Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1501/2023

Nr. 1501/2023 4. desember 2023

REGLUGERÐ
um (33.) breytingu á reglugerð nr. 978/2011 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008 um aukefni í matvælum.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í II. kafla I. viðauka og XII. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. og II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndar­innar nr. 219/2023, frá 22. september 2023, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/447 frá 1. mars 2023 um breytingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008 og viðaukanum við reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 231/2012 að því er varðar notkun á glúkósýl­uðum stevíólglýkósíðum sem sætuefni. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 79, frá 2. nóvember 2023, bls. 432.

 

2. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

 

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a – 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

 

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a. laga nr. 93/1995 um matvæli.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 4. desember 2023.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Emilía Madeleine Heenen.


B deild - Útgáfud.: 27. desember 2023