Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 525/2021

Nr. 525/2021 27. apríl 2021

SAMÞYKKT
um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar.

I. KAFLI

Um skipan bæjarstjórnar, sjálfstjórn hennar og verkefni sveitarfélagsins.

1. gr.

Skipan bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar er skipuð 9 bæjarfulltrúum, sem kjörnir eru lýðræðislegri kosningu af íbúum Ísafjarðarbæjar samkvæmt lögum um kosningar til sveitarstjórna.

 

2. gr.

Sjálfstætt stjórnvald.

Ísafjarðarbær er sjálfstætt stjórnvald, sem er stjórnað af lýðræðislega kjörinni bæjar­stjórn í umboði íbúa sveitarfélagsins.

 

3. gr.

Verkefni Ísafjarðarbæjar.

Ísafjarðarbær annast þau lögmæltu verkefni sem honum eru falin í lögum, sbr. og leiðbeinandi aug­lýsingu frá ráðuneyti sveitarstjórnarmála.

Ísafjarðarbær vinnur að sameiginlegum velferðarmálum íbúanna eftir því sem fært þykir á hverjum tíma.

Ísafjarðarbæ er heimilt að taka að sér hvert það verkefni sem varðar íbúa hans, enda sé það ekki falið öðrum að lögum.

II. KAFLI

Um bæjarstjórn.

4. gr.

Hlutverk bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn fer með stjórn Ísafjarðarbæjar samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, með síðari breytingum, annarra laga og samþykktar þessarar. Jafnframt fer bæjarstjórn með yfirstjórn stofnana og fyrirtækja á vegum sveitarfélagsins að svo miklu leyti sem bæjarstjórn hefur ekki falið öðrum slíka yfirstjórn.

Bæjarstjórn hefur ákvörðunarvald um nýtingu tekjustofna, lántökur og ráðstöfun eigna og um fram­kvæmd verkefna sveitarfélagsins.

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar gætir hagsmuna sveitarfélagsins og er í fyrirsvari fyrir það.

 

5. gr.

Helstu verkefni bæjarstjórnar.

Meðal verkefna bæjarstjórnar er:

  1. Að sjá um að lögbundnar skyldur séu ræktar og hafa eftirlit með því að fylgt sé viðeigandi reglum í störfum sveitarfélagsins.
  2. Að kjósa forseta og varaforseta bæjarstjórnar, sbr. 13. gr. sveitarstjórnarlaga, bæjarráð og aðrar nefndir, ráð og stjórnir skv. V. kafla sveitarstjórnarlaga, að ráða löggiltan endur­skoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki sem annast skal endur­skoðun hjá sveitarfélaginu, sbr. VII. kafla sveitarstjórnarlaga.
  3. Að setja bæjarstjórn siðareglur, sbr. 29. gr. sveitarstjórnarlaga.
  4. Að ákveða stjórnskipan sveitarfélagsins, ráða bæjarstjóra, sbr. 54. gr. sveitar­stjórnarlaga og aðra starfsmenn í æðstu stjórnunarstöður sveitarfélagsins, sbr. 56. gr. laganna og 50. gr. samþykktar þessarar.
  5. Að móta stefnu fyrir starfsemi sveitarfélagsins, deilda og stofnana, setja starfsemi sveitar­félagsins reglur, setja samþykktir og gjaldskrár, eftir því sem lög mæla fyrir um og þörf krefur.
  6. Að fara með fjárstjórnarvald sveitarfélagsins, sbr. 58. gr. sveitarstjórnarlaga og gera fjár­hags­áætlanir, sbr. 62. gr. sömu laga.
  7. Að bera ábyrgð á fjármálum sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja, sbr. 77. gr. sveitar­stjórnarlaga og VIII. kafla samþykktar þessarar og taka ákvarðanir um verulegar skuld­bindingar sveitarfélagsins til lengri tíma.
  8. Að hafa eftirlit með framkvæmd samstarfsverkefna og þjónustusamninga, sbr. IX. kafla sveitarstjórnarlaga.
  9. Að veita íbúum sveitarfélagsins og þeim sem njóta þjónustu þess upplýsingar um málefni sem snerta hagi þeirra og um samstarf sem sveitarfélagið hefur við önnur sveitarfélög, sbr. 103. gr. sveitarstjórnarlaga.

 

6. gr.

Ný bæjarstjórn tekur til starfa.

Nýkjörin bæjarstjórn tekur við störfum 15 dögum eftir kjördag. Jafnlengi heldur frá­­farandi bæjar­stjórn umboði sínu, með þeim takmörkunum sem leiðir af lögum um kosn­ingar til sveitar­stjórna. Nýkjörin bæjarstjórn hefur einungis umboð til töku ákvarð­ana um málefni bæjar­stjórnar­innar eða sveitarfélagsins eftir að hún tekur við störfum.

Sá fulltrúi í nýkjörinni bæjarstjórn sem á að baki lengsta setu í bæjarstjórn boðar til fyrsta fundar ekki síðar en 15 dögum eftir að hún tekur við störfum eftir kosn­ingar. Hann stýrir fundi þar til forseti hefur verið kjörinn. Hafi tveir eða fleiri fulltrúar setið jafnlengi í bæjarstjórn fer aldursforseti þeirra með verkefni samkvæmt þessari málsgrein.

Fyrsta fund skal boða með a.m.k. fjögurra daga fyrirvara.

 

7. gr.

Kosning forseta og varaforseta bæjarstjórnar.

Sá bæjarfulltrúi sem boðar til fyrsta fundar skv. 6. gr. samþykktar þessarar, setur fyrsta fund nýkjörinnar bæjarstjórnar og stýrir honum uns forseti bæjarstjórnar hefur verið kjörinn.

Forseti bæjarstjórnar skal kjörinn til eins árs. Ef forseti nýtur ekki lengur stuðnings meirihluta þeirra sem eiga sæti í bæjarstjórn, skal hann víkja sæti og forsetakjör fara fram á ný.

Sá er rétt kjörinn forseti sem fengið hefur atkvæði meirihluta bæjarfulltrúa. Verði þeim atkvæða­fjölda eigi náð skal kjósa að nýju um þá tvo sem flest atkvæði fengu. Hafi þrír eða fleiri bæjar­fulltrúar fengið jafnmörg atkvæði skal varpa hlutkesti um hverja tvo skuli kjósa. Verður þá sá rétt kjörinn forseti bæjarstjórnar sem fleiri atkvæði fær þó að hann fái ekki helming atkvæða. Verði atkvæði jöfn ræður hlutkesti kosningu.

Forseti bæjarstjórnar stjórnar kjöri 1. og 2. varaforseta bæjarstjórnar og skal sömu aðferð beitt við kosningu þeirra, sbr. næstu málsgrein hér að framan. Varaforsetar skulu kjörnir til jafnlangs tíma og forseti.

Tilkynna skal kjör forseta og varaforseta til ráðuneytis sveitarstjórnarmála þegar að kjöri loknu.

Sé enginn forseta á fundi gegnir aldursforseti forsetastörfum nema bæjarstjórn ákveði að kjósa sérstakan fundarstjóra.

Ef forseti deyr, verður varanlega forfallaður frá forsetastörfum eða nýtur ekki lengur trausts bæjar­stjórnar sem forseti bæjarstjórnar áður en kjörtími hans er á enda skal kjósa forseta í hans stað það sem eftir er kjörtímabilsins.

 

III. KAFLI

Fundir bæjarstjórnar og fundarsköp.

8. gr.

Fundir bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn heldur reglulega fundi 1. og 3. fimmtudag hvers mánaðar sem ekki ber upp á almennan frídag. Bæjarstjórnarfundir skulu að jafnaði hefjast kl. 17.00 og skulu ekki standa lengur en þrjár klukkustundir. Bæjarstjórn er heimilt að breyta fundartíma sínum, enda sé tillaga um slíkt samþykkt mótatkvæðalaust.

Aukafundi skal halda í bæjarstjórn eftir því sem þörf krefur að mati bæjarstjóra og forseta bæjarstjórnar og skylt er að halda aukafund í bæjarstjórn ef a.m.k. þriðjungur bæjarfulltrúa krefst þess, enda geri þeir grein fyrir ástæðum og fundarefni.

Bæjarstjórn er heimilt að fella niður reglulegan fund sinn, enda sé tillaga um slíkt samþykkt mót­atkvæðalaust á næsta fundi bæjarstjórnar á undan.

Bæjarstjórn er heimilt að fella niður fundi í bæjarstjórn í allt að tvo mánuði að sumarlagi. Meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur fer bæjarráð með sömu heimildir og bæjar­stjórn hefur ella.

Bæjarstjórn getur heimilað einstaklingi utan bæjarstjórnar að taka til máls á bæjar­stjórnar­fundi.

 

9. gr.

Boðun bæjarstjórnarfunda.

Bæjarstjóri, sbr. þó 6. gr. samþykktar þessarar, boðar bæjarstjórnarfundi og ákveður jafnframt fundar­stað hafi bæjarstjórn ekki gert það. Við ákvörðun fundarstaðar skal gætt að aðgengi fyrir alla.

Bæjarstjóri skal í síðasta lagi tveimur sólarhringum fyrir bæjarstjórnarfund hafa boðsent bæjar­fulltrúum og varamönnum þeirra fundarboð bæjarstjórnarfundar ásamt dagskrá og fylgigögnum.

Aukafund skal boða ekki síðar en tveimur virkum dögum eftir að ósk þar um barst þeim er boða skal fund. Fundarboð vegna aukafundar skal berast bæjarfulltrúum svo fljótt sem auðið er og ekki síðar en sólarhring fyrir fund. Fundarboði skal fylgja dagskrá fundar og þau gögn sem eru nauðsyn­leg til að bæjarfulltrúar geti tekið upplýsta afstöðu til mála sem þar eru tilgreind.

Sé mál sérstaklega aðkallandi er heimilt að boða aukafund með styttri fyrirvara, enda samþykki allir fundarmenn boðið.

 

10. gr.

Dagskrá bæjarstjórnarfundar.

Bæjarstjóri semur dagskrá bæjarstjórnarfundar í samráði við forseta og skal dagskráin fylgja fundar­boði, þar sem tilgreindur er fundarstaður og fundartími.

Á dagskrá bæjarstjórnarfundar skal taka:

  1. Lögákveðnar kosningar s.s. kosningar forseta bæjarstjórnar, kosningar nefnda, ráða og stjórna á vegum bæjarstjórnar svo og ráðningu bæjarstjóra.
  2. Fundargerðir bæjarráðs, nefnda, ráða og stjórna á vegum sveitarfélagsins.
  3. Ályktanir og tillögur sem fram koma í fundargerðum, sbr. 2. tl. hér að framan og þarfnast staðfestingar bæjarstjórnar, skal tilgreina sérstaklega í dagskrá.
  4. Önnur mál sem falla undir verksvið bæjarstjórnar og bæjarstjóri og/eða forseti bæjar­stjórnar ákveður að taka á dagskrá eða einhver bæjarfulltrúi óskar að tekin verði á dagskrá.

Bæjarfulltrúi sem óskar að fá mál tekið á dagskrá bæjarstjórnarfundar skal tilkynna það bæjar­stjóra skriflega með tillögu eða fyrirspurn í síðasta lagi kl. 12.00 þann dag sem boðað er til fundar, sbr. 9. gr. Þó er hægt að víkja frá þessu, sbr. 2. mgr. 20. gr. samþykktar þessarar.

Dagskrá bæjarstjórnarfundar skal fylgja afrit fundargerða, tillagna og annarra gagna sem bæjar­stjóri telur nauðsynleg til að bæjarfulltrúar geti undirbúið sig fyrir fundinn.

 

11. gr.

Tilkynning til íbúa um fundi bæjarstjórnar.

Bæjarbúum skal kunngert með auglýsingu hvar og hvenær bæjarstjórnarfundir eru haldnir.

Miðað skal við að sem flestir íbúar Ísafjarðarbæjar hafi greiðan aðgang að auglýsingu um bæjar­stjórnar­fundi. Þegar dagskrá bæjarstjórnarfundar hefur verið samin og send bæjar­fulltrúum skal hún vera aðgengileg íbúum sveitarfélagsins á heimasíðu Ísa­fjarðar­bæjar.

 

12. gr.

Opinn eða lokaður fundur.

Bæjarstjórn getur ákveðið að einstök mál verði rædd fyrir luktum dyrum þegar það telst nauð­syn­legt vegna eðlis máls, svo sem viðkvæmra einkamála manna eða viðskiptamála sem æski­legt er vegna hagsmuna sveitarfélagsins að rædd verði fyrir luktum dyrum. Jafnframt getur bæjar­stjórn ákveðið að bæjarstjórnarfundur þar sem eingöngu er fjallað um slík mál verði haldinn fyrir luktum dyrum. Bæjarstjórn eða forseti geta ákveðið að tillaga um lokun fundar sé rædd fyrir luktum dyrum.

Það sem fram kemur við umræður á lokuðum fundi í bæjarstjórn er trúnaðarmál.

 

13. gr.

Ályktunarhæfi og atkvæðagreiðsla.

Bæjarstjórn getur enga ályktun gert nema meira en helmingur bæjarfulltrúa sé við­staddur á fundi.

Á bæjarstjórnarfundum ræður afl atkvæða úrslitum mála. Hjáseta telst þátttaka í atkvæða­greiðslu. Ef jafnmörg atkvæði eru með málefni og á móti fellur það en við kosn­ingar ræður hlutkesti.

 

14. gr.

Fjarfundarbúnaður.

Bæjarstjórn getur ákveðið að heimilt sé að nota fjarfundarbúnað á fundum, ef veður eða færð hamla venjubundnu fundahaldi.

Fund í gegnum fjarfundarbúnað skal þó aðeins halda ef brýna nauðsyn ber til og ekki er hægt að fresta afgreiðslu þeirra mála sem á dagskrá fundarins eru, að mati forseta bæjarstjórnar og bæjar­stjóra. Sé fjarfundur haldinn skal fundargerð lesinn upp í lok fundar í áheyrn allra og undirrituð af viðkomandi fundarmönnum á næsta venjubundna fundi eða á bæjarskrifstofu, í samráði við bæjar­stjóra.

Leitast skal við að jafnræðis sé gætt, þannig að sé boðað til fundar með notkun fjarfundar­búnaðar, að allir bæjarfulltrúar notist við fjarfundarbúnað á fundinum. Allir fundarmenn skulu vera sýnilegir á fundinum. Bæjarfulltrúi í fjarfundarbúnaði skal vera með innlegg og taka þátt í fundi með sama hætti og á venjubundnum fundi. Tryggja skal almenningi aðgang að fjarfundi eftir því sem kostur er.

Að öðru leyti vísast til 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga og auglýsingar ráðherra, sbr. 2. mgr. 19. gr. sveitarstjórnarlaga, um framkvæmd fjarfunda.

 

15. gr.

Tvær umræður í bæjarstjórn.

Bæjarstjórn afgreiðir mál að jafnaði við eina umræðu. Þó skal hafa tvær umræður með a.m.k. einnar viku millibili um eftirtalin málefni:

  1. Ársreikninga sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja.
  2. Samþykktir og aðrar reglur sem hljóta eiga staðfestingu ráðherra.
  3. Áætlanir fyrir sveitarfélagið sem gilda eiga til lengri tíma svo sem þriggja ára áætlanir og skipulags- og framkvæmdaáætlanir.
  4. Tilkynningu til eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga skv. 75. gr. sveitar­stjórnar­laga.
  5. Stefnumarkandi áætlanir sem gilda eiga til lengri tíma og taka til sveitarfélagsins í heild eða meirihluta þess.
  6. Tillögu um sameiningu við annað sveitarfélag skv. 2. mgr. 120. gr. sveitar­stjórnar­laga.

Þá skal bæjarstjórn hafa tvær umræður, með a.m.k. tveggja vikna millibili, um fjár­hags­áætlanir sveitarfélagsins skv. 62. gr. sveitarstjórnarlaga. Ákvæði þetta gildir þó ekki um samþykkt viðauka við fjárhagsáætlanir.

16. gr.

Fundarsköp og ritun fundargerða.

I.    Ritun fundargerða.

Bæjarstjórn getur ráðið sérstakan fundarritara utan bæjarstjórnar til að annast ritun fundargerða í gerðabók bæjarstjórnar. Í fundargerð skal getið númers fundar, hvar og hvenær fundur er haldinn og hverjir sitji fundinn. Skrá skal þau mál sem tekin eru fyrir, dagsetningu þeirra, aðila máls og meginefni og hvernig mál er afgreitt. Sé mál ekki afgreitt samhljóða skal greina í fundargerð hvernig atkvæði hafa skipst. Þegar lagðar eru fram fundargerðir ráða og nefnda nægir að skrá í fundargerð bæjarstjórnar um hvaða ráð og nefndir er að ræða, dagsetningu fundargerða og fjölda töluliða.

Mál sem tekin eru fyrir á lokuðum fundi skal skrá sem trúnaðarmál.

Fundargerð skal skráð í tölvu. Færa skal í gerðabók bæjarstjórnar númer fundar, hvar og hvenær fundurinn er haldinn og að fundargerð sé færð í tölvu. Þá skal færa í gerðabók fundarslit og greina blaðsíðutal fundargerðar. Viðstaddir bæjarfulltrúar skulu rita nöfn sín við slit fundar í gerðabók. Í lok fundarins skal fundargerð undirrituð af fundarmönnum. Undirritaðar tölvuskráðar fundargerðir skulu reglulega bundnar inn til varanlegrar varðveislu.

Fundir bæjarstjórnar eru hljóðritaðir nema bæjarstjórn ákveði annað.

Fundargerð skal birt og vera aðgengileg á heimasíðu Ísafjarðarbæjar, ásamt fylgigögnum, í sam­ræmi við lög á hverjum tíma.

Sjá nánar um fundarritun í auglýsingu ráðherra um leiðbeiningar um ritun fundargerða sveitar­stjórna, sbr. og 2. mgr. 19. gr. sveitarstjórnarlaga.

II.   Fundarsköp.

Meginreglur fundarskapa skulu vera eftirfarandi:

  1. Fundarstjórn. Forseti bæjarstjórnar stýrir fundum hennar. Hann setur fund, kannar lögmæti hans, stjórnar umræðum og afgreiðslu mála og slítur fundi þegar dagskrá hans er tæmd. Jafnframt sér hann um að fundargerðir séu skipulega færðar í gerðabók bæjarstjórnar og að allar ályktanir og samþykktir séu rétt og nákvæm­lega bókaðar.
    Forseti úrskurðar um skilning á fundarsköpum en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar bæjarstjórnar. Forseti sér um að allt fari skipulega og löglega fram á bæjarstjórnarfundum og er bæjarfulltrúum skylt að lúta valdi hans að því er varðar fundarsköp og góða reglu. Forseti skal tilkynna bæjarstjórn um ákvörðun sína.
  2. Vald forseta. Skylt er bæjarfulltrúa að lúta valdi forseta í hvívetna varðandi það að gætt sé góðrar reglu. Beri bæjarfulltrúi aðra menn brigslum skal forseti víta hann. Forseti getur lagt til við bæjarstjórn að bæjarfulltrúi sem víttur hefur verið tvisvar á sama fundi verði sviptur málfrelsi á þeim fundi. Skal slík tillaga afgreidd umræðulaust. Hlýðnist bæjarfulltrúi ekki úrskurði forseta eða bæjarstjórnar eða ef óregla kemur upp á fundi skal forseti gera fundar­hlé, fresta fundi eða slíta fundi ef nauðsyn krefur. Ef áheyrandi á bæjarstjórnarfundi raskar fundarfriði getur forseti vísað honum úr fundarsal. Leyfi forseta þarf til að taka myndir og hljóðrita umræður á bæjarstjórnarfundi.
  3. Afgreiðsla mála. Mál skulu tekin til umræðu og afgreidd í bæjarstjórn í þeirri röð sem þau eru á dagskrá nema forseti eða bæjarstjórn ákveði annað. Forseti getur ákveðið að tiltekið mál í fundargerð, sem á dagskrá er, verði gert að sérstökum dagskrárlið á fundinum. Heimilt er að taka til meðferðar á bæjarstjórnarfundi mál sem ekki hefur verið sett á dagskrá ef 2/3 viðstaddra bæjarfulltrúa samþykkja slíkt afbrigði.
  4. Málfrelsi bæjarstjóra. Bæjarstjóri skal sitja fundi bæjarstjórnar með málfrelsi og tillögurétt en ekki hefur hann atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn bæjarfulltrúi.
  5. Málfrelsi. Bæjarfulltrúi hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á bæjar­stjórnar­fundum. Bæjarfulltrúi sem taka vill til máls skal óska heimildar forseta. Að jafnaði skulu bæjar­fulltrúar taka til máls í þeirri röð sem þeir hafa kvatt sér hljóðs. Víkja má frá þeirri reglu ef um er að ræða bæjarstjóra, framsögu­mann í máli eða bæjarfulltrúa sem óskar að gera stutta athugasemd eða koma leiðréttingu á framfæri. Hafi tveir eða fleiri bæjarfulltrúar kvatt sér hljóðs samtímis ákveður forseti í hvaða röð þeir skuli tala. Bæjarfulltrúi skal flytja mál sitt úr ræðustól nema forseti leyfi annað.
  6. Ávarp ræðumanns. Bæjarfulltrúi skal beina máli sínu til forseta. Þegar til umræðu er fundar­gerð bæjarráðs, annarrar nefndar, ráðs eða stjórnar skal bæjarfulltrúi taka fram hvaða lið/liði fundargerðarinnar hann óskar að ræða. Bæjarfulltrúi skal fá leyfi forseta til að lesa upp prentað mál á bæjar­stjórnar­fundum. Bæjarfulltrúi skal flytja mál sitt úr ræðustól nema forseti heimili annað.
  7. Hve oft má tala. Framsögumaður má tala þrisvar við hverja umræðu máls en aðrir bæjar­fulltrúar tvisvar. Bæjarfulltrúa er þó heimilt að taka oftar til máls til að gera stutta athuga­semd eða bera af sér ámæli. Forseti getur heimilað bæjarfulltrúa að gera stutta athugasemd oftar en einu sinni undir hverjum dagskrárlið sé um að ræða athugasemd um fundarsköp, fundarstjórn forseta eða til að bera af sér ámæli. Bæjarstjóri hefur óbundið málfrelsi.
  8. Ræðutími. Við umræðu um mál skv. 4. tl. 10. gr. samþykktar þessarar má ræðu­tími vera allt að 20 mínútur. Ræðutími í síðari ræðu má vera allt að 10 mínútur; hið sama gildir um þriðju ræðu framsögumanns og síðari ræður bæjarstjóra. Við umræður um fundargerðir skv. 2. tl. 10. gr. er ræðutími takmarkaður við 10 mínútur. Við umræður um mál sem tekin eru á dagskrá skv. 2. mgr. 20. gr. ákveður forseti takmarkanir á ræðutíma. Ræðutími bæjar­fulltrúa sem óskar að bera af sér ámæli eða gera stutta athugasemd má vera allt að ein mínúta. Forseti getur þó heimilað lengri ræðutíma við umræður um fundarsköp, sbr. g.-lið 2. mgr. 16. gr. samþykktar þessarar.
    Forseta er heimilt að rýmka ræðutíma sé mál það umfangsmikið eða mikilvægt að ekki sé hægt að ræða það á fullnægjandi hátt innan þeirra reglna sem mælt er fyrir um í 1. mgr. þessa liðar. Einnig er forseta heimilt að rýmka ræðutíma bæjar­fulltrúa ef sérstaklega stendur á og nauðsyn krefur. Ákvörðun forseta sam­kvæmt þessari málsgrein skal liggja fyrir áður en umræða hefst. Við umræðu um fjár­hagsáætlun, ársreikning og aðalskipulag Ísa­fjarðar­bæjar skal ræðutími vera óbundinn. Telji forseti umræður dragast úr hófi fram getur hann lagt fram dagskrártillögu um að ræðutími hvers bæjarfulltrúa verði takmarkaður, umræðum verði lokið á tilteknum tíma eða umræðum um mál verði lokið þá þegar. Hver bæjar­fulltrúi getur og borið fram slíkar tillögur.
    Þá getur forseti hvenær sem er lagt til að umræðu skuli lokið á ákveðnum tíma. Ekki má þó takmarka umræðu um mál svo að hún standi skemur en tvær klukkustundir ef einhver bæjar­­fulltrúi kveður sér hljóðs. Bæjarstjórn afgreiðir tillögur um takmörkun umræðna umræðu­­laust. Umræður um fjárhagsáætlun eru ekki háðar ákvæðum greinar þessarar.
  9. Tillögur og afgreiðsla. Bæjarfulltrúi getur borið fram breytingartillögu, viðauka­tillögu, frávísunartillögu eða frestunartillögu við hvert það mál sem til umræðu er á fundi. Slíkar tillögur skulu vera skriflegar. Forseti ákveður í hvaða röð og með hvaða hætti tillögur eru teknar til afgreiðslu. Tillögu má draga til baka fram að atkvæðagreiðslu. Forseti ber fyrst upp frávísunartillögur og aðrar dagskrár­tillögur um málsmeðferð. Viðaukatillaga er borin upp á eftir aðaltillögu hafi hún verið samþykkt.
  10. Réttur til bókunar. Bæjarfulltrúi á rétt á að fá bókaða stutta athugasemd um afstöðu sína til máls sem til meðferðar er í bæjarstjórn.
  11. Atkvæðagreiðsla. Atkvæðagreiðsla á bæjarstjórnarfundi fer að jafnaði fram með handa­uppréttingu. Forseti biður þá bæjarfulltrúa sem samþykkja mál að gefa merki þar um. Að því búnu leitar forseti mótatkvæða með sama hætti. Loks skýrir forseti frá úrslitum atkvæða­greiðslunnar. Ef mál er svo vaxið að forseti telur ástæðulaust að atkvæðagreiðsla fari fram um það skýrir hann frá því að hann telji mál samþykkt eða fellt án atkvæðagreiðslu nema athugasemd verði við það gerð. Forseti getur ákveðið að mál verði afgreitt með nafnakalli. Einnig ber forseta að láta fara fram nafnakall ef a.m.k. þriðjungur bæjarfulltrúa óskar þess. Við nafnakall skal farið eftir tölusettri nafnaskrá bæjarfulltrúa í stafrófsröð og skal það ráðast af útdrætti hvaða bæjarfulltrúi greiðir fyrst atkvæði við nafnakall. Við nafnakall skal forseti greiða atkvæði síðastur. Við nafnakall svarar bæjarfulltrúi, þegar forseti les upp nafn hans, já eða nei, eftir því hvort hann er með máli eða móti eða tekur fram að hann greiði ekki atkvæði en slík afstaða telst þó þátttaka í atkvæðagreiðslu. Heimilt er að afgreiða mál með skriflegri atkvæðagreiðslu ef bæjarfulltrúi óskar og bæjarstjórn samþykkir. Kosningar skulu vera skriflegar og leynilegar ef þess er óskað.
  12. Kosningar. Bæjarstjórn kýs fulltrúa í bæjarráð, aðrar nefndir, ráð og stjórnir samkvæmt ákvæðum laga, reglugerða og samþykktar þessarar. Kosningar skulu vera skriflegar, leyni­legar, bundnar hlutfallskosningar ef einhver bæjarfulltrúa óskar þess. Oddvitar framboða koma sér saman um það hvernig val þeirra á fulltrúum uppfyllir ákvæði 2. tl. 44. gr. sveitar­stjórnarlaga varðandi kynjahlutfall. Starfsmenn fyrirtækja og stofnana sveitarfélags­ins eru ekki kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir þeirra fyrirtækja eða stofnana sem þeir starfa hjá.

 

17. gr.

Hæfi til þátttöku í meðferð og afgreiðslu einstakra mála.

Um hæfi bæjarfulltrúa, nefndarfulltrúa og starfsmanna Ísafjarðarbæjar til þátttöku í með­ferð eða afgreiðslu mála þar sem á, eða til greina kemur, að taka stjórnvalds­ákvörðun skv. 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, gilda ákvæði stjórn­sýslu­laga sé ekki öðruvísi ákveðið í sveitarstjórnar­lögum.

Viðkomandi telst þó aðeins vanhæfur sé hann sjálfur aðili að máli, fyrirsvarsmaður eða umboðs­maður aðila, eða sé hann nú eða hafi verið maki aðila, skyldur eða mægður aðila í beinan legg eða að einum lið til hliðar eða tengdur aðila með sama hætti vegna ættleiðingar. Þá verður starfs­maður Ísafjarðarbæjar ekki vanhæfur vegna vanhæfis yfirmanns ef eðli máls eða uppbygging stjórn­kerfis sveitarfélagsins þykir ekki gefa tilefni til slíks.

Í öðrum tilvikum en skv. 1. mgr. ber bæjarfulltrúa, nefndarfulltrúa eða starfsmanni Ísafjarðar­bæjar að víkja sæti við meðferð og afgreiðslu máls þegar það varðar hann eða nána venslamenn hans svo sérstaklega að almennt má ætla að viljaafstaða hans mótist að einhverju leyti þar af. Þessi regla tekur einnig til gerðar samninga fyrir hönd sveitar­félagsins.

Að öðru leyti vísast til 20. gr. sveitarstjórnarlaga.

 

18. gr.

Varamenn í bæjarstjórn.

Sé bæjarfulltrúi forfallaður um stundarsakir skal hann boða varamann sinn til fundarins og tilkynna eða láta tilkynna forföllin til bæjarstjóra. Varamenn taka sæti í bæjarstjórn í þeirri röð sem þeir eru kosnir þegar aðalmenn þess lista sem þeir eru kosnir af forfallast.

Ef framboðslisti er borinn fram af tveimur eða fleiri stjórnmálaflokkum eða samtökum geta aðal­menn listans komið sér saman um mismunandi röð varamanna eftir því hver aðalmanna hefur forfall­ast, sbr. 21. gr. sveitarstjórnarlaga.

Tilkynning um slíkt samkomulag skal lögð fram í upphafi kjörtímabils og gildir hún til loka þess.

 

IV. KAFLI

Réttindi og skyldur bæjarfulltrúa.

19. gr.

Skyldur bæjarfulltrúa.

Bæjarfulltrúa er skylt að sækja alla bæjarstjórnarfundi nema lögmæt forföll hamli. Vísað er til 18. gr. samþykktar þessarar um boðun varamanns sé bæjarfulltrúi forfallaður.

Hver bæjarfulltrúi er skyldur til að taka að sér þau störf sem bæjarstjórn felur honum og varða verkefni bæjarstjórnar, svo sem forsetastörf og störf í bæjarráði eða öðrum nefndum á vegum bæjarstjórnar. Þó getur sá sem verið hefur forseti eitt kjörtímabil eða lengur eða setið í bæjarráði eða annarri nefnd sama tímabil skorast undan kosningu jafnlangan tíma og hann hefur haft starfið á hendi. Ósk um undanþágu skal sett fram áður en kjör í viðkomandi nefnd eða trúnaðarstarf fer fram.

Bæjarfulltrúi skal gæta þagnarskyldu um það sem hann fær vitneskju um í starfi sínu og leynt á að fara vegna einka- eða almannahagsmuna samkvæmt lögum eða eðli máls. Þagnarskyldan helst áfram eftir að bæjarfulltrúi lætur af þeim störfum.

 

20. gr.

Réttur bæjarfulltrúa.

Bæjarfulltrúi er sjálfstæður í störfum sínum. Honum ber að gegna bæjarfulltrúastörfum sínum af alúð og samviskusemi og gæta hagsmuna sveitarfélagsins en í störfum sínum er bæjarfulltrúi ein­ungis bundinn af lögum og sannfæringu sinni.

Bæjarfulltrúi á rétt á að tekið verði á dagskrá bæjarstjórnarfundar hvert það málefni sem sérstak­lega varðar hagsmuni sveitarfélagsins eða verkefni þess. Mál sem ekki er tilgreint á boðaðri dag­skrá bæjarstjórnarfundar verður þó ekki tekið til afgreiðslu á viðkomandi fundi án samþykkis 2/3 hluta fundarmanna.

Bæjarfulltrúi hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum bæjarstjórnar eftir því sem nánar er ákveðið í samþykkt þessari, sbr. m.a. 16. gr.

Bæjarfulltrúa er ekki skylt að taka þátt í atkvæðagreiðslu um einstök mál. Þegar um er að ræða mál sem bæjarstjórn er að lögum skylt að afgreiða, svo sem fjárhagsáætlun, ársreikninga eða kjör fulltrúa í lögboðnar nefndir, getur forseti ákveðið að endurtaka atkvæðagreiðslu ef minna en helm­ingur bæjarfulltrúa tekur þátt í atkvæðagreiðslunni.

 

21. gr.

Aðgangur að gögnum.

Vegna starfa sinna í bæjarstjórn á sérhver bæjarfulltrúi rétt á að kynna sér gögn og upplýsingar sem fyrir liggja í stjórnsýslu Ísafjarðarbæjar og varða málefni sem komið geta til umfjöllunar í bæjar­stjórn.

Bæjarfulltrúi skal eiga eðlilegan aðgang að skrifstofu og stofnunum Ísafjarðarbæjar í þeim tilgangi að kynna sér starfsemi sveitarfélagsins og rekstur.

Til að nýta sérstakan rétt sinn skv. þessari grein skal bæjarfulltrúi snúa sér til bæjarstjóra eða stað­gengils bæjarstjóra í fjarveru hans.

Séu gögn undanþegin upplýsingarétti almennings, sbr. upplýsingalög nr. 140/2012, verða þau ekki afrituð eða farið með þau af skrifstofu.

 

22. gr.

Siðareglur og góðir starfshættir.

Bæjarfulltrúi skal í störfum sínum fara eftir þeim siðareglum sem bæjarstjórn setur sér, sbr. 29. gr. sveitarstjórnarlaga.

23. gr.

Lausn frá störfum.

Nú telur bæjarfulltrúi sig ekki geta gegnt skyldum sínum í bæjarstjórn án óhæfilegs álags og getur bæjarstjórn þá létt af honum störfum eða veitt honum lausn að eigin ósk um tiltekinn tíma eða til loka kjörtímabils, sbr. 30. gr. sveitarstjórnarlaga. Varamaður tekur þá sæti hans.

Missi bæjarfulltrúi kjörgengi skal hann víkja úr bæjarstjórninni, sbr. þó ákvæði 3. mgr. 30. gr. sveitarstjórnarlaga.

Nú er bæjarfulltrúi af einhverjum ástæðum sviptur fjárforræði, svo sem ef bú hans er tekið til gjaldþrotaskipta, og skal bæjarstjórn þá veita honum lausn frá störfum þann tíma er sviptingin gildir.

 

24. gr.

Boðun varamanna.

Þegar aðalmaður er vanhæfur til meðferðar máls í bæjarstjórn skal hann boða varamann sinn til meðferðar þess og afgreiðslu, og tilkynna eða láta tilkynna forföll til bæjarstjóra. Að afgreiðslu máls lokinni tekur aðalmaður sæti sitt á viðkomandi fundi á ný. Verði innköllun varamanns ekki við komið getur vanhæfur bæjar­fulltrúi krafist þess að umræðu og afgreiðslu máls verði frestað til næsta fundar. Frestun nær þó ekki fram að ganga ef 2/3 hlutar viðstaddra bæjarfulltrúa greiða atkvæði gegn frestun eða ef frestun hefur í för með sér að gengið sé gegn lögbundnum afgreiðslu­tíma máls.

Þegar aðalmaður getur ekki mætt til fundar eða þarf að víkja af fundi af heilsu­fars­ástæðum eða af öðrum óviðráðanlegum ástæðum tekur varamaður hans sæti í bæjar­stjórn á þeim fundi. Aðalmaður skal tilkynna forföll til fundarboðanda skv. sam­þykkt þessari, eins fljótt og auðið er og óska eftir því að varamaður verði boðaður. Forföll samkvæmt þessari málsgrein taka ávallt til viðkomandi fundar í heild, eða til loka fundar sé um það að ræða.

Þegar fyrirséð er að aðalmaður í bæjarstjórn mun taka hlé frá störfum vegna atvika sem greinir í 2. mgr. í a.m.k. einn mánuð skal varamaður hans taka sæti í bæjarstjórninni frá og með næsta fundi, enda séu þá ástæður forfalla enn til staðar. Þegar forföllum lýkur tekur aðalmaður sæti sitt að nýju frá og með næsta fundi.

Þegar aðalmaður fellur frá, missir kjörgengi eða fær lausn frá starfi í bæjarstjórn skal varamaður hans taka sæti frá og með næsta fundi.

 

25. gr.

Þóknun.

Bæjarfulltrúi skal fá hæfilega þóknun úr bæjarsjóði fyrir störf sín í bæjarstjórn. Þá á hann rétt á greiðslu hæfilegs ferða- og dvalarkostnaðar. Bæjarfulltrúa er óheimilt að afsala sér greiðslum sem honum eru ákveðnar á grundvelli þessarar málsgreinar.

Bæjarstjórn setur reglur um greiðslur skv. 1. mgr.

 

26. gr.

Réttindi og skyldur varamanna.

Ákvæði þessa kafla um réttindi og skyldur bæjarfulltrúa gilda einnig um varamenn sem taka sæti í bæjarstjórninni.

 

V. KAFLI

Bæjarráð.

27. gr.

Kosning bæjarráðs.

Bæjarstjórn skal á fyrsta fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum kjósa þrjá bæjarfulltrúa í bæjarráð til eins árs og jafnmarga til vara. Aðalfulltrúar í bæjarstjórn eru einir kjörgengir sem aðal­menn og varamenn í bæjarráð, sbr. 36. gr. sveitarstjórnarlaga. Forfallist bæði aðalmaður og vara­maður bæjarráðs af sama framboðslista, telst næsti aðili framboðslistans, sem er aðalmaður eða vara­maður í bæjarstjórn framboðslistans, í þeirri röð sem þeir skipuðu listann þegar kosið var, næsti vara­maður framboðslistans í bæjarráði. Bæjarstjórn kýs formann og varaformann bæjarráðs úr hópi kjörinna bæjarráðsmanna.

Í þeim tilfellum sem framboðslisti á einn aðalfulltrúa í bæjarstjórn er heimilt að kjósa varamann hans sem varafulltrúa hans í bæjarráði.

Bæjarstjóri á sæti í bæjarráði með málfrelsi og tillögurétt en atkvæðisrétt hefur hann því aðeins að hann sé bæjarfulltrúi og kjörinn í bæjarráð.

Um þóknun til bæjarfulltrúa í bæjarráði fer eftir 25. gr. samþykktar þessarar.

Um lausn bæjarfulltrúa frá nefndarsetu og endurskipun fer eftir 42. gr. samþykktar þessarar.

 

28. gr.

Fundartími bæjarráðs.

Bæjarráð skal að jafnaði halda fundi einu sinni í viku. Aukafundi skal halda ef bæjar­stjóri, formaður bæjarráðs eða a.m.k. tveir bæjarráðsmenn óska þess.

Heimilt er að halda fund með fjarfundarbúnaði að uppfylltum þeim skilyrðum sem fram koma í 14. gr. samþykktar þessarar.

 

29. gr.

Undirbúningur og boðun bæjarráðsfunda.

Bæjarstjóri undirbýr bæjarráðsfundi í samráði við formann bæjarráðs.

Hann sér um að bæjarráð sé boðað til fundar með skriflegu fundarboði ásamt dagskrá a.m.k. sólarhring fyrir fund.

Geti bæjarráðsmaður ekki sótt fund skal hann boða varamann sinn og tilkynna eða láta tilkynna bæjarstjóra um forföllin.

 

30. gr.

Stjórnun bæjarráðs.

Formaður bæjarráðs stjórnar fundum þess og sér um að allt fari löglega og skipulega fram á fundum þess. Hann úrskurðar í ágreiningsmálum sem upp kunna að koma út af fundarsköpum, en bera má úrskurði hans undir bæjarráð.

Heimilt er að taka mál til meðferðar í bæjarráði þótt ekki sé það tilgreint í dagskrá. Þó er skylt að fresta afgreiðslu slíks máls ef einhver bæjarfulltrúi óskar þess.

Bæjarráð getur ráðið sér fundarritara utan bæjarráðs. Um ritun fundargerða bæjarráðs gilda sömu reglur og um ritun fundargerðar bæjarstjórnarinnar, sbr. 1. mgr. 16. gr. samþykktar þessarar.

Fundir bæjarráðs skulu almennt haldnir fyrir luktum dyrum. Um fundi bæjarráðs, ályktunarhæfi og atkvæðagreiðslur gilda ákvæði III. kafla samþykktar þessarar og sveitarstjórnarlaga eftir því sem við á.

 

31. gr.

Áheyrnarfulltrúar í bæjarráði.

Framboðsaðila sem fulltrúa á í bæjarstjórn en hefur ekki fengið kjörinn bæjarráðsmann er heimilt að tilnefna áheyrnarfulltrúa til setu í bæjarráði. Skylt er bæjarstjórn að gefa fulltrúa flokks/framboðs­aðila sem sæti á í bæjarstjórn kost á setu í bæjarráði með málfrelsi og tillögurétt þann tíma sem fundir bæjarstjórnar falla niður vegna sumarleyfa. Áheyrnarfulltrúi og varaáheyrnar­fulltrúi í bæjarráði skulu vera aðalmenn í bæjarstjórn, sbr. 3. mgr. 50. gr. sveitarstjórnarlaga, að undan­skildum tilvikum sem geta fallið undir 2. mgr. 27. gr. samþykktar þessarar.

 

32. gr.

Verkefni bæjarráðs.

Bæjarráð fer ásamt bæjarstjóra með framkvæmdastjórn sveitarfélagsins og fjármálastjórn að því leyti sem slík stjórn er ekki öðrum falin.

Bæjarráð hefur umsjón með stjórnsýslu sveitarfélagsins, undirbúningi árlegrar fjárhagsáætlunar, semur drög að fjárhagsáætlun bæjarsjóðs og stofnana hans og fyrirtækja, að fengnum tillögum hlutaðeigandi nefnda og stjórna, og leggur þau fyrir bæjarstjórn í samræmi við ákvæði sveitar­stjórnar­­laga.

Þá sér bæjarráð um að ársreikningar bæjarsjóðs séu samdir og að þeir, ásamt ársreikningum stofnana og fyrirtækja sveitarfélagsins, verði lagðir fyrir bæjarstjórn til afgreiðslu svo sem sveitar­stjórnarlög mæla fyrir um.

Meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur fer bæjarráð með sömu heimildir og bæjarstjórn hefur ella.

Þá getur bæjarstjórn falið bæjarráði fullnaðarafgreiðslu mála nema lög mæli á annan veg.

 

33. gr.

Heimild bæjarráðs til fullnaðarákvörðunar.

Bæjarráð gerir tillögur til bæjarstjórnar um afgreiðslu einstakra mála sem það fær til meðferðar. Bæjarráði er þó heimil fullnaðarafgreiðsla mála sem ekki varða verulega fjárhag bæjarsjóðs eða stofnana hans, enda sé ekki ágreiningur milli bæjarráðsmanna eða við bæjarstjóra um slíka afgreiðslu.

Bæjarráð ákveður skiptingu og ráðstöfun fjár sem ætlað er til einstakra málaflokka samkvæmt fjár­hagsáætlun, svo sem til gatnagerðar, nýbygginga og óvissra útgjalda. Vald til fullnaðar­afgreiðslu máls getur aldrei falið í sér vald til töku ákvörðunar sem gengur gegn fjárhags­áætlun eða öðrum almennum og bindandi reglum eða áætlunum sem bæjarstjórn hefur sett.

Fullnaðarákvarðanir sem teknar hafa verið sæta ekki eiginlegu málskoti innan stjórnsýslu sveitar­félagsins, heldur getur aðili máls átt rétt á endurupptöku ákvörðunar, sbr. 24. gr. stjórnsýslu­laga nr. 37/1993.

Ef óskað er endurupptöku máls sem bæjarráð hefur afgreitt, sbr. 3. mgr. 32. gr., skal leggja það fyrir bæjarstjórn til endanlegrar afgreiðslu.

 

VI. KAFLI

Fastanefndir, ráð og stjórnir aðrar en bæjarráð.

34. gr.

Kosning í fastanefndir og kjörtímabil.

Bæjarstjórn kýs fulltrúa í nefndir eftir því sem fyrir er mælt í lögum og samþykkt þessari. Slíkar nefndir teljast fastanefndir bæjarstjórnar.

Kjörtímabil fastanefnda er hið sama og bæjarstjórnar, nema annað leiði af lögum eða samþykkt þessari.

Að loknum sveitarstjórnarkosningum halda fastanefndir þó umboði sínu þar til nýkjörin bæjarstjórn hefur kjörið nýja nefnd í þeirra stað en með sömu takmörkunum vald­heimilda og fyrri bæjarstjórn sætti að afloknum kosningum, sbr. 12. gr. og 2. mgr. 37. gr. sveitarstjórnarlaga.

 

35. gr.

Kosning og kjörgengi.

Kosningar í fastanefndir bæjarstjórnar, nefndir fyrir hluta Ísafjarðarbæjar, nefndir til að fara með einstök verkefni eða málaflokka og aðrar nefndir og stjórnir sem Ísafjarðarbær á aðild að, skulu vera leynilegar og bundnar hlutfallskosningar ef þess er óskað. Fram­kvæmd kosninga skal þá vera í samræmi við ákvæði 44. og 45. gr. sveitar­stjórnar­laga.

Ef ekki er kosið hlutfallskosningu til nefndar, sbr. 1. mgr. 43. gr., sveitarstjórnarlaga, skulu odd­vitar framboða koma sér saman um það hvernig val þeirra á fulltrúum fullnægi ákvæðum 2. tl. 44. gr. sveitarstjórnarlaga varðandi kynjahlutfall.

Þeir einir eru kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir sem hafa kosningarrétt í Ísafjarðarbæ, nema annað leiði af lögum, sbr. m.a. 2. mgr. 39. gr. sveitarstjórnarlaga.

Starfsmenn fyrirtækja og stofnana sveitarfélagsins eru ekki kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir þeirra fyrirtækja eða stofnana sem þeir starfa hjá, nema sem áheyrnarfulltrúar með samþykki bæjar­­stjórnar. Bæjarstjórn getur þó ákveðið að víkja frá þessu ef málefni vinnuveitanda eru óveru­legur þáttur í starfi viðkomandi nefndar og starfið er ekki þess eðlis að hætta sé á hagsmuna­árekstrum vegna nefndarsetu.

 

36. gr.

Valdsvið nefnda og framsal bæjarstjórnar til fastanefnda
á valdi til fullnaðarafgreiðslu mála.

Í því skyni að stuðla að hagræðingu, skilvirkni og hraðari málsmeðferð getur bæjarstjórn ákveðið með viðauka við samþykkt þessa að fela nefnd, ráði eða stjórn á vegum Ísafjarðarbæjar fulln­aðar­afgreiðslu mála sem ekki varða verulega fjárhag bæjarsjóðs nema lög eða eðli máls mæli sérstak­lega gegn því, sbr. 42. gr. sveitarstjórnarlaga. Slík mál mega ekki varða fjárhag bæjarins umfram það sem kveðið er á um í fjárhagsáætlun eða öðrum almennum og bindandi reglum eða áætlunum sem sveitarstjórn hefur sett.

Á sama hátt og með sömu skilyrðum og getur um í 1. mgr. er bæjarstjórn heimilt að fela öðrum starfsmönnum innan stjórnsýslu Ísafjarðarbæjar fullnaðarafgreiðslu mála. Bæjarstjórn, bæjarráð eða hlutaðeigandi nefnd skal hafa eftirlit með afgreiðslu mála samkvæmt þessari málsgrein og kalla eftir reglulegum skýrslum um ákvarðanir sem teknar eru á grundvelli hennar.

Sá aðili sem fengið hefur framselt vald til fullnaðarafgreiðslu skv. 2. mgr., eða þriðjungur fulltrúa ef um nefnd, ráð eða stjórn er að ræða, sbr. 1. mgr., getur ávallt óskað eftir því að bæjar­stjórn, bæjar­ráð eða viðkomandi nefnd, skv. samþykktum um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjar­stjórnar, taki ákvörðun í máli.

Þegar bæjarstjórn neytir heimildar skv. 1. og 2. mgr. skal jafnframt kveðið á um það hvernig fara skuli með endurupptöku mála sem hljóta afgreiðslu samkvæmt þessum ákvæðum.

Sé nefnd ekki falið að taka fullnaðarákvörðun um mál skv. lögum eða samþykkt þessari, teljast ályktanir hennar tillögur til bæjarstjórnar, enda þótt þær séu orðaðar sem ákvarðanir eða sam­þykktir, og eru háðar staðfestingu bæjarstjórnar.

 

37. gr.

Endurupptaka.

Aðili máls á rétt á að mál hans sé tekið til meðferðar á ný eftir fullnaðarafgreiðslu þess hjá bæjar­stjórn, nefnd eða embættismanni ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upp­lýsingum um málsatvik eða ef íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin, sbr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Beiðni um endurupptöku máls skal beina til bæjarráðs eða viðkomandi fagnefndar, eftir atvikum, og verður að jafnaði að koma fram áður en þrír mánuðir eru liðnir frá því að málsaðila er tilkynnt um afgreiðslu.

Ef endurupptökuskilyrði eru fyrir hendi tekur bæjarráð eða viðkomandi fagnefnd ákvörðun um máls­meðferð.

 

38. gr.

Afgreiðsla á fundargerðum.

Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna skulu að jafnaði teknar á dagskrá bæjarráðs og bæjar­stjórnar og skal það gert svo fljótt sem unnt er að afloknum nefndarfundi. Ef fundargerðir innihalda ekki ályktanir eða tillögur sem þarfnast sérstakrar staðfestingar bæjarstjórnar eru fundargerðirnar lagðar fram til kynningar. Ef ályktanir eða tillögur þarfnast staðfestingar bæjarstjórnarinnar ber að taka þær sérstaklega á dagskrá.

Ályktun nefndar, ráðs eða stjórnar sem hefur í för með sér útgjöld sem ekki er kveðið á um í fjárhagsáætlun skal ætíð lögð fyrir bæjarráð og síðan bæjarstjórn til endanlegrar afgreiðslu, ásamt viðauka við fjárhagsáætlun sveitarfélagsins vegna útgjaldanna.

 

39. gr.

Fundir nefnda og ályktunarhæfi.

Starfsmaður nefndar, í samstarfi við formann nefndar undirbýr nefndarfundi. Starfsmaður nefndar sér um að boðað sé til fundar með skriflegu fundarboði, ásamt dagskrá, a.m.k. sólarhring fyrir fund. Geti nefndarmaður ekki sótt fund skal hann boða varamann og tilkynna eða láta tilkynna til formanns nefndar og starfsmanns nefndar.

Fundir nefnda skulu almennt haldnir fyrir luktum dyrum. Nefnd er heimilt að opna fundi sína komi fram ósk um slíkt svo fremi sem lög eða eðli máls hamli því ekki, enda er tillaga um slíkt samþykkt af meirihluta nefndarmanna.

Um fundi nefnda, ályktunarhæfi og atkvæðagreiðslur gilda ákvæði III. kafla samþykktar þessarar og sveitarstjórnarlaga eftir því sem við getur átt.

Heimilt er að halda fund með síma- eða fjarfundarbúnaði að uppfylltum þeim skilyrðum sem fram koma í 14. gr. samþykktar þessarar.

 

40. gr.

Fundarstjórn og fundargerðir.

Formaður nefndar stýrir fundum. Ákvæði III. kafla samþykktar þessarar gilda um með­ferð mála í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins eftir því sem við á.

Nefndir, ráð og stjórnir sveitarfélagsins skulu halda gerðabækur. Kjörinn ritari nefndar skal færa fundargerð í gerðabók. Nefnd getur þó ráðið sér sérstakan fundarritara utan nefndar. Um ritun fundargerða, nefnda, ráða og stjórna gilda sömu reglur og um ritun fundargerða bæjarstjórnar, sbr. 1. mgr. 16. gr. samþykktar þessarar.

 

41. gr.

Varamenn.

Varamenn taka sæti í nefndum í þeirri röð sem þeir eru kosnir.

Þegar kosið er til nefndar hlutbundinni listakosningu eða listi hefur verið sjálfkjörinn og aðalmaður í nefnd er forfallaður taka varamenn þess lista sem aðalmaður er kjörinn af sæti í nefnd í þeirri röð sem þeir skipa listann eftir að endurröðun á hann hefur farið fram skv. 4. tl. 1. mgr. 45. gr. sveitarstjórnarlaga.

Ef tveir eða fleiri flokkar eða framboðslistar til bæjarstjórnar leggja í sameiningu fram tillögu að lista við hlutbundna kosningu í nefnd bæjarstjórnar geta þeir komið sér saman um að varamenn á listanum vegna nefndarkosningarinnar, sem eru þar fulltrúar sama flokks eða framboðslista og sá aðalmaður í nefnd sem um ræðir, taki sæti hans í nefnd­inni í þeirri röð sem þeir voru kosnir án tillits til þess hvar þeir annars eru í röð vara­manna. Sé enginn úr hópi varamanna viðkomandi lista í sama flokki eða tilheyri sama framboðslista og aðalmaður tilheyrði þegar kosning í nefnd fór fram taka vara­menn af listanum sæti eftir venjulegum reglum.

Yfirlýsingu um samkomulag skv. 3. mgr. skal leggja fram á fyrsta bæjarstjórnarfundi eftir að nefndar­kosning fór fram og gildir hún til loka kjörtímabils eða þar til kjörið er í nefnd að nýju.

 

42. gr.

Boðun varamanna.

Um boðun varamanna á nefndarfundi gilda ákvæði 24. gr. samþykktar þessarar eftir því sem við á.

Þegar aðalmaður í nefnd fellur frá, missir kjörgengi, fær lausn frá nefndarstarfi eða forfallast varanlega frá því að sitja í nefnd tekur varamaður hans sæti í nefndinni nema bæjarstjórn ákveði að kjósa aðalmann að nýju, ella skipar bæjarstjórn nýjan varamann til setu í nefndinni.

Ákvæði þessa kafla samþykktarinnar um varamenn taka einnig til varaáheyrnarfulltrúa eftir því sem við getur átt.

 

43. gr.

Lausn frá nefndarsetu og endurskipun.

Fulltrúum í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins, sem ekki eru aðal- eða vara­menn í bæjar­stjórn, er heimilt að segja af sér nefndastörfum hvenær sem er á kjör­tímabili. Aðrir fulltrúar geta óskað eftir því við bæjarstjórn að þeim verði veitt lausn tíma­bundið eða út kjörtímabilið og metur hún þá hvort skilyrði til þess séu fyrir hendi.

Bæjarstjórn getur hvenær sem er á kjörtímabili ákveðið að skipta um fulltrúa í nefndum, ráðum og stjórnum sem hún kýs eða skipar ef ekki er um það ágreiningur innan bæjarstjórnar eða málefna­legar ástæður mæla með slíkri breytingu, svo sem ef nefndarmaður, án lögmætra forfalla, mætir ekki á fundi nefndar eða brýtur gegn þagnarskyldu. Ennfremur getur bæjarfulltrúi krafist þess að nefnd verði endurskipuð telji hann ástæðu til. Bæjarstjórn er þó heimilt að hafna slíkri beiðni ef hún er bersýnilega tilefnislaus að því tilskildu að 2/3 fundarmanna greiði atkvæði með tillögu um höfnun. Við framangreindar breytingar á skipan fulltrúa í nefndum, ráðum og stjórnum Ísa­fjarðar­bæjar skal kjósa alla fulltrúa að nýju og fer þá um kjör þeirra skv. 1. mgr. 43. gr. sveitar­stjórnar­laga nema enginn ágreiningur sé innan bæjarstjórnar um breyt­ingarnar.

Breytingar á nefndaskipan samkvæmt þessari grein skulu fullnægja skilyrðum 2. tl. 44. gr. og 4. tl. 1. mgr. 45. gr. sveitarstjórnarlaga um kynjahlutföll.

 

44. gr.

Áheyrnarfulltrúar.

Framboðsaðila sem fulltrúa á í bæjarstjórn en ekki hefur fengið kjörinn fulltrúa í fasta­nefnd er heimilt að tilnefna áheyrnarfulltrúa til þátttöku á fundum nefnda að undan­skilinni barnaverndar­nefnd.

Um áheyrnarfulltrúa á fundum nefnda gilda sömu þagnarskylduákvæði laga og eiga við um aðra nefndarmenn. Áheyrnarfulltrúi og varaáheyrnarfulltrúi skulu fullnægja kjör­gengis­skilyrðum í við­kom­andi nefnd.

 

45. gr.

Þóknun.

Bæjarstjórn er skylt að ákveða kjörnum fulltrúum í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum Ísafjarðarbæjar hæfilega þóknun fyrir þau störf, samkvæmt mati bæjarstjórnar, í samræmi við reglur sem hún setur. Bæjarstjórn er með sama hætti heimilt að ákveða að greiða áheyrnar­fulltrúum þóknun fyrir störf þeirra í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum sveitarfélags­ins.

 

46. gr.

Önnur réttindi og skyldur.

Nefndarmönnum er skylt að sækja fundi nefndar.

Ákvæði III. og IV. kafla samþykktar þessarar gilda að öðru leyti um fulltrúa í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins eftir því sem við á. Réttindi takmarkast þó eftir eðli máls við það sem full­trúum er þörf á vegna starfa í viðkomandi nefnd.

 

47. gr.

Aðrar nefndir, ráð og stjórnir sem Ísafjarðarbær á aðild að.

Bæjarstjórn kýs fulltrúa í nefndir, ráð og stjórnir sem sveitarfélagið á aðild að samkvæmt við­komandi lögum eða samþykktum. Ákvæði þessa kafla samþykktarinnar eiga við um slíka fulltrúa eftir því sem við getur átt.

Að því leyti sem nefnd, ráð eða stjórn lögaðila, sem bæjarstjórn kýs fulltrúa til skv. 1. mgr., fer með framkvæmd eða ábyrgð á verkefni sem sveitarfélaginu væri ekki sjálfu heimilt að sinna, þá er fulltrúi Ísafjarðarbæjar í viðkomandi nefnd, ráði eða stjórn ekki bundinn af fyrirmælum bæjar­stjórnar­innar um þau störf. Hið sama á við að því leyti sem það leiðir af lögum sem gilda um rekstur og starfsemi viðkomandi lögaðila.

 

48. gr.

Nefndir, ráð, stjórnir, tilnefningar og kosningar.

Bæjarstjórn kýs í eftirtaldar nefndir, ráð og stjórnir:

  1. Nefndir. Hér er um að ræða fagnefndir sem sinna faglegu starfi þeirra málaflokka sem þeim hafa verið falin af bæjarstjórn með erindisbréfum.
    1. Bæjarráð: Bæjarstjórn kýs þrjá bæjarfulltrúa og þrjá til vara í bæjarráð skv. 35. gr. sveitar­stjórnarlaga nr. 138/2011 og 27. gr. samþykktar þessarar. Bæjarráð er kosið árlega. Kjósa skal í bæjarráð á fyrsta fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og síðan árlega í júní ár hvert. Ákvæði 44. gr. samþykktar þessarar gilda um þá flokka eða fram­boðs­aðila sem fulltrúa eiga í bæjarstjórn en ekki fá kjörinn bæjarráðsmann. Verkefni bæjarráðs eru tilgreind í 32. gr. samþykktar þessarar.
    2. Fræðslunefnd: Bæjarstjórn kýs fimm fulltrúa og jafnmarga til vara í fræðslunefnd. Bæjar­stjórn kýs nefndinni formann og varaformann. Nefndin er kosin á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og er kjörtímabil hennar hið sama og bæjar­stjórnar. Fræðslunefnd fer með málefni leikskóla samkvæmt leikskólalögum nr. 90/2008, grunnskóla sam­kvæmt grunnskóla­lögum nr. 91/2008, tónlistarskóla samkvæmt lögum um fjárhagslegan stuðning við tón­listar­skóla nr. 75/1985 og samstarfs­samn­ingum um rekstur hans hverju sinni auk umsjónar með daggæslu barna í heimahúsum, sbr. reglugerð nr. 907/2005. Einnig fer hún með málefni framhaldsskóla samkvæmt ákvæðum framhaldsskólalaga nr. 92/2008 og samstarfs­samn­ingum sem gilda um rekstur framhaldsskóla hverju sinni. Auk verkefna sem fræðslu­nefnd hefur með höndum samkvæmt lögum getur bæjarstjórn falið henni ýmis verkefni með erindis­bréfi.
    3. Íþrótta- og tómstundanefnd: Bæjarstjórn kýs fimm fulltrúa og jafnmarga til vara í íþrótta- og tómstundanefnd. Bæjarstjórn kýs nefndinni formann og varaformann. Nefndin er kosin á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og er kjörtímabil hennar hið sama og bæjarstjórnar. Nefndin fer með íþrótta-, tómstunda- og æsku­lýðs­mál í sveitarfélaginu, þar með talið eftirlit með íþróttamannvirkjum en þau eru rekin af Eignasjóði, málefni félagsmiðstöðva og vinnu­skóla. Nefndin skal stuðla að samstarfi í íþróttamálum m.a. með nánu samstarfi við Héraðs­samband Vest­firð­inga. Auk verkefna sem íþrótta- og tómstundanefnd hefur með höndum sam­kvæmt lögum getur bæjar­stjórn falið henni ýmis verkefni með erindisbréfi.
    4. Velferðarnefnd: Bæjarstjórn kýs fimm fulltrúa og jafnmarga til vara í velferðarnefnd, sbr. lög nr. 40/1991, um félagsþjónustu sveitarfélaga. Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar kýs nefndinni for­mann og varaformann. Velferðarnefnd er kosin á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjar­stjórnar og er kjörtímabil hennar hið sama og bæjarstjórnar. Í samræmi við samning Ísafjarðar­bæjar við Súðavíkurhrepp, um sérfræðiráðgjöf, vinnslu mála og stjórnun í félagsþjónustu, dagsettan 29. júní 2020, skal Súðavíkurhreppur tilnefna einn áheyrnarfulltrúa með málfrelsi og tillögurétt á fundi velferðarnefndar. Velferðarnefnd fer með jafn­réttis­mál samkvæmt 13. gr. laga um stjórnsýslu jafn­réttis­mála nr. 152/2020. Þá fer velferðarnefnd með framkvæmd á mál­efn­um fatlaðra sbr. lög nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfi og málefnum aldraðra, sbr. lög nr. 125/1999, um málefni aldraðra, auk málefna húsnæðis­nefndar samkvæmt lögum nr. 44/1998, um húsnæðismál. Auk verkefna sem velferðar­nefnd hefur með höndum samkvæmt lögum og samþykkt þessari getur bæjarstjórn falið henni ýmis verkefni með erindisbréfi.
    5. Menningarmálanefnd: Bæjarstjórn kýs þrjá fulltrúa og jafnmarga til vara í menningar­mála­nefnd. Bæjarstjórn kýs nefndinni formann og varaformann. Nefndin er kosin á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og er kjörtímabil hennar hið sama og bæjarstjórnar. Menningar­málanefnd starfar að menningar- og ferða­málum. Nefndin skal vera tengiliður bæjar­stjórnar og menningarlífs, vera bæjar­stjórn til ráðgjafar og gera tillögur til bæjarstjórnar um markmið í lista-, menningar- og safnamálum. Nefndin er bæjarstjórn til ráðuneytis um verndun gamalla húsa og fornra minja samkvæmt þjóð­minja­lögum. Nefndin fer jafnframt með vina­bæjarsamskipti, hátíðahöld og málefni félags­heimila. Nefndin fer með menningarmál þar með talið málefni bókasafna sam­kvæmt ákvæðum bókasafnalaga nr. 150/2012, málefni héraðs­­skjalasafns sam­kvæmt lögum nr. 77/2014, um opinber skjalasöfn, sem og annarra safna.
    6. Skipulags- og mannvirkjanefnd: Bæjarstjórn kýs fimm fulltrúa og jafnmarga til vara í skipulags- og mannvirkjanefnd. Bæjarstjórn kýs nefndinni formann og varaformann. Skipulags- og mannvirkjanefnd er kosin á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjar­stjórnar og er kjörtímabil hennar hið sama og bæjarstjórnar. Nefndin fer með byggingar- og skipulagsmál samkvæmt skipulagslögum nr. 123/2010 og lögum nr. 160/2010, um mannvirki. Nefndin hefur eftirlit með stefnumörkun og samþykktum í málaflokkum sem undir hana heyra, hefur frumkvæði að gerð þróunaráætlana og skipulags­tillagna og leggur fyrir bæjarstjórn svæðis- og aðalskipulags­áætl­anir ásamt tillögu að úthlutun lóða og að gatnagerðar- og þjónustugjöldum. Nefndin skal í störfum sínum huga að ferlimálum fatlaðra samkvæmt lögum þar um. Auk verkefna sem nefndin hefur með höndum samkvæmt lögum getur bæjarstjórn falið henni ýmis verkefni með erindisbréfi.
    7. Umhverfis- og framkvæmdanefnd: Bæjarstjórn kýs fimm fulltrúa og jafnmarga til vara í umhverfis- og framkvæmdanefnd. Bæjarstjórn kýs nefndinni formann og varaformann. Umhverfis- og framkvæmdanefnd er kosin á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjar­stjórnar og er kjörtímabil hennar hið sama og bæjarstjórnar. Nefndin fjallar um umhverfis- og náttúru­verndarmál í samræmi við stefnu sveitarfélagsins. Nefndin sinnir lög­bundnum verkefnum gróður­verndarnefndar samkvæmt lögum nr. 155/2018, um land­græðslu, og náttúru­verndar­nefndar samkvæmt náttúruverndarlögum nr. 60/2013. Nefndin er bæjarstjórn til ráðuneytis um búfjárhald, dýraeftirlit, refa- og minkaeyðingu, mein­dýra­eyðingu og fjárgirðingar, sbr. ákvæði gildandi laga þar um. Nefndin fer með stjórn vatns­veitu, fráveitu og Eignasjóðs að því marki sem þau verkefni eru ekki falin öðrum nefndum. Auk verkefna sem nefndin hefur með höndum samkvæmt lögum getur bæjarstjórn falið henni ýmis verkefni með erindisbréfi.
    8. Hafnarstjórn: Bæjarstjórn kýs fimm fulltrúa og jafnmarga til vara í hafnarstjórn sam­kvæmt lögum um hafnamál nr. 61/2003. Bæjarstjórn kýs hafnarstjórn formann og vara­formann. Stjórnin er kosin á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjar­stjórnar og er kjör­tímabil hennar hið sama og bæjarstjórnar. Auk verkefna sem hafnar­stjórn hefur með höndum samkvæmt lögum getur bæjarstjórn falið henni ýmis verkefni með erindis­bréfum.
    9. Kjörstjórnir: Bæjarstjórn kýs þrjá fulltrúa og jafnmarga til vara í yfirkjörstjórn, sbr. 15. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000 og 14. gr. laga um sveitar­stjórnar­kosningar nr. 5/1998. Undirkjörstjórnir eru jafnmargar og kjördeildir eru: Þrír aðal­menn skulu kjörnir í hverja og jafnmargir varamenn. Yfirkjörstjórn er kosin á fyrsta fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og er kjörtímabil hennar hið sama og bæjar­stjórnar. Undir­kjörstjórnir skulu jafnframt kosnar af bæjarstjórn. Kjörstjórnir fara með þau verkefni sem þeim eru falin samkvæmt ákvæðum fyrr­greindra laga.
    10. Fjallskilanefnd: Bæjarstjórn kýs þrjá aðalmenn og jafnmarga til vara. Nefndin fer með fjall­skila­mál skv. lögum um afréttamálefni, fjallskil o.fl. nr. 6/1986 og reglugerð um búfjár­mörk, markaskrár og takmörkun á sammerkingum búfjár nr. 200/1998. Nefndin fer með málefni riðu­veiki samkvæmt 11. gr. reglugerðar nr. 651/2001. Nefndin hittist a.m.k. árlega og skipar gangna- og réttarstjóra í sveitarfélaginu.
  2. Stjórnir og samstarfsráð. Hér er um að ræða stjórnir stofnana með sjálfstæðan fjárhag og tilnefningar í samstarfsráð sem hafa endanlegt ákvörðunarvald í málefnum sínum, þ.e. þurfa ekki staðfestingu bæjarstjórnar til að koma málum í framkvæmd innan ákveðins fjárhagslegs ramma. Kjörtímabil þeirra er samkvæmt samþykktum um stjórn viðkomandi stofnunar.
    1. Sameinuð almannavarnanefnd Ísafjarðarbæjar og Súðavíkurhrepps: Samkvæmt sam­komu­lagi Ísafjarðarbæjar, Súðavíkurhrepps og lögreglustjórans á Vestfjörðum dags. 3. janúar 2007 og byggt á staðfestingu dómsmálaráðuneytis 24. september 2006 eru sveitar­félögin með eina almanna­varnanefnd. Skipað er í nefndina skv. 1. gr. skipunar sam­eigin­legrar almannavarna­nefndar sveitarfélaganna, dags. 27. febrúar 2020, en ekki kosið af bæjarstjórn þrátt fyrir ákvæði almannavarnalaga.
    2. Barnaverndarnefnd: Ísafjarðarbær, Súðavíkurhreppur og Bolungarvíkur­kaupstaður standa sameiginlega að meðferð barnaverndarmála samkvæmt samningi frá 18. febrúar 2003. Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar kýs þrjá nefndar­menn og þrjá til vara. Nefndin kýs sér formann. Barnaverndarnefnd starfar skv. barna­verndar­lögum nr. 80/2002. Verkefni barnaverndarnefndar er skilgreint í erindisbréfi og verður því eigi breytt nema með samþykki samstarfs­aðila eða skv. lagaskyldu.
    3. Heilbrigðisnefnd: Sveitarstjórnirnar á svæðinu kjósa sameiginlega fimm aðalmenn og jafn­marga til vara í nefndina skv. 11. gr. laga um hollustuhætti og meng­unar­varnir nr. 7/1998.
    4. Byggðasamlag Vestfjarða: Bæjarstjóri er aðalfulltrúi í stjórn Byggðasamlagsins, en bæjarstjórn kýs varafulltrúa í stjórn, í samræmi við samþykktir sambandsins.
    5. Stjórn Byggðasafns Vestfjarða: Bæjarstjórn kýs einn fulltrúa og einn til vara í stjórn byggða­safnsins. Stjórnin kýs sér formann. Safnið er sameign Ísa­fjarðar­bæjar, Súða­víkur­hrepps og Bolungarvíkurkaupstaðar.
    6. Búfjáreftirlitsnefnd: Bæjarstjórn kýs einn fulltrúa og einn til vara í búfjár­eftirlits­nefnd. Nefndin er sameiginleg með Bolungarvíkurkaupstað og Súðavíkur­hreppi (búfjár­eftirlits­svæði 10). Hana skipa þrír menn og jafnmargir til vara. Búfjár­eftirlits­nefnd gerir tillögu um skipan búfjár­eftirlitsmanna til viðkomandi sveitar­stjórna.
    7. Öldungaráð: Samkvæmt samþykkt um öldungaráð Ísafjarðarbæjar kýs bæjarstjórn tvo fulltrúa og tvo til vara, Samtök eldri borgara í Ísafjarðarbæ tilnefna sex fulltrúa og sex til vara og Félag eldri borgara í Önundarfirði tilnefna einn fulltrúa og einn til vara. Kosið er til fjögurra ára.
    8. Ungmennaráð: Samkvæmt samþykkt fyrir ungmennaráð Ísafjarðarbæjar starfar ungmenna­­ráð samkvæmt beinu lýðræði. Með því fyrirkomulagi hafa öll ungmenni mögu­­leika á að koma hugmyndum sínum á framfæri og hafa áhrif á málefni sveitar­­félagsins. Ábyrgðin dreifist yfir hópinn og fleiri einstaklingar taka virkan þátt í starfi ung­menna­ráðs Ísafjarðar­bæjar.
  3. Tilnefningar og kosningar. Kosnir fulltrúar á ársþing og ársfundi stofnana sem bærinn á aðild að.
    1. Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga: Samkvæmt lögum um Samband íslenskra sveitar­félaga kýs bæjarstjórn aðal- og varafulltrúa á landsþing sam­bandsins. Fulltrúar sveitarfélagsins eru kosnir á fyrsta eða öðrum fundi nýkjör­innar bæjarstjórnar og er kjörtímabil þeirra hið sama og bæjarstjórnar.
    2. Fulltrúaráð Brunabótafélags Íslands: Bæjarstjórn kýs aðal- og varafulltrúa í fulltrúaráð Bruna­bótafélags Íslands samkvæmt lögum um Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands. Fulltrúar sveitarfélagsins eru kosnir á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og er kjörtímabil þeirra hið sama og bæjar­­stjórnar.
    3. Fjórðungssamband Vestfirðinga: Bæjarstjórn kýs aðal- og varafulltrúa á aðalfund Fjórðungs­sambands Vestfirðinga samkvæmt lögum sambandsins.
    4. Tónlistarskóli Ísafjarðar: Bæjarstjórn kýs aðal- og varafulltrúa í skólanefnd Tónlistar­skóla Ísa­fjarðar. Fulltrúar sveitarfélagsins eru kosnir á fyrsta eða öðrum fundi nýkjör­innar bæjarstjórnar og er kjörtímabil þeirra hið sama og bæjarstjórnar.
    5. Stjórn Minjasjóðs Önundarfjarðar: Bæjarstjórn kýs tvo stjórnarmenn samkvæmt skipulags­skrá Minjasjóðs Önundarfjarðar. Fulltrúar sveitarfélagsins eru kosnir á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og er kjörtímabil þeirra hið sama og bæjar­stjórnar.
    6. Stjórn Samfélagsmiðstöðvarinnar á Þingeyri ses.: Bæjarstjórn kýs einn stjórnarmann, og einn til vara, til fjögurra ára, samkvæmt samþykktum Samfélagsmiðstöðvarinnar á Þingeyri ses.
  4. Hverfisráð. Bæjarstjórn setur samþykktir fyrir hverfisráð á Þingeyri, Flateyri, Suðureyri, Holta‑, Tungu- og Seljalandshverfi, Eyri og efri bæ í Skutulsfirði og í Hnífsdal.
    Aðeins er heimilt að starfrækja eitt hverfisráð í hverju hverfi skv. samþykkt þessari.
    Á stofnfundi hverfisráðs sem íbúar hverfis eru boðaðir á eru 5 fulltrúar kosnir í nefndina og 2 til vara. Fulltrúar í hverfisráði eru kosnir til tveggja ára í senn.
    Hverfisráð setja sér sjálf starfsreglur sem samþykktar skulu á aðalfundum íbúa hverfanna en um starfshætti ráðanna gilda almenn ákvæði um frjáls félög og fundarsköp. Hlutverk hverfis­ráða er að vera vettvangur íbúanna til að hafa áhrif á nærumhverfi sitt.
    Hverfisráð skulu halda fundi reglulega en að lágmarki einn aðalfund árlega og gera þar grein fyrir starfseminni. Tilkynna skal um slíkan fund til Ísafjarðarbæjar því þar skal farið yfir sam­vinnu við bæinn, hlutverk og framtíðarsýn.
    Tengiliður hverfisráða við stjórnsýslu sveitarfélagsins er bæjarritari sem aðstoðar við upplýs­inga­öflun úr stjórnsýslunni og sér til þess að fundargerðir hverfisráða séu lagðar fyrir bæjarráð til kynningar og birtar á vef sveitarfélagsins.
    Gera skal ráð fyrir ákveðnu fjárframlagi til hverfisráða í gegnum fjárhagsáætlun hvers árs. Það er ætlað til að greiða t.d. pappír, póstburðargjöld og annan umsýslukostnað í tengslum við hlutverk þeirra.
    Hverfisráð kemur erindum sínum á framfæri við bæjarstjórn eða stjórnsýslu sveitarfélagsins með formlegum hætti, þ.e. með bréfi, tölvupósti eða öðrum sannan­legum hætti.
  5. Verkefnabundnar nefndir. Bæjarstjórn getur kosið nefndir (lausanefndir) til að vinna að ein­stökum afmörkuðum verkefnum. Umboð slíkra nefnda fellur niður við lok kjörtímabils bæjar­stjórnarinnar og fyrr ef verkefni nefndar er lokið. Bæjarstjórn getur þó afturkallað umboð slíkra nefnda hvenær sem er. Bæjarstjórn útbýr erindisbréf fyrir nefndina þar sem hlutverk og staða nefndarinnar er skilgreint.
  6. Kjörtímabil nefnda. Sé kjörtímabil nefndar ekki sérstaklega tekið fram er það hið sama og bæjarstjórnar.

 

VII. KAFLI

Bæjarstjóri og aðrir starfsmenn.

49. gr.

Ráðning bæjarstjóra.

Bæjarstjórn ræður bæjarstjóra. Gera skal skriflegan ráðningarsamning við bæjarstjóra þar sem m.a. skal kveðið á um ráðningartíma hans, kaup og kjör. Ráðningarsamningur skal staðfestur af bæjarstjórn. Ráðningartími bæjarstjóra skal að jafnaði vera sá sami og kjörtímabil bæjarstjórnar.

 

50. gr.

Hlutverk bæjarstjóra.

Bæjarstjóri er framkvæmdastjóri sveitarfélagsins. Hann undirbýr fundi bæjarráðs og bæjar­stjórnar, semur dagskrá og boðar til fundar, sbr. 9. gr. samþykktar þessarar.

Hann á sæti á fundum bæjarstjórnar og bæjarráðs með málfrelsi og tillögurétt en eigi atkvæðis­rétt nema hann sé kjörinn fulltrúi í bæjarstjórn eða bæjarráð. Hann hefur og rétt til setu á fundum nefnda sveitarfélagsins með sömu réttindi.

Bæjarstjóri hefur með höndum málefni sveitarfélagsins og framkvæmd ákvarðana bæjar­stjórnar að svo miklu leyti sem bæjarstjórn ákveður ekki annað.

Bæjarstjóri er prókúruhafi bæjarsjóðs. Hann undirritar skjöl varðandi kaup og sölu fast­eigna sveitar­félagsins, lántökur og aðrar skuldbindingar eða ráðstafanir sem sam­þykki bæjar­stjórnarinnar þarf til. Bæjarstjóra er heimilt með samþykki bæjar­stjórnar­innar að veita öðrum starfsmanni sveitar­félagsins prókúru. Prókúruhafar skulu vera fjár síns ráðandi.

Bæjarstjóri er æðsti yfirmaður starfsliðs sveitarfélagsins.

Bæjarritari er staðgengill bæjarstjóra í forföllum hans nema bæjarstjórn ákveði annað.

 

51. gr.

Ráðning stjórnenda.

Bæjarstjórn ræður sviðsstjóra. Ennfremur ræður bæjarstjórn, að fengnum tillögum viðkomandi fag­ráða og stjórna, framkvæmdastjóra fyrirtækja með sjálfstæðan fjárhag sem eru í eigu bæjar­sjóðs.

 

52. gr.

Ráðning annarra starfsmanna.

Bæjarstjóri ræður stjórnendur stofnana að fengnum tillögum viðkomandi fagnefnda. Stjórnendur stofnana ráða aðra starfsmenn í samráði við sviðsstjóra.

 

53. gr.

Þagnarskylda starfsmanna.

Starfsmenn Ísafjarðarbæjar og aðrir sem sveitarfélagið ræður til vinnu við ákveðin verk­efni eru bundnir þagnarskyldu um atriði sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu og leynt eiga að fara samkvæmt lögum, fyrirmælum yfirboðara eða eðli máls. Þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi.

 

54. gr.

Starfskjör og réttindi starfsmanna.

Um starfskjör, réttindi og skyldur starfsmanna bæjarins fer eftir ákvæðum kjara­samninga hverju sinni og/eða ákvæðum ráðningarsamninga, reglum um ábyrgðar­mörk, starfsmannastefnu og jafn­réttis­áætlun.

 

VIII. KAFLI

Fjármál sveitarfélagsins.

55. gr.

Fjárstjórnarvald bæjarstjórnar.

Einvörðungu bæjarstjórn getur tekið ákvarðanir um málefni sem varða verulega fjármál sveitar­félagsins. Til slíkra málefna teljast m.a. ákvarðanir um eftirtalin atriði séu ekki gerðar beinar undan­­tekningar þar á með lögum:

  1. staðfestingu ársreiknings,
  2. fjárhagsáætlun næstkomandi árs,
  3. fjárhagsáætlun til fjögurra ára,
  4. viðauka við fjárhagsáætlanir skv. 2. og 3. tl.,
  5. lán, ábyrgðir eða aðrar fjárhagslegar skuldbindingar sveitarfélagsins,
  6. sölu eigna sveitarfélagsins og annarra réttinda þess,
  7. álagningu skatta og gjalda,
  8. ráðningu eða uppsögn endurskoðanda.

Bæjarráði er heimilt að taka fullnaðarákvarðanir í málum sem varða 5. og 6. lið hér að ofan sbr. 2. mgr. 58. gr. sveitarstjórnarlaga, sé ekki um verulega fjárhagslega hagsmuni að ræða og ákvörðun rúmist innan fjárhagsáætlunar til eins árs og áætlunar til fjögurra ára.

 

56. gr.

Afgreiðsla og form fjárhagsáætlunar.

Bæjarstjórn skal afgreiða fjárhagsáætlun bæjarsjóðs, fyrirtækja og stofnana sveitar­félagsins fyrir lok desembermánaðar ár hvert vegna næsta rekstrarárs og næstu þriggja ára þar á eftir að undan­gengnum tveimur umræðum í bæjarstjórn. Bæjarráð leggur skv. 1. mgr. 62. gr. sveitarstjórnarlaga og 1. mgr. 32. gr. samþykktar þessarar, tillögu um fjárhagsáætlun fyrir bæjarstjórn eigi síðar en 1. nóvember ár hvert. Að lokinni umræðu bæjarstjórnar skal afgreiða tillöguna, þó ekki síðar en 15. desember ár hvert.

Ef ekki tekst að afgreiða fjárhagsáætlun skv. 1. mgr. skal bæjarstjórn sækja skriflega um frest til ráðuneytis sveitarstjórnarmála og tilgreina ástæður fyrir umsókninni.

Form fjárhagsáætlunar skal vera í samræmi við form ársreikninga sveitarfélagsins. Í fjárhags­áætlun skal koma fram rekstrar- og framkvæmdaáætlun, áætlun um efnahag í upphafi og lok árs, auk áætlaðra fjármagnshreyfinga. Fjárhagsáætlanir skulu gefa glögga mynd af rekstri sveitarfélagsins, efnahag og breytingum á handbæru fé. Einnig skal þar koma fram greinargott yfirlit um tekjuöflun, ráðstöfun fjármuna og fjárheimildir sveitarfélagsins. Við gerð fjárhagsáætlana skal hafa hliðsjón af fjárhagslegri stöðu bæjarsjóðs og stofnana sveitar­félagsins við upphaf áætlunartímabilsins.

Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar tekur bæjarstjórn ákvarðanir um nýtingu tekjustofna bæjar­sjóðs og tekjuöflun, um öflun lánsfjár, ef um það er að ræða og um ráðstöfun fjár­muna á fjárhagsárinu bæði til rekstrar og eignabreytinga. Þá skal við gerð fjár­hags­áætlunar hafa hliðsjón af fjárhagslegri stöðu bæjarsjóðs í byrjun fjárhagsársins.

Bæjarstjórnin skal árlega gæta þess svo sem kostur er að heildarútgjöld sveitarfélagsins, þar með talin rekstrarútgjöld, fari ekki fram úr heildartekjum þess.

Bæjarstjórn skal senda ráðuneyti sveitarstjórnarmála fjárhagsáætlun innan fimmtán daga frá afgreiðslu hennar, sbr. 1. mgr. 76. gr. sveitarstjórnarlaga. Sama á við um við­auka við fjár­hags­áætlun.

 

57. gr.

Bindandi áhrif ákvörðunar um fjárhagsáætlun ársins.

Ákvörðun sem bæjarstjórn tekur skv. 55. gr. samþykktar þessarar og 62. gr. sveitar­stjórnarlaga um fjárhagsáætlun næstkomandi árs er bindandi regla um allar fjár­hags­legar ráðstafanir af hálfu sveitarfélagsins. Aðrir geta þó ekki byggt sjálfstæðan rétt til fjárframlaga eða annarrar fyrirgreiðslu sveitarfélagsins á fjárhagsáætlunum.

Óheimilt er að víkja frá fjárhagsáætlun skv. 1. mgr. nema bæjarstjórn hafi áður sam­þykkt við­auka við áætlunina. Á þetta við um hvers kyns ákvarðanir, samninga eða aðrar fjárhagslegar ráð­stafanir sem hafa í för með sér breytingar á tekjum, útgjöldum, skuld­bindingum eða tilfærslur milli liða í fjárhagsáætlun í þegar samþykktri áætlun. Viðauki er ekki gildur nema hann feli einnig í sér útfærða ákvörðun um það hvernig þeim útgjöldum eða tekjulækkun sem gert er ráð fyrir verði mætt. Á það einnig við þótt heildar­útgjöld eða heildartekjur breytist ekki vegna samþykktar hans.

Þrátt fyrir 2. mgr. má í undantekningartilvikum gera þær ráðstafanir sem skylt er samkvæmt lögum eða öðrum bindandi réttarreglum án þess að bæjarstjórn hafi áður samþykkt viðauka, enda þoli þær ekki bið. Viðhlítandi heimildar bæjarstjórnar skal þá afla svo fljótt sem auðið er. Skal erindi um slíka heimild lagt fyrir þegar á næsta fundi bæjarstjórnarinnar.

 

58. gr.

Fjármálareglur og viðmið um afkomu Ísafjarðarbæjar.

Bæjarstjórn ber að sjá til þess að rekstri, fjárfestingum og ráðstöfun eigna og sjóða sé þannig hagað á hverjum tíma að sveitarfélagið muni til framtíðar geta sinnt skyldu­bundnum verkefnum sínum, sbr. 64. gr. sveitarstjórnarlaga og ákvæði reglugerðar nr. 502/2012 um fjárhagsleg viðmið og eftirlit með fjármálum sveitarfélaga.

 

59. gr.

Ábyrg meðferð fjármuna og heimildir til fjárskuldbindinga.

Bæjarstjórn skal gæta ábyrgðar við meðferð fjármuna sveitarfélagsins og varðveita fjármuni með ábyrgum hætti, svo sem á innlánsreikningum fjármálastofnana eða með því að kaupa ríkis­tryggð verðbréf. Um heimildir til fjárfestinga í hagnaðarskyni fer skv. ákvæðum 65. gr. sveitar­stjórnar­laga.

Áður en bæjarstjórn tekur ákvörðun um fjárfestingu, framkvæmd eða aðra skuldbindingu sem nemur hærri fjárhæð en 20% af skatttekjum sveitarfélagsins yfirstandandi reikn­ings­ár er skylt að gera sérstakt mat á áhrifum hennar á fjárhag sveitarfélagsins, sbr. ákvæði 66. gr. sveitar­stjórnar­laga.

Um heimildir Ísafjarðarbæjar til veðsetninga og að gangast í ábyrgðir fer skv. 68. og 69. gr. sveitarstjórnarlaga.

 

60. gr.

Ársreikningur.

Gera skal ársreikning fyrir bæjarsjóð, stofnanir sveitarfélagsins og fyrirtæki þess. Jafn­framt skal gera samstæðureikning fyrir sveitarfélagið, þ.e. bæjarsjóð, stofnanir þess og fyrirtæki með sjálf­stætt reikningshald, sbr. 60. gr. sveitarstjórnarlaga. Ársreikningur skal gerður samkvæmt lögum um árs­reikn­inga, reglum settum samkvæmt þeim lögum og sveitarstjórnarlögum, sem og góðri reiknings­skilavenju.

Ársreikningur sveitarfélagsins skal fullgerður og samþykktur af bæjarráði og tilbúinn til endur­skoðunar og afgreiðslu í bæjarstjórn fyrir 15. apríl ár hvert.

Sveitarstjórn skal hafa lokið staðfestingu ársreiknings sveitarfélagsins, stofnana og fyrir­tækja þess eigi síðar en 15. maí ár hvert.

Ársreikning Ísafjarðarbæjar, ásamt skýrslu endurskoðanda, skal senda ráðuneyti sveitar­stjórnar­mála og Hagstofu Íslands ekki síðar en 20. maí ár hvert.

 

61. gr.

Endurskoðun ársreikninga.

Bæjarstjórn ræður löggiltan endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki sem annast skal endur­skoðun ársreikninga hjá sveitarfélaginu. Endurskoðun fer eftir lögum um endur­skoðendur, lögum um ársreikninga og alþjóðlegum endurskoðunarstöðlum, sem og fyrir­mælum 72. og 73. gr. sveitar­stjórnarlaga.

 

IX. KAFLI

Samráð við íbúa – Þátttökulýðræði.

62. gr.

Almenn atkvæðagreiðsla að frumkvæði íbúa.

Bæjarstjórn er heimilt að leggja þau mál í dóm kjósenda sem hún álítur vera mjög þýð­ingarmikil fyrir sveitarfélagið með skoðanakönnun eða atkvæðagreiðslu.

Ef 25% kosningabærra íbúa eða fleiri krefjast atkvæðagreiðslu um ákvörðun bæjar­stjórnar ber bæjarstjórn að verða við þeirri kröfu, með þeim takmörkunum sem fram koma í 3. mgr. 108. gr. sveitarstjórnarlaga.

Bæjarstjórn skal ákveða áður en atkvæðagreiðsla fer fram hvort hún skal teljast bindandi.

Um framkvæmd undirskriftasöfnunar, hlutverk bæjarstjórnar og framkvæmd almennrar atkvæða­greiðslu fer skv. 107. og 108. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

 

63. gr.

Gildistaka.

Samþykkt þessi, sem bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar hefur sett samkvæmt ákvæðum 9. gr. og 18. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi samþykkt um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 535/2014 ásamt síðari breyt­ingum.

 

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 27. apríl 2021.

 

F. h. r.

Guðni Geir Einarsson.

Stefanía Traustadóttir.


B deild - Útgáfud.: 11. maí 2021