Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 181/2019

Nr. 181/2019 5. febrúar 2019

GJALDSKRÁ
fyrir kattahald í Dalvíkurbyggð.

1. gr.

Við skráningu kattar skal greiða skráningargjald kr. 2.850. Fyrstu 6 mánuði frá staðfestingu gjaldskrár þessarar greiðist ekkert skráningargjald.

2. gr.

Árlega skal greiða eftirlitsgjald vegna kattar kr. 5.696. Gjaldið á að standa undir kostnaði vegna ormahreinsunar en ef framvísað er staðfestingu á að ormahreinsun hafi verið framkvæmd lækkar gjaldið um 50%.

3. gr.

Af köttum sem handsamaðir eru og fluttir í gæludýrageymslu Dalvíkurbyggðar samkvæmt 12. gr. samþykktar um kattahald í Dalvíkurbyggð nr. 17/2013 skal greiða handsömunar-, fóður- og vistunargjald samkvæmt gjaldskrá þessari. Ef köttur er ekki örmerktur samkvæmt 8. gr. sömu samþykktar ber einnig að greiða þann kostnað gegn beiðni til dýralækna sem framkvæma slíkt.

4. gr.

Við afhendingu handsamaðs kattar ber að innheimta kr. 5.696 vegna handsömunar og kr. 900 fyrir fóður og vistun fyrir hvern dag sem köttur er vistaður í kattageymslu. Gjald fyrir örmerkingu kattar fer eftir gjaldskrá viðkomandi dýralæknis hverju sinni.

5. gr.

Öll gjöld samkvæmt gjaldskránni miðast við neysluvísitölu, grunnur 1988, september 2016 (438,5 stig) sem uppreiknast í september ár hvert miðað við gildandi neysluvísitölu.

6. gr.

Gjaldskrá þessi sem samin er og samþykkt af sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar, með heimild í 5. mgr. 25. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum, öðlast gildi við birtingu. Jafnframt fellur brott gjaldskrá sama efnis nr. 1074/2015.

Samþykkt í landbúnaðarráði Dalvíkurbyggðar 4. september 2018.

Samþykkt í sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar 18. desember 2018.

Dalvíkurbyggð, 5. febrúar 2019.

Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 19. febrúar 2019