Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1076/2021

Nr. 1076/2021 28. september 2021

REGLUR
um sveiflujöfnunarauka á fjármálafyrirtæki.

1. gr.

Gildissvið.

Reglur þessar gilda um fjármálafyrirtæki sem skylt er að viðhalda sveiflujöfnunarauka sam­kvæmt 86. gr. d laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002.

 

2. gr.

Gildi sveiflujöfnunarauka.

Fjármálafyrirtæki skulu viðhalda sveiflujöfnunarauka vegna innlendra áhættuskuldbindinga með eftir­farandi hætti:

  1. Gildi sveiflujöfnunarauka skal vera 0% af áhættugrunni til og með 28. september 2022.
  2. Frá og með 29. september 2022 skal gildi sveiflujöfnunarauka vera 2% af áhættugrunni.

Fjármálafyrirtæki skal einnig viðhalda sveiflujöfnunaraukanum á samstæðugrunni.

Við útreikning eigin fjár sem viðhalda skal vegna sveiflujöfnunarauka ber að líta til vegins meðal­tals sveiflujöfnunarauka hér á landi og í öðrum ríkjum á Evrópska efnahagssvæðinu.

 

3. gr.

Gildistaka.

Reglur þessar, sem settar eru á grundvelli 1. mgr. 86. gr. d laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, hafa verið samþykktar af fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands og öðlast þegar gildi. Með gildistöku þeirra falla úr gildi reglur nr. 227/2020 um sveiflujöfnunarauka á fjármála­fyrirtæki.

 

Seðlabanka Íslands, 28. september 2021.

 

  Ásgeir Jónsson
seðlabankastjóri.
Haukur C. Benediktsson
framkvæmdastjóri.

                                                     

                                                    


B deild - Útgáfud.: 29. september 2021