1. gr.
Með reglum þessum eru reglur um stórgreiðslukerfi Seðlabanka Íslands nr. 703 frá 13. ágúst 2009, með áorðnum breytingum, og reglur um starfsemi jöfnunarkerfa nr. 704 frá 13. ágúst 2009, með áorðnum breytingum, felldar brott.
2. gr.
Reglur þessar eru settar með heimild í 2. mgr. 46. gr. laga nr. 92/2019 um Seðlabanka Íslands og taka þegar gildi.
Seðlabanka Íslands, 27. október 2020.
|
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. |
Rannveig Júníusdóttir, framkvstjóri skrifstofu bankastjóra. |
|