Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1127/2019

Nr. 1127/2019 13. desember 2019

REGLUGERÐ
um fjárhæðir greiðslna fyrir árið 2020 samkvæmt lögum um réttindi lifandi líffæragjafa til tímabundinnar fjárhagsaðstoðar.

1. gr.

Fjárhæðir greiðslna samkvæmt lögum nr. 40/2009, um réttindi lifandi líffæragjafa til tímabund­innar fjárhagsaðstoðar, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2020:

  1. Hámarksfjárhæð tekjutengdra greiðslna skv. 1. málsl. 3. mgr. 10. gr. skal nema 786.313 kr. á mánuði.
  2. Lágmarksfjárhæð tekjutengdra greiðslna skv. 2. málsl. 3. mgr. 10. gr. skal nema 204.029 kr. á mánuði.
  3. Fjárhæð greiðslna til líffæragjafa í námi skv. 1. mgr. 15. gr. skal nema 204.029 kr. á mánuði.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 18. gr., sbr. 8. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 15. gr., laga nr. 40/2009, um réttindi lifandi líffæragjafa til tímabundinnar fjárhagsaðstoðar, öðlast gildi 1. janúar 2020. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1201/2018, um fjárhæðir greiðslna fyrir árið 2019 samkvæmt lögum um réttindi lifandi líffæragjafa til tímabundinnar fjárhagsaðstoðar.

Félagsmálaráðuneytinu, 13. desember 2019.

Ásmundur Einar Daðason.

Gunnhildur Gunnarsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 16. desember 2019