Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1004/2016

Nr. 1004/2016 21. nóvember 2016

REGLUGERÐ
um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá Evrópubandalaginu.

1. gr.

Reglugerð þessi gildir um úthlutun sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra á tollkvótum samkvæmt samningi milli Íslands og Evrópubandalagsins um viðskipti með landbúnaðarvörur á grundvelli 19. gr. EES-samningsins og með vísun til 5. mgr. 12. gr. tollalaga, nr. 88/2005, með síðari breytingum.

Tollkvótar samkvæmt reglugerð þessari taka til vara sem upprunnar eru í ríkjum Evrópu­bandalags­ins, sbr. bókun 4 við EES-samninginn.

2. gr.

Tollkvótum er skipt upp í tvo hluta, jafnstórar einingar sem úthlutað er sinni í hvoru lagi til sex mánaða í senn.

Ákvæði eftirfarandi tafla gilda um vörumagn, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:

Tafla I

Vöruliður: Vara Tímabil Vörumagn Verðtollur Magntollur
      kg % kr./kg
0202 Kjöt af dýrum af nautgripakyni, fryst 01.01. - 30.06.17 50.000 0 0
0203 Svínakjöt, fryst 01.01. - 30.06.17 100.000 0 0
0207 Kjöt af alifuglum, fryst 01.01. - 30.06.17 100.000 0 0
0208.9003 Rjúpur, frystar 01.01. - 30.06.17 ótilgreint 0 0
ex 0210 Kjöt og ætir hlutar af dýrum, saltað, í saltlegi, þurrkað eða reykt; ætt mjöl, einnig finmalað, úr kjöti eða hlutum af dýrum (**) 01.01. - 30.06.17 25.000 0 0
ex 0406 Ostur og ystingur (**) 01.01. - 30.06.17 10.000 0 0
0406 Ostur og ystingur 01.01. - 30.06.17 40.000 0 0
1601 Pylsur og þess háttar vörur úr kjöti, hlutum af dýrum eða blóði; matvæli gerð aðallega úr þessum vörum 01.01. - 30.06.17 25.000 0 0
1602 Annað kjöt, hlutar af dýrum eða blóð, unnið eða varið skemmdum 01.01. - 30.06.17 25.000 0 0
(**) Skráð í samræmi við reglugerð ráðsins (ESB) nr. 1151/2012 um vernd landfræðilegra merkinga og uppruna landbúnaðarafurða og matvæla.

Tafla II

Vöruliður: Vara Tímabil Vörumagn Verðtollur Magntollur
      kg % kr./kg
0202 Kjöt af dýrum af nautgripakyni, fryst 01.07. - 31.12.17 50.000 0 0
0203 Svínakjöt, fryst 01.07. - 31.12.17 100.000 0 0
0207 Kjöt af alifuglum, fryst 01.07. - 31.12.17 100.000 0 0
0208.9003 Rjúpur, frystar 01.07. - 31.12.17 ótilgreint 0 0
ex 0210 Kjöt og ætir hlutar af dýrum, saltað, í saltlegi, þurrkað eða reykt; ætt mjöl, einnig finmalað, úr kjöti eða hlutum af dýrum (**) 01.07. - 31.12.17 25.000 0 0
ex 0406 Ostur og ystingur (**) 01.07. - 31.12.17 10.000 0 0
0406 Ostur og ystingur 01.07. - 31.12.17 40.000 0 0
1601 Pylsur og þess háttar vörur úr kjöti, hlutum af dýrum eða blóði; matvæli gerð aðallega úr þessum vörum 01.07. - 31.12.17 25.000 0 0
1602 Annað kjöt, hlutar af dýrum eða blóð, unnið eða varið skemmdum 01.07. - 31.12.17 25.000 0 0
(**) Skráð í samræmi við reglugerð ráðsins (ESB) nr. 1151/2012 um vernd landfræðilegra merkinga og uppruna landbúnaðarafurða og matvæla.

Við innflutning á vörum sem falla undir þau tollskrárnúmer þar sem vörumagn er ótilgreint skal gilda sá verð- og/eða magntollur sem tilgreindur er í 1. mgr. yfir tilgreint tímabil.

3. gr.

Tollkvótum er úthlutað samkvæmt auglýsingu atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins sem birt er á heimasíðu þess, þar sem tilgreindir eru skilmálar vegna úthlutunarinnar.

4. gr.

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur hverju sinni, skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Tilboð skulu ráða úthlutun. Til þess að tilboð teljist gilt skal því fylgja ábyrgðaryfirlýsing banka, sparisjóðs eða vátryggingafélags þar sem fram kemur að viðkomandi ábyrgðarveitandi tryggi að tilboðsgjafi geti staðið við tilboð sitt.

Tilboðsgjafi sá er hæst býður skal leysa til sín úthlutaðan tollkvóta með greiðslu andvirðis hans innan sjö daga frá dagsetningu tilkynningar um niðurstöðu útboðs.

Úthlutun er ekki framseljanleg.

5. gr.

Berist umsóknir, við úthlutun tollkvóta samkvæmt töflu II, um meira magn innflutnings vara úr vörulið 0406 en auglýstum tollkvóta nemur, skal ráðherra úthluta tollkvóta vegna vöruliðarins eftir hlutkesti. Hver tilboðsgjafi skal þó að hámarki hljóta 15% af heildarmagni auglýsts tollkvóta ef viðkomandi vara er skráð í samræmi við reglur um vernd afurðarheita sem vísa til uppruna, land­svæðis eða hefðbundinnar sérstöðu.

6. gr.

Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 448/2012 um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins, með síðari breytingum.

7. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. búvörulaga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.

8. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 5. mgr. 12. gr. tollalaga nr. 88/2005 og 65. gr. B, búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum.

Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til og með 31. desember 2017.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 21. nóvember 2016.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Baldur Sigmundsson.


B deild - Útgáfud.: 23. nóvember 2016