Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 737/2018

Nr. 737/2018 26. júlí 2018

AUGLÝSING
um samþykkt breytingar á deiliskipulagi í Mosfellsbæ.

Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur samþykkt breytingu á deiliskipulagi sem hér segir:

Uglugata 40-46.
Breytingin felst í því að á lóðinni verði 6 raðhús á tveimur hæðum án bílageymslu. Byggingarreit er breytt til samræmis við fjölgun íbúða og rými aukið á norðurlóð til að fella aðkomu húsanna betur að hæðarlegu lóðarinnar. Bílastæði verði 16 talsins.

Ofangreind breyting á deiliskipulagi hefur hlotið meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi.

F.h. Mosfellsbæjar, 26. júlí 2018,

Ólafur Melsted skipulagsfulltrúi.


B deild - Útgáfud.: 27. júlí 2018