörtímabils.

Þegar bæjarfulltrúi flytur úr sveitarfélaginu um stundarsakir má bæjarstjórn ákveða, að ósk hans, að hann skuli víkja úr bæjarstjórn þar til hann tekur aftur búsetu í sveitarfélaginu. Slík ákvörðun skal tekin áður en bæjarfulltrúi flytur um stundarsakir. Sé ekki tekin ákvörðun samkvæmt þessari málsgrein missir bæjarfulltrúi kjörgengi við skráningu lögheimilis í öðru sveitarfélagi.

Missi bæjarfulltrúi kjörgengi skal hann víkja úr bæjarstjórn. Ef bæjarfulltrúi missir fjárforræði skal bæjarstjórn veita honum lausn frá störfum þann tíma er sviptingin gildir.

24. gr.

Boðun varamanna.

Þegar aðalmaður er vanhæfur til meðferðar máls í bæjarstjórn má boða varamann hans til meðferðar þess og afgreiðslu. Að afgreiðslu máls lokinni tekur aðalmaður sæti sitt á viðkomandi fundi á ný. Verði innköllun varamanns ekki við komið getur vanhæfur bæjarfulltrúi krafist þess að umræðu og afgreiðslu máls verði frestað til næsta fundar. Frestun nær þó ekki fram að ganga ef 2/3 hlutar viðstaddra bæjar­fulltrúa greiða atkvæði gegn frestun eða ef frestun hefur í för með sér að gengið sé gegn lögbundnum afgreiðslu­tíma máls.

Þegar aðalmaður getur ekki mætt til fundar eða þarf að víkja af fundi af heilsufarsástæðum eða af öðrum óviðráðanlegum ástæðum tekur varamaður hans sæti í bæjarstjórn á þeim fundi. Aðalmaður skal tilkynna forföll til fundarboðanda skv. samþykkt þessari, eins fljótt og auðið er og óska eftir því að varamaður verði boðaður. Forföll samkvæmt þessari málsgrein taka ávallt til viðkomandi fundar í heild, eða til loka fundar sé um það að ræða.

Þegar fyrirséð er að aðalmaður í bæjarstjórn mun taka hlé frá störfum vegna atvika sem greinir í 2. mgr. í a.m.k. einn mánuð skal varamaður hans taka sæti í bæjarstjórninni frá og með næsta fundi, enda séu þá ástæður forfalla enn til staðar. Þegar forföllum lýkur tekur aðalmaður sæti sitt að nýju frá og með næsta fundi.

Þegar aðalmaður fellur frá, missir kjörgengi eða fær lausn frá starfi í bæjarstjórn skal varamaður hans taka sæti í bæjarstjórn frá og með næsta fundi.

25. gr.

Þóknun o.fl.

Bæjarfulltrúi skal fá hæfilega þóknun úr sveitarsjóði fyrir störf sín í bæjarstjórn. Ef um langan veg er að fara milli heimilis bæjarfulltrúa og fundarstaðar bæjarstjórnar skal bæjarfulltrúi fá hæfilega greiðslu vegna ferðakostnaðar. Takist bæjarfulltrúi á hendur ferð á vegum sveitarfélagsins samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnarinnar á hann rétt á greiðslu hæfilegs ferða- og dvalarkostnaðar.

Bæjarstjórn setur nánari reglur um greiðslur skv. 1. mgr.

Bæjarfulltrúi má ekki afsala sér greiðslum sem honum eru ákveðnar á grundvelli þessarar greinar.

26. gr.

Réttindi og skyldur varamanna.

Ákvæði þessa kafla, um réttindi og skyldur bæjarfulltrúa, eiga einnig við um varamenn þegar þeir taka sæti í bæjarstjórn.

V. KAFLI

Bæjarráð.

27. gr.

Kosning bæjarráðs

Bæjarstjórn skal á fyrsta fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum kjósa þrjá aðalmenn og jafnmarga varamenn í bæjarráð til fjögurra ára. Aðalmenn í bæjarstjórn eru einir kjörgengir sem aðalmenn og varamenn í bæjarráð, sbr. 36. gr. sveitarstjórnarlaga. Heimilt er þó að ákveða að aðalfulltrúar og varafulltrúar af sama framboðslista og hinn kjörni bæjarráðsmaður verði varamenn hans í þeirri röð sem þeir skipuðu listann þegar kosið var til bæjarstjórnar, sbr. 36. gr. sveitarstjórnarlaga.

Bæjarstjórn kýs formann og varaformann bæjarráðs úr hópi kjörinna bæjarráðsmanna.

Bæjarráð getur ráðið sér fundarritara utan bæjarráðs. Kosning í bæjarráð er ávallt hlutfalls­kosning. Atkvæðagreiðsla skal vera leynileg sé þess óskað.

28. gr.

Fundartími bæjarráðs.

Bæjarráð skal að jafnaði halda fund einu sinni í viku á mánudögum kl. 16.15.

Aukafundi skal halda ef bæjarstjóri sveitarfélagsins, formaður bæjarráðs eða a.m.k. tveir bæjarráðsmenn óska þess.

29. gr.

Boðun funda bæjarráðs.

Bæjarstjóri undirbýr bæjarráðsfundi í samráði við formann bæjarráðs.

Hann sér um að bæjarráð sé boðað til fundar með skriflegu fundarboði ásamt dagskrá a.m.k. einum sólarhring fyrir fund. Ef fundur er boðaður með rafrænum hætti fer fundarboð fram skv. 9. gr. samþykktar þessarar.

Geti bæjarráðsmaður ekki sótt fund skal hann tilkynna bæjarstjóra um forföll og óska eftir því að varamaður verði boðaður.

30. gr.

Stjórnun bæjarráðs.

Formaður bæjarráðs stjórnar fundum þess og sér um að allt fari löglega og skipulega fram á fundum þess. Hann úrskurðar í ágreiningsmálum sem upp kunna að koma út af fundar­sköpum en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar bæjarráðsins.

Heimilt er að taka mál til meðferðar í bæjarráði þótt ekki sé það tilgreint í dagskrá. Þó er skylt að fresta afgreiðslu slíks máls ef einhver bæjarráðsmanna óskar þess.

31. gr.

Áheyrnarfulltrúar í bæjarráði.

Framboðslisti sem fulltrúa á í bæjarstjórn en ekki í bæjarráði má tilnefna bæjarfulltrúa til setu í bæjarráði með málfrelsi og tillögurétt. Framboðum sem eiga áheyrnarfulltrúa í bæjar­ráði er heimilt að tilnefna varamann í forföllum aðalmanns. Ákvæði um launakjör, sbr. 25. gr., eiga einnig við áheyrnarfulltrúa.

Áheyrnarfulltrúi og varaáheyrnarfulltrúi í bæjarráði skulu uppfylla kjörgengisreglur 36. gr. sveitarstjórnarlaga.

32. gr.

Verkefni bæjarráðs.

Bæjarráð fer ásamt bæjarstjóra með framkvæmdastjórn og fjármálastjórn sveitarfélagsins að því leyti sem þessi mál eru ekki öðrum falin.

Bæjarráð hefur eftirlit með stjórnsýslu sveitarfélagsins og fjármálastjórn þess, semur drög að fjárhagsáætlun og viðaukum við hana og leggur þau ásamt bæjarstjóra fyrir bæjarstjórn.

Bæjarráð hefur eftirlit með rekstri áhaldahúss og Hornafjarðarveitna.

Þá sér bæjarráð um að ársreikningar sveitarfélagsins séu samdir reglum samkvæmt og lagðir fyrir bæjarstjórn til meðferðar og afgreiðslu.

Bæjarráð gerir tillögur til bæjarstjórnar um afgreiðslu einstakra mála sem það fær til meðferðar. Bæjarráði er þó heimil fullnaðarafgreiðsla mála sem ekki varða verulega fjárhag sveitarsjóðs eða stofnana hans, enda sé ekki ágreiningur milli bæjarráðsmanna eða við bæjarstjóra um slíka afgreiðslu.

Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar semur kjörskrá vegna kosninga, fjallar um athugasemdir, gerir nauðsynlegar leiðréttingar og úrskurðar um ágreiningsmál sem upp kunna að koma fram að kjördegi.

Meðan bæjarstjórn er í sumarleyfi fer bæjarráð með sömu heimildir og bæjarstjórn hefur ella.

Bæjarstjórn getur falið bæjarráði fullnaðarafgreiðslu mála, nema lög mæli á annan veg.

33. gr.

Heimild bæjaráðs til fullnaðarákvörðunar.

Bæjarráði er heimil fullnaðarafgreiðsla mála á grundvelli erindisbréfs skv. 10. tl. 5. gr. samþykktar þessarar, án staðfestingar bæjarstjórnar ef:

  1. lög eða eðli máls mæla ekki sérstaklega gegn því,
  2. þau varði ekki fjárhag sveitarfélagsins umfram það sem kveðið er á um í fjárhags­áætlun,
  3. þau víkja ekki frá stefnu bæjarstjórnar í veigamiklum málum.

Bæjarráð hefur heimild til fullnaðarákvörðunar um lán, ábyrgðir eða aðrar fjárhagslegar skuldbindingar sveitarfélagsins og sölu eigna sveitarfélagsins og annarra réttinda þess, sbr. 5. og 6. tl. 1. mgr. 58. gr. sveitarstjórnarlaga, enda sé ekki um verulega fjárhagslega hagsmuni að ræða og ákvörðun rúmast innan fjárhagsáætlunar til eins árs og áætlunar til fjögurra ára, eigi hún við.

Fullnaðarákvarðanir sem teknar hafa verið sæta ekki eiginlegu málskoti innan stjórnsýslu sveitarfélagsins, heldur getur aðili máls átt rétt á endurupptöku ákvörðunar, sbr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Ef óskað er endurupptöku máls sem bæjarráð hefur afgreitt, skal leggja það fyrir bæjarstjórn til endanlegrar afgreiðslu.

VI. KAFLI

Fastanefndir, ráð og stjórnir aðrar en bæjarráð.

34. gr.

Kosning fastanefnda og kjörtímabil þeirra.

Bæjarstjórn kýs fulltrúa í nefndir eftir því sem fyrir er mælt í lögum og samþykkt þessari. Slíkar nefndir teljast fastanefndir bæjarstjórnar.

Kjörtímabil fastanefnda er hið sama og bæjarstjórnar, nema annað leiði af lögum eða samþykkt þessari.

Að loknum sveitarstjórnarkosningum halda fastanefndir þó umboði sínu þar til nýkjörin bæjarstjórn hefur kjörið nýja nefnd í þeirra stað en með sömu takmörkunum valdheimilda og fyrri bæjarstjórn sætti að afloknum kosningum, sbr. 12. gr. og 2. mgr. 37. gr. sveitarstjórnarlaga.

35. gr.

Kosning og kjörgengi.

Kosningar í fastanefndir bæjarstjórnar, nefndir fyrir hluta sveitarfélagsins, nefndir til að fara með einstök verkefni eða málaflokka og aðrar nefndir og stjórnir sem sveitarfélagið á aðild að, skulu vera leynilegar og bundnar hlutfallskosningar ef þess er óskað. Framkvæmd kosninga skal þá vera í samræmi við ákvæði 44. og 45. gr. sveitarstjórnarlaga.

Ef ekki er kosið hlutfallskosningu til nefndar, sbr. 1. mgr. 43. gr., sveitarstjórnarlaga, skal bæjarstjórn gæta þess að fullnægja kröfum um kynjahlutfall skv. 2. tölul. 44. gr. laganna við skipun í viðkomandi nefnd.

Þeir einir eru kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir sem hafa kosningarrétt í sveitarfélaginu, nema annað leiði af lögum, sbr. m.a. 2. mgr. 39. gr. sveitarstjórnarlaga.

Starfsmenn fyrirtækja og stofnana sveitarfélagsins eru ekki kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir þeirra fyrirtækja eða stofnana sem þeir starfa hjá. Bæjarstjórn getur þó ákveðið að víkja frá þessu ef málefni vinnuveitanda eru óverulegur þáttur í starfi viðkomandi nefndar og starfið er ekki þess eðlis að hætta sé á hagsmunaárekstrum vegna nefndarsetu.

36. gr.

Valdsvið nefnda og framsal bæjarstjórnar til fastanefnda
á valdi til fullnaðarafgreiðslu mála.

Bæjarstjórn getur falið nefnd/ráði fullnaðarafgreiðslu mála einstakra mála eða málaflokka nema slíkt vald sé að lögum sérstaklega falið bæjarstjórn til ákvörðunar, sbr. 10. tl. 5. gr. samþykktar þessarar.

Kjörnum nefndum sem taldar eru upp í 47. gr. samþykktar þessarar er heimilt að afgreiða á grundvelli erindisbréfs skv. 10. tl. 5. gr., án staðfestingar bæjarstjórnar, mál á verksviði þeirra ef:

  1. lög eða eðli máls mæla ekki sérstaklega gegn því,
  2. þau varði ekki fjárhag sveitarfélagsins umfram það sem kveðið er á um í fjárhagsáætlun,
  3. þau víkja ekki frá stefnu bæjarstjórnar í veigamiklum málum.

Fullnaðarákvarðanir sem teknar hafa verið sæta ekki eiginlegu málskoti innan stjórnsýslu sveitarfélagsins, heldur getur aðili máls átt rétt á endurupptöku ákvörðunar, sbr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 sem og 55. gr. samþykktar þessarar.

Sé nefnd ekki falið að taka fullnaðarákvörðun um mál, skv. lögum eða samþykkt þessari, teljast ályktanir hennar tillögur til bæjarstjórnar, enda þótt þær séu orðaðar sem ákvarðanir eða samþykktir nefndar. Slíkar ákvarðanir þurfa staðfestingu bæjarstjórnar.

37. gr.

Afgreiðsla á fundargerðum.

Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna skulu lagðar fyrir bæjarráð til kynningar eða afgreiðslu og staðfestingar.

Þær ályktanir eða tillögur í fundargerðum sem þarfnast staðfestingar bæjarráðs eða bæjar­stjórnar eru lagðar fyrir sem sérstök mál og eru afgreidd með formlegum hætti.

Ályktun nefndar sem hefur fjárútlát í för með sér skal lögð fyrir bæjarráð eftir því sem fyrir er mælt í samþykkt um stjórn sveitarfélagsins.

38. gr.

Fundir nefnda og um opna fundi þeirra.

Fundir nefnda skulu almennt haldnir fyrir luktum dyrum. Nefnd er heimilt að opna fundi sína komi fram ósk um slíkt svo fremi sem lög eða eðli máls hamli því ekki.

Ef fram kemur ósk frá íbúum um opinn nefndarfund skal slík ósk vera skrifleg. Nefnd getur orðið við slíkri ósk ef a.m.k. 20 íbúar 18 ára eða eldri standa að henni og fram kemur í skriflegu erindi hvaða máli viðkomandi vilji fá að fylgjast með.

39. gr.

Um ályktunarhæfni funda og atkvæðagreiðslur.

Um fundi nefnda, ályktunarhæfi og atkvæðagreiðslur gilda ákvæði III. kafla samþykktar þessarar og sveitarstjórnarlaga eftir því sem við getur átt.

40. gr.

Fundarstjórn og fundargerðir.

Formaður nefndar stýrir fundum. Ákvæði III. kafla samþykktar þessarar gilda um meðferð mála í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins eftir því sem við á.

Nefndir, ráð og stjórnir sveitarfélagsins skulu halda gerðabækur. Nefnd getur ráðið sér sérstakan fundarritara utan nefndar. Um ritun fundargerða, nefnda, ráða og stjórna gilda sömu reglur og um ritun fundargerða bæjarstjórnar, sbr. II. mgr. 16. gr. samþykktar þessarar.

41. gr.

Varamenn.

Varamenn taka sæti í nefndum í þeirri röð sem þeir eru kosnir.

Þegar kosið er til nefndar hlutbundinni listakosningu eða listi hefur verið sjálfkjörinn og aðalmaður í nefnd er forfallaður taka varamenn þess lista sem aðalmaður er kjörinn af sæti í nefnd í þeirri röð sem þeir skipa listann eftir að endurröðun á hann hefur farið fram skv. 4. tölul. 1. mgr. 45. gr. sveitarstjórnarlaga.

Ef tveir eða fleiri flokkar eða framboðslistar til bæjarstjórnar leggja í sameiningu fram tillögu að lista við hlutbundna kosningu í nefnd bæjarstjórnar geta þeir komið sér saman um að varamenn á listanum vegna nefndarkosningarinnar, sem eru þar fulltrúar sama flokks eða framboðslista og sá aðalmaður í nefnd sem um ræðir, taki sæti hans í nefndinni í þeirri röð sem þeir voru kosnir án tillits til þess hvar þeir annars eru í röð varamanna. Sé enginn úr hópi varamanna viðkomandi lista í sama flokki eða tilheyri sama framboðslista og aðalmaður tilheyrði þegar kosning í nefnd fór fram taka varamenn af listanum sæti eftir venjulegum reglum.

Yfirlýsingu um samkomulag skv. 3. mgr. skal leggja fram á fyrsta bæjarstjórnarfundi eftir að nefndarkosning fór fram og gildir hún til loka kjörtímabils eða þar til kjörið er í nefnd að nýju.

42. gr.

Boðun varamanna.

Um boðun varamanna á nefndarfundi gilda ákvæði 24. gr. samþykktar þessarar eftir því sem við á.

Þegar aðalmaður í nefnd fellur frá, missir kjörgengi, fær lausn frá nefndarstarfi eða forfallast varanlega frá því að sitja í nefnd tekur varamaður hans sæti í nefndinni nema bæjarstjórn ákveði að kjósa aðalmann að nýju, ella skipar bæjarstjórn nýjan varamann til setu í nefndinni.

Ákvæði þessa kafla samþykktarinnar um varamenn taka einnig til varaáheyrnarfulltrúa eftir því sem við getur átt.

43. gr.

Lausn frá nefndarsetu og endurskipun.

Fulltrúum í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins, sem ekki eru aðal- eða varamenn í bæjarstjórn, er heimilt að segja af sér nefndastörfum hvenær sem er á kjörtímabili. Aðrir fulltrúar geta óskað eftir því við bæjarstjórn að þeim verði veitt lausn tímabundið eða út kjörtímabilið og metur hún þá hvort skilyrði til þess séu fyrir hendi.

Bæjarstjórn getur hvenær sem er á kjörtímabili ákveðið að skipta um fulltrúa í nefndum, ráðum og stjórnum sem hún kýs eða skipar ef ekki er um það ágreiningur innan bæjar­stjórnar eða málefnalegar ástæður mæla með slíkri breytingu, svo sem ef nefndar­maður, án lögmætra forfalla, mætir ekki á fundi nefndar eða brýtur gegn þagnar­skyldu. Enn fremur getur bæjarfulltrúi krafist þess að nefnd verði endurskipuð telji hann ástæðu til. Bæjarstjórn er þó heimilt að hafna slíkri beiðni ef hún er bersýnilega tilefnis­laus að því tilskildu að 2/3 fundarmanna greiði atkvæði með tillögu um höfnun. Við framan­greindar breytingar á skipan fulltrúa í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins skal kjósa alla fulltrúa að nýju og fer þá um kjör þeirra skv. 1. mgr. 43. gr. sveitar­stjórnar­laga nema enginn ágreiningur sé innan bæjarstjórnar um breytingarnar.

Breytingar á nefndaskipan samkvæmt þessari grein skulu fullnægja skilyrðum 2. tölul. 44. gr. og 4. tölul. 1. mgr. 45. gr. sveitarstjórnarlaga um kynjahlutföll.

44. gr.

Áheyrnarfulltrúar.

Framboðsaðila sem fulltrúa á í bæjarstjórn, en nær ekki kjöri í fastanefnd, er heimilt að tilnefna áheyrnarfulltrúa til þátttöku í fundum nefnda. Um áheyrnarfulltrúa á fundum nefnda gilda sömu þagnarskylduákvæði laga og eiga við um aðra nefndarmenn. Áheyrnarfulltrúi og varaáheyrnarfulltrúi skulu fullnægja kjörgengisskilyrðum í viðkomandi nefnd.

45. gr.

Þóknun.

Bæjarstjórn er skylt að ákveða kjörnum fulltrúum í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum sveitarfélagsins hæfilega þóknun fyrir þau störf, samkvæmt mati bæjarstjórnar, í samræmi við reglur sem hún setur. Bæjarstjórn er með sama hætti heimilt að ákveða að greiða áheyrnarfulltrúum þóknun fyrir störf þeirra í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum sveitar­félagsins.

46. gr.

Önnur réttindi og skyldur.

Nefndarmönnum er skylt að sækja fundi nefndar.

Ákvæði III. og IV. kafla samþykktar þessarar gilda að öðru leyti um fulltrúa í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins eftir því sem við á. Réttindi takmarkast þó eftir eðli máls við það sem fulltrúum er þörf á vegna starfa í viðkomandi nefnd.

47. gr.

Aðrar nefndir, ráð og stjórnir sem sveitarfélagið á aðild að.

Bæjarstjórn kýs fulltrúa í nefndir, ráð og stjórnir sem sveitarfélagið á aðild að samkvæmt viðkomandi lögum eða samþykktum. Ákvæði þessa kafla samþykktarinnar eiga við um slíka fulltrúa eftir því sem við getur átt.

Að því leyti sem nefnd, ráð eða stjórn lögaðila, sem bæjarstjórn kýs fulltrúa til skv. 1. mgr., fer með framkvæmd eða ábyrgð á verkefni sem sveitarfélaginu væri ekki sjálfu heimilt að sinna, þá er fulltrúi sveitarfélagsins í viðkomandi nefnd, ráði eða stjórn ekki bundinn af fyrirmælum bæjarstjórnar um þau störf. Hið sama á við að því leyti sem það leiðir af lögum sem gilda um rekstur og starfsemi viðkomandi lögaðila.

48. gr.

Fastanefndir, aðrar nefndir, stjórnir og ráð sem sveitarfélagið á aðild að.

Sveitarstjórn kýs í eftirtaldar nefndir, ráð og stjórnir:

A. Til eins árs:

  1. Bæjarráð. Bæjarstjórn skal á fyrsta fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum kjósa þrjá aðalmenn og þrjá til vara í bæjarráð, sbr. 36. gr. sveitarstjórnarlaga. Aðalmenn í bæjarstjórn eru einir kjörgengir sem aðalmenn í bæjarráð. Kveðið er á um verkefni bæjarráðs í 31. gr. samþykktar þessarar en auk þeirra verkefna sem þar er kveðið á um hefur bæjarráð með höndum stjórn eignasjóðs.

B. Til fjögurra ára. Bæjarstjórn kýs fimm fulltrúa og jafnmarga til vara, nema annað sé tekið fram, í eftirfarandi ráð og nefndir sem kosin eru á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og er kjörtímabil þeirra hið sama og bæjarstjórnar. Bæjarstjórn kýs ráðunum formann og varaformann.

  1. Kjörstjórn. Bæjarstjórn kýs á fyrsta fundi sínum þrjá fulltrúa og jafnmarga til vara í yfirkjörstjórn til fjögurra ára vegna kosninga til Alþingis, sbr. 10. gr. laga nr. 24/2000, og bæjarstjórna, sbr. 14. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998. Heimilt er að kjósa undirkjörstjórn fyrir hverja kjördeild, þrjá aðalmenn og þrjá til vara.
  2. Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd fer með skóla-, íþrótta- og tómstundamál, samkvæmt lögum og reglugerðum þar um, ásamt öðrum þeim verkefnum sem nefnd­inni eru falin með erindisbréfi.
  3. Atvinnu- og menningarmálanefnd fer með málefni safna, menningarmál, land­bún­aðar­mál og atvinnumál samkvæmt lögum og reglugerðum þar um ásamt öðrum þeim verkefnum sem nefndinni eru falin með erindisbréfi.
  4. Ungmennaráð. Um verkefni og skipan ungmennaráðs fer samkvæmt sérstökum samþykktum sem þarfnast staðfestingar sveitarstjórnar.
  5. Félagsmálanefnd fer með verkefni sveitarfélagsins á grundvelli laga um félags­þjónustu sveitarfélaga, barnaverndarmál, málefni fatlaðra og fer með stjórn félags­legra íbúða samkvæmt lögum og reglugerðum og samningum þar um ásamt öðrum þeim verkefnum sem nefndinni eru falin með erindisbréfi.
  6. Umhverfis- og skipulagsnefnd fer með umhverfismál, byggingarmál, skipulagsmál, brunavarnir og brunamál, almannavarnir, hreinlætismál, umferðarmál, umhverfismál, gróður- og náttúruverndarmál samkvæmt lögum og reglugerðum þar um ásamt öðrum þeim verkefnum sem nefndinni eru falin með erindisbréfi.
  7. Hafnarstjórn fer með hafnamál samkvæmt lögum og reglugerðum þar um ásamt öðrum þeim verkefnum sem stjórninni eru falin með erindisbréfi.
  8. Almannavarnanefnd Hornafjarðar. Bæjarstjórn skipar fimm fulltrúa og fimm til vara.
  9. Heilbrigðis- og öldrunarráð fer með málefni aldraðra og rekstur HSSA samkvæmt lögum, reglugerðum og samningum þar um ásamt öðrum þeim verkefnum sem ráðinu eru falin með erindisbréfi.

C. Stjórnir og samstarfsráð.

Hér er um að ræða stjórnir stofnana með sjálfstæðan fjárhag og tilnefningar í samstarfsráð sem hafa endanlegt ákvörðunarvald í málefnum sínum, þ.e. þurfa ekki staðfestingu bæjar­stjórnar til að koma málum í framkvæmd innan ákveðins fjárhagslegs ramma. Kjörtíma­bil þeirra er samkvæmt samþykktum um stjórn viðkomandi stofnunar.

  1. Stjórn Náttúrustofu Suðausturlands. Bæjarstjórn kýs tvo fulltrúa og tvo til vara í stjórn Náttúrustofu Suðausturlands ses. samkvæmt samþykktum félagsins.
  2. Heilbrigðisnefnd Austurlands samkvæmt samþykktum nefndarinnar á hverjum tíma.

D. Tilnefningar og kosningar.

Fulltrúar eru kosnir á ársþing og ársfundi stofnana sem sveitarfélagið á aðild að. Kosning skal fara fram á fyrsta og/eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og síðan í júní ár hvert vegna þeirra tilnefninga sem gilda í eitt ár.

  1. Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga. Samkvæmt lögum um Samband íslenskra sveitarfélaga kýs bæjarstjórn aðal- og varafulltrúa á landsþing sam­bands­ins. Fulltrúar sveitarfélagsins eru kosnir á fyrsta eða öðrum fundi nýkjör­innar sveitarstjórnar og er kjörtímabil þeirra hið sama og sveitarstjórnar.
  2. Fulltrúaráð Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands. Bæjarstjórn kýs einn aðalfulltrúa og einn til vara í fulltrúaráð Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands. Fulltrúi sveitarfélagsins er kosinn á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og er kjörtímabil hans hið sama og bæjarstjórnar.
  3. Samtök sunnlenskra sveitarfélaga. Bæjarstjórn kýs aðalfulltrúa og jafnmarga til vara á aðalfund SASS samkvæmt samþykktum þess hverju sinni. Fulltrúar sveitarfélagsins eru kosnir á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og er kjörtímabil þeirra hið sama og bæjarstjórnar.

E. Verkefnabundnar nefndir.

Bæjarstjórn getur kosið nefndir til að vinna að einstökum afmörkuðum verkefnum. Umboð slíkra nefnda stendur til loka kjörtímabils eða þar til verkefni hennar er lokið. Bæjarstjórn getur þó afturkallað umboð slíkra nefnda hvenær sem er. Bæjarstjórn útbýr erindisbréf fyrir nefndirnar þar sem hlutverk og staða þeirra er skilgreind.

VII. KAFLI

Bæjarstjóri og aðrir starfsmenn sveitarfélagsins.

49. gr.

Ráðning bæjarstjóra.

Bæjarstjórn ræður bæjarstjóra til þess að annast framkvæmd ákvarðana bæjarstjórnar og verkefni sveitarfélagsins. Bæjarstjórn skal gera skriflegan ráðningarsamning við bæjarstjóra þar sem starfskjör hans eru ákveðin. Ráðningartími bæjarstjóra skal að jafnaði vera sá sami og kjörtímabil bæjarstjórnar.

50. gr.

Hlutverk bæjarstjóra.

Bæjarstjóri er æðsti yfirmaður annars starfsliðs sveitarfélagsins. Hann skal sjá um að stjórn­sýsla sveitarfélagsins samræmist lögum, samþykktum og viðeigandi fyrirmælum yfir­manna.

Bæjarstjóri skal sitja fundi bæjarstjórnar. Þar hefur hann málfrelsi, tillögurétt og rétt til bókana en ekki atkvæðisrétt nema hann sé jafnframt kjörinn fulltrúi í bæjarstjórninni. Hann hefur jafnframt rétt til setu á fundum nefnda og ráða sem bæjarstjórn skipar.

Bæjarrstjóri skal sjá um að fundir bæjarstjórnar, bæjarráðs og annarra nefnda bæjar­stjórnar séu vel undirbúnir, m.a. í þeim tilgangi að mál sem þar eru afgreidd séu vel upplýst. Hann sér einnig um að ákvarðanir þær sem teknar eru af hálfu bæjar­stjórnar og annarra nefnda komist til framkvæmda, hafi bæjarstjórn ekki falið það öðrum.

Bæjarstjóri er prókúruhafi Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Honum er heimilt að veita öðrum starfsmanni sveitarfélagsins prókúru að fengnu samþykki bæjarstjórnar. Prókúruhafar skulu vera fjár síns ráðandi.

Bæjarstjóri undirritar skjöl varðandi kaup og sölu fasteigna sveitarfélagsins, lántökur og ábyrgðir, svo og önnur skjöl sem fela í sér skuldbindingar eða ráðstafanir sem samþykki bæjarstjórnar þarf til.

Bæjarstjóri getur staðfest kjörskrá í nafni bæjarstjórnar.

51. gr.

Ráðning í æðstu stjórnunarstöður.

Bæjarstjórn ræður eftirfarandi stjórnendur hjá Sveitarfélaginu Hornafirði og veitir þeim lausn frá starfi:

  1. Framkvæmdastjóra heilbrigðis- og öldrunarráðs.
  2. Fræðslustjóra.
  3. Umhverfis- og skipulagsstjóra.
  4. Félagsmálastjóra.
  5. Forstöðumann Hornafjarðarsafna.
  6. Upplýsinga- og gæðastjóra.
  7. Fjármálastjóra.

52. gr.

Um ráðningu annarra starfsmanna.

Yfirmenn ráða sína undirmenn og veita þeim lausn frá störfum nema vald til slíks sé með lögum fengið öðrum aðilum eða á annan veg mælt fyrir í reglugerðum um sérmál tiltekinna stofnana. Um ráðningu annarra starfsmanna en tilgreindir eru í 51. gr. fer eftir ákvæðum reglna vegna starfsmannaráðninga sem bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar hefur sett. Hafa skal samráð við viðkomandi fagnefnd þegar stjórnendur stofnana eru ráðnir.

53. gr.

Framsal bæjarstjórnar og nefnda til starfsmanna til fullnaðarafgreiðslu mála.

Bæjarstjórn er heimilt að fela embættismönnum fullnaðarafgreiðslu mála á sama hátt og með sömu skilyrðum og nefnd eru í 36. gr. samþykktar þessarar. Heimild þessi skal vera í erindisbréfi embættismanna staðfest af bæjarstjórn. Ef hann heyrir undir nefnd þá skal heimild vera í erindisbréfi viðkomandi nefndar sem málið heyrir undir og staðfest er af bæjarstjórn.

Bæjarstjórn skal setja skýrar reglur um afgreiðslu embættismanna. Viðkomandi fagnefndir skulu hafa eftirlit með þeim og kalla reglulega eftir skýringum og upplýsingum um ákvarðanir sem teknar eru á grundvelli þeirra.

Embættismanni er heimilt að vísa ákvörðun skv. 1. mgr. til viðkomandi fagnefndar til fullnaðarafgreiðslu.

54. gr.

Mál sem fengið hafa fullnaðarafgreiðslu nefnda eða
embættismanna er heimilt að vísa til bæjarstjórnar.

Mál sem embættismanni er heimilt að afgreiða eða sem hefur fengið afgreiðslu í nefnd getur komið til ákvörðunar bæjarstjórnar með tvennum hætti:

  1. Nefnd er skylt að vísa afgreiðslu máls til bæjarstjórnar ef a.m.k. þriðjungur atkvæðisbærra fundarmanna óskar eftir því með bókun á nefndarfundi.
  2. Bæjarfulltrúi getur með formlegri og rökstuddri tillögu óskað þess að ákvörðun nefndar skv. 36. gr. eða embættismanns skv. 52. gr. verði tekin á dagskrá bæjarstjórnar. Þetta gildir þó ekki ef ákvörðun hefur verið tilkynnt málsaðila og hagsmunir hans mæla gegn því að mál verði tekið upp að nýju.

55. gr.

Endurupptaka mála.

Aðili máls á rétt á að mál hans sé tekið til meðferðar á ný eftir fullnaðarafgreiðslu þess hjá bæjarstjórn, nefnd eða embættismanni ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða ef íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Beiðni um endurupptöku máls skal beina til bæjarráðs og verður að jafnaði að koma fram áður en þrír mánuðir eru liðnir frá því að málsaðila er tilkynnt um afgreiðslu.

Ef endurupptökuskilyrði eru fyrir hendi tekur bæjarráð ákvörðun um málsmeðferð.

56. gr.

Þagnarskylda starfsmanna.

Starfsmenn Sveitarfélagsins Hornafjarðar og aðrir sem sveitarfélagið ræður til vinnu við ákveðin verkefni eru bundnir þagnarskyldu um atriði sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu og leynt eiga að fara samkvæmt lögum, fyrirmælum yfirboðara eða eðli máls. Þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi.

57. gr.

Um starfskjör og réttindi starfsmanna.

Um starfskjör, réttindi og skyldur starfsmanna Sveitarfélagsins Hornafjarðar fer eftir ákvæðum kjarasamninga hverju sinni og ákvæðum ráðningarsamninga.

VIII. KAFLI

Fjármál sveitarfélagsins.

58. gr.

Fjárstjórnarvald bæjarstjórnar.

Einvörðungu bæjarstjórn getur tekið ákvarðanir um málefni sem varða verulega fjármál sveitarfélagsins. Til slíkra málefna teljast m.a. ákvarðanir um eftirtalin atriði séu ekki gerðar beinar undantekningar þar á með lögum:

  1. staðfestingu ársreiknings,
  2. fjárhagsáætlun næstkomandi árs,
  3. fjárhagsáætlun til fjögurra ára,
  4. viðauka við fjárhagsáætlanir skv. 2. og 3. tölul.,
  5. lán, ábyrgðir eða aðrar fjárhagslegar skuldbindingar sveitarfélagsins,
  6. sölu eigna sveitarfélagsins og annarra réttinda þess,
  7. álagningu skatta og gjalda,
  8. ráðningu eða uppsögn endurskoðanda.

59. gr.

Afgreiðsla og form fjárhagsáætlunar.

Bæjarstjórn skal á hverju ári afgreiða fjárhagsáætlun fyrir komandi ár og næstu þrjú ár þar á eftir. Bæjarráð leggur samkvæmt 1. mgr. 62. gr. sveitarstjórnarlaga tillögu um fjárhagsáætlun fyrir bæjarstjórn eigi síðar en 1. nóvember ár hvert. Bæjarstjórn skal fjalla um hana á tveimur fundum sem fram skulu fara með minnst tveggja vikna millibili. Að lokinni umræðu bæjarstjórnar skal afgreiða tillöguna, þó ekki síðar en 15. desember ár hvert.

Fjárhagsáætlanir skulu gefa glögga mynd af rekstri sveitarfélagsins, efnahag og breytingum á handbæru fé. Einnig skal þar koma fram greinargott yfirlit um tekjuöflun, ráðstöfun fjármuna og fjárheimildir sveitarfélagsins. Við gerð fjárhagsáætlana skal hafa hliðsjón af fjárhagslegri stöðu sveitarsjóðs og stofnana sveitarfélagsins við upphaf áætlunartímabilsins.

Bæjarstjórn skal senda ráðuneytinu fjárhagsáætlun innan fimmtán daga frá afgreiðslu hennar, sbr. 1. mgr. 76. gr. sveitarstjórnarlaga. Sama á við um viðauka við fjárhagsáætlun.

60. gr.

Bindandi áhrif ákvörðunar um fjárhagsáætlun ársins.

Ákvörðun sem bæjarstjórn tekur skv. 56. gr. samþykktar þessarar og 62. gr. sveitar­stjórnar­laga um fjárhagsáætlun næstkomandi árs er bindandi regla um allar fjárhags­legar ráðstafanir af hálfu sveitarfélagsins. Aðrir geta þó ekki byggt sjálfstæðan rétt til fjár­framlaga eða annarrar fyrirgreiðslu sveitarfélagsins á fjárhagsáætlunum.

Óheimilt er að víkja frá fjárhagsáætlun skv. 1. mgr. nema bæjarstjórn hafi áður samþykkt viðauka við áætlunina. Á þetta við um hvers kyns ákvarðanir, samninga eða aðrar fjárhagslegar ráðstafanir sem hafa í för með sér breytingar á tekjum, útgjöldum, skuldbindingum eða tilfærslur milli liða í fjárhagsáætlun í þegar samþykktri áætlun. Viðauki er ekki gildur nema hann feli einnig í sér útfærða ákvörðun um það hvernig þeim útgjöldum eða tekjulækkun sem gert er ráð fyrir verði mætt. Á það einnig við þótt heildarútgjöld eða heildartekjur breytist ekki vegna samþykktar hans.

Þrátt fyrir 2. mgr. má í undantekningartilvikum gera þær ráðstafanir sem skylt er samkvæmt lögum eða öðrum bindandi réttarreglum án þess að bæjarstjórn hafi áður samþykkt viðauka, enda þoli þær ekki bið. Viðhlítandi heimildar bæjarstjórnar skal þá afla svo fljótt sem auðið er. Skal erindi um slíka heimild lagt fyrir þegar á næsta fundi bæjarstjórnar.

61. gr.

Fjármálareglur og viðmið um afkomu sveitarfélagsins.

Bæjarstjórn ber að sjá til þess að rekstri, fjárfestingum og ráðstöfun eigna og sjóða sé þannig hagað á hverjum tíma að sveitarfélagið muni til framtíðar geta sinnt skyldubundnum verkefnum sínum, sbr. 64. gr. sveitarstjórnarlaga og ákvæði reglugerðar nr. 502/2012 um fjárhagsleg viðmið og eftirlit með fjármálum sveitarfélaga.

62. gr.

Ábyrg meðferð fjármuna og heimildir til fjárskuldbindinga.

Bæjarstjórn skal gæta ábyrgðar við meðferð fjármuna sveitarfélagsins og varðveita fjármuni með ábyrgum hætti, svo sem á innlánsreikningum fjármálastofnana eða með því að kaupa ríkistryggð verðbréf. Um heimildir til fjárfestinga í hagnaðarskyni fer skv. ákvæðum 65. gr. sveitarstjórnarlaga.

Áður en bæjarstjórn tekur ákvörðun um fjárfestingu, framkvæmd eða aðra skuldbindingu sem nemur hærri fjárhæð en 20% af skatttekjum sveitarfélagsins yfirstandandi reikningsár er skylt að gera sérstakt mat á áhrifum hennar á fjárhag sveitarfélagsins, sbr. ákvæði 66. gr. sveitarstjórnarlaga.

Um heimildir sveitarfélagsins til veðsetninga og að gangast í ábyrgðir fer skv. 68. og 69. gr. sveitarstjórnarlaga.

63. gr.

Ársreikningur.

Gera skal ársreikning fyrir sveitarsjóð, stofnanir sveitarfélagsins og fyrirtæki þess. Jafnframt skal gera samstæðureikning fyrir sveitarfélagið, þ.e. sveitarsjóð, stofnanir þess og fyrirtæki með sjálfstætt reikningshald, sbr. 60. gr. sveitarstjórnarlaga. Ársreikningur skal gerður samkvæmt lögum um ársreikninga, reglum settum samkvæmt þeim lögum og sveitar­stjórnar­lögum, sem og góðri reikningsskilavenju.

Ársreikningur sveitarfélagsins skal fullgerður og samþykktur af bæjarráði eða bæjarstjóra sveitarfélagsins og tilbúinn til endurskoðunar og afgreiðslu í bæjarstjórn fyrir 15. apríl ár hvert.

Bæjarstjórn skal hafa lokið staðfestingu ársreiknings sveitarfélagsins, stofnana og fyrirtækja þess eigi síðar en 15. maí ár hvert.

Ársreikning sveitarfélagsins, ásamt skýrslu endurskoðanda, skal senda ráðuneyti sveitar­stjórnar­mála og Hagstofu Íslands ekki síðar en 20. maí ár hvert.

64. gr.

Endurskoðun ársreikninga.

Bæjarstjórn ræður löggiltan endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki sem annast skal endurskoðun ársreikninga hjá sveitarfélaginu. Endurskoðun fer eftir lögum um endur­skoðendur, lögum um ársreikninga og alþjóðlegum endurskoðunarstöðlum, sem og fyrir­mælum 72. og 73. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

IX. KAFLI

Samráð við íbúa – Þátttökulýðræði.

65. gr.

Almenn atkvæðagreiðsla að frumkvæði íbúa.

Ef 25% þeirra sem kosningarrétt eiga í sveitarfélaginu óska almennrar atkvæðagreiðslu skv. 108. gr. sveitarstjórnarlaga skal bæjarstjórn verða við því eigi síðar en innan árs frá því að slík ósk berst.

Um framkvæmd undirskriftasöfnunar, hlutverk bæjarstjórnar og framkvæmd almennrar atkvæðagreiðslu fer skv. 107. gr. og 108. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

66. gr.

Gildistaka.

Samþykkt þessi sem bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar hefur sett skv. ákvæðum 9. og 18. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi samþykkt um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar nr. 586/2010 með síðari breytingum.

Innanríkisráðuneytinu, 11. júní 2013.

F. h. r.

Hermann Sæmundsson.

Stefanía Traustadóttir.

B deild - Útgáfud.: 27. júní 2013