Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 480/2019

Nr. 480/2019 20. maí 2019

REGLUR
um tæknilegar upplýsingar fyrir útreikning á vátryggingaskuld og kjarnagjaldþoli.

1. gr.

Gildissvið.

Reglur þessar gilda um starfsemi innlendra vátryggingafélaga og starfsemi erlendra vátrygg­inga­félaga hér á landi, sbr. 2. og 3. gr. laga nr. 100/2016, um vátryggingastarfsemi.

2. gr.

Upplýsingar um áhættulausan vaxtaferil fyrir viðeigandi gjaldmiðla.

Samkvæmt 1. mgr. 76. gr. laga nr. 100/2016 um vátryggingastarfsemi skal vátryggingaskuld vera samtala besta mats á skuldbindingum og áhættuálagi. Reglur þessar eru settar til að innleiða framkvæmdarreglugerðir framkvæmdastjórnarinnar (ESB) þar sem fram koma tæknilegar upp­lýsingar um áhættulausan vaxtaferil fyrir viðeigandi gjaldmiðla samkvæmt 2. mgr. 76. gr. laga nr. 100/2016.

3. gr.

Innleiðing reglugerða.

Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/165 frá 5. febrúar 2016 um tæknilegar upplýsingar fyrir útreikning á vátryggingaskuld og kjarnagjaldþoli vegna skýrslugjafar með viðmiðunardagsetningar frá 1. janúar til 30. mars 2016 í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB (Gjaldþolsáætlun II), sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 29 frá 3. maí 2018, bls. 96: https://www.efta.int/sites/default/files/documents/eea-supplements/icelandic/2018-is/su-nr-29-is-03-05-2018.pdf.

Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/869 frá 27. maí 2016 um tæknilegar upplýsingar fyrir útreikning á vátryggingaskuld og kjarnagjaldþoli vegna skýrslugjafar með viðmiðunardagsetningar frá 31. mars til 29. júní 2016 í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB um stofnun og rekstur fyrirtækja á sviði vátrygginga og endurtrygginga, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 29 frá 3. maí 2018, bls. 208: https://www.efta.int/sites/default/files/ documents/eea-supplements/icelandic/2018-is/su-nr-29-is-03-05-2018.pdf.

Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1376 frá 8. ágúst 2016 um tæknilegar upplýsingar fyrir útreikning á vátryggingaskuld og kjarnagjaldþoli vegna skýrslugjafar með viðmiðunardagsetningar frá 30. júní til 29. september 2016 í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB um stofnun og rekstur fyrirtækja á sviði vátrygginga og endurtrygginga, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 29 frá 3. maí 2018, bls. 310: https://www.efta.int/sites/default/files/ documents/eea-supplements/icelandic/2018-is/su-nr-29-is-03-05-2018.pdf.

Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1976 frá 10. nóvember 2016 um tæknilegar upplýsingar fyrir útreikning á vátrygg­inga­skuld og kjarnagjaldþoli vegna skýrslugjafar með viðmiðunardagsetningar frá 30. september til 30. desember 2016 í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB um stofnun og rekstur fyrirtækja á sviði vátrygginga og endurtrygginga, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 29 frá 3. maí 2018, bls. 433: https://www.efta.int/sites/ default/files/documents/eea-supplements/icelandic/2018-is/su-nr-29-is-03-05-2018.pdf.

Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/309 frá 23. febrúar 2017 um tæknilegar upplýsingar fyrir útreikning á vátryggingaskuld og kjarnagjaldþoli vegna skýrslugjafar með viðmiðunardagsetningar frá 31. desember 2016 til 30. mars 2017 í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB um stofnun og rekstur fyrirtækja á sviði vátrygginga og endurtrygginga, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 15 frá 21. febrúar 2019, bls. 356: https://www.efta.int/sites/default/files/ documents/eea-supplements/icelandic/2019-is/su-nr-15-is-21-02-2019.pdf.

Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/812 frá 15. maí 2017 um tæknilegar upplýsingar fyrir útreikning á vátryggingaskuld og kjarnagjaldþoli vegna skýrslugjafar með viðmiðunardagsetningar frá 31. mars til 29. júní 2017 í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB um stofnun og rekstur fyrirtækja á sviði vátrygginga og endurtrygginga, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 15 frá 21. febrúar 2019, bls. 427: https://www.efta.int/sites/default/files/ documents/eea-supplements/icelandic/2019-is/su-nr-15-is-21-02-2019.pdf.

Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1421 frá 2. ágúst 2017 um tæknilegar upplýsingar fyrir útreikning á vátryggingaskuld og kjarnagjaldþoli vegna skýrslugjafar með viðmiðunardagsetningar frá 30. júní til 29. september 2017 í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB um stofnun og rekstur fyrirtækja á sviði vátrygginga og endurtrygginga, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 15 frá 21. febrúar 2019, bls. 498: https://www.efta.int/sites/default/files/ documents/eea-supplements/icelandic/2019-is/su-nr-15-is-21-02-2019.pdf.

Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2015 frá 9. nóvember 2017 um tæknilegar upplýsingar fyrir útreikning á vátrygg­inga­skuld og kjarnagjaldþoli vegna skýrslugjafar með viðmiðunardagsetningar frá 30. sept­ember 2017 til 30. desember 2017 í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB um stofnun og rekstur fyrirtækja á sviði vátrygginga og endurtrygginga, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 15 frá 21. febrúar 2019, bls. 569: https://www.efta.int/ sites/default/files/documents/eea-supplements/icelandic/2019-is/su-nr-15-is-21-02-2019.pdf.

Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/165 frá 31. janúar 2018 um tæknilegar upplýsingar fyrir útreikning á vátryggingaskuld og kjarnagjaldþoli vegna gagnaskila með viðmiðunardagsetningar frá 31. desember 2017 til 30. mars 2018 í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB um stofnun og rekstur fyrirtækja á sviði vátrygginga og endurtrygginga, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 72 frá 8. nóvember 2018, bls. 38: https://www.efta.int/sites/default/files/ documents/eea-supplements/icelandic/2018-is/su-nr-72-is-08-11-2018.pdf.

Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/730 frá 4. maí 2018 um tæknilegar upplýsingar fyrir útreikning á vátryggingaskuld og kjarnagjaldþoli vegna gagnaskila með viðmiðunardagsetningar frá 31. mars 2018 til 29. júní 2018 í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB um stofnun og rekstur fyrirtækja á sviði vátrygginga og endurtrygginga, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 72 frá 8. nóvember 2018, bls. 202: https://www.efta.int/sites/default/files/ documents/eea-supplements/icelandic/2018-is/su-nr-72-is-08-11-2018.pdf.

Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1078 frá 30. júlí 2018 um tæknilegar upplýsingar fyrir útreikning á vátryggingaskuld og kjarnagjaldþoli vegna gagnaskila með viðmiðunardagsetningar frá 30. júní 2018 til 29. september 2018 í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB um stofnun og rekstur fyrirtækja á sviði vátrygginga og endurtrygginga, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 37 frá 9. maí 2019, bls. 17: https://www.efta.int/sites/default/files/ documents/eea-supplements/icelandic/2019-is/su-nr-37-is-09-05-2019.pdf.

Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1699 frá 9. nóvember 2018 um tæknilegar upplýsingar fyrir útreikning á vátrygg­inga­skuld og kjarnagjaldþoli vegna gagnaskila með viðmiðunardagsetningar frá 30. sept­ember 2018 til 30. desember 2018 í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB um stofnun og rekstur fyrirtækja á sviði vátrygginga og endurtrygginga.

Með vísan til heimildar 1. mgr. 78. gr. laga nr. 100/2016 vísar Fjármálaeftirlitið til birtingar enskrar útgáfu af framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) í Stjórnartíðindum Evrópu­sambandsins (e. Official Journal of the European Union), OJ, deild L, nr. 258, þann 13. nóvember 2018, bls. 1-77: https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/TXT/?uri=CELEX:32018R1699.

Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/228 frá 7. febrúar 2019 um tæknilegar upplýsingar fyrir útreikning á vátryggingaskuld og kjarnagjaldþoli vegna gagnaskila með viðmiðunardagsetningar frá 31. desember 2018 til 30. mars 2019 í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB um stofnun og rekstur fyrirtækja á sviði vátrygginga og endurtrygginga.

Með vísan til heimildar 1. mgr. 78. gr. laga nr. 100/2016 vísar Fjármálaeftirlitið til birtingar enskrar útgáfu af framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) í Stjórnartíðindum Evrópu­sambandsins (e. Official Journal of the European Union), OJ, deild L, nr. 37, þann 8. febrúar 2019, bls. 22-105: https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/TXT/?uri=CELEX:32019R0228.

Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/699 frá 6. maí 2019 um tæknilegar upplýsingar fyrir útreikning á vátryggingaskuld og kjarnagjaldþoli vegna gagnaskila með viðmiðunardagsetningar frá 31. mars 2019 til 29. júní 2019 í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB um stofnun og rekstur fyrirtækja á sviði vátrygginga og endurtrygginga.

Með vísan til heimildar 1. mgr. 78. gr. laga nr. 100/2016 vísar Fjármálaeftirlitið til birtingar enskrar útgáfu af framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) í Stjórnartíðindum Evrópu­sambandsins (e. Official Journal of the European Union), OJ, deild L, nr. 119, þann 7. maí 2019, bls. 70-150: https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/TXT/?uri=CELEX:32019R0699.

4. gr.

Gildistaka.

Reglur þessar eru settar samkvæmt heimild í 1. mgr. 78. gr. laga um vátryggingastarfsemi nr. 100/2016. Reglurnar öðlast þegar gildi.

Fjármálaeftirlitinu, 20. maí 2019.

Unnur Gunnarsdóttir.

Anna Mjöll Karlsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 23. maí 2019